Skip to content

Hvítar rósir og rómantík…

    • Um mig

recent posts

  • Baðherbergið framh.
  • Baðherbergið málað…
  • Ágúst, ljós og rómantík…
  • Svefnloftið ný málaði…
  • Garðvinna, dittað að og málað

about

  • Twitter
  • Facebook
  • Instagram
  • Komdu og skoðaðu í kistuna mína…

    mars 19, 2012

    Örlítið innlit með myndir frá deginum í dag. R.L. bakkinn er bara flottur og tekur sig vel út með líflega græna litinn og smá blómum!

    Fyrir og eftir myndir af gömlum kistli sem hefur lengi legið í geymslunni minni  og geymir gamlar einkunnir fjölskyldunnar og fleira skólatengt 🙂

    Kveðja Gunna 🙂

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Sunnudagur til sælu…

    mars 18, 2012

    Helgin mín fór í ferðalag og því gafst lítill tími til dundurs, en þó var hægt að skella sér í smávæginlegar breytingar 🙂

    gamlir blómapottar fengu smá andlitslyftingu og oft þarf ekki annað en…

    …smá blúndudúllerý.

    Flottur bakki frá R.L design á 300 kr, en þó dulítið litlaus með „drullulituðum“ dúk 😦 …

    … og þar sem páskarnir og vorið eru að nálgast, var græni matarliturinn og smá edik sett í fat og dúkurinn látinn gossa ofaní, sprey-brúsinn dreginn framm og bakkinn spreyjaður…

    …og hér er útkoman bara nokkuð líflegri 🙂

    Þeir hjá R.L design, luma á ýmsu skemmtilegu ef vel er að gáð. Ég datt t.d. niður á þennan sæta spegil sem hreinlega bað um að koma með mér heim og hann bara smellpassar!!

    Hér er kerti með mynd af Birgittu Brá minni, í Holtsfjöru í Önundafirði. Bara prenta út mynd á prentarapappír,  því skellt á ljóst kerti og það er bara yndislegt að sjá þegar falleg birtan berst í gegn, ég læt þessa mynd fljóta með svona í restina…

    Kveðja Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Skenkurinn minn fyrir og eftir…

    mars 15, 2012

    Hérna eru loksins myndir af skenknum mínum sem var að koma úr kalkmálingar-meðferð. Við prófuðum að lakka hann með möttu lakki og það er flottara og kalkið smitast þá ekkert! ég er bara rosalega ánægð með ´ann 😉 En ég læt bara myndirnar tala hér, bæði fyrir og eftir myndir,  gjööööööörið þið svo vel…

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Litun…

    mars 15, 2012

    þegar frúin á einhvað sem ekki er í réttum lit, þá einfaldlega hættir hún ekki fyrr en hún hefur fengið „nýjan“ lit á hlutinn 🙂 t.d þá á ég slatta af hvítu frekar litlausu basti, nú og mig langaði að lífga dulítið uppá´ann. þá kom hinn góði litur þ.e. matarliturinn upp í hugan og grunaði ekki Gvend, þetta bara heppnaðist fullkomlega og þar sem það styttist óðum í páskana nú þá er nú gott að eiga svona „gras“ undir páskaeggin… 🙂

    Kveðja Gunna 🙂

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Við lítinn vog, í litlum bæ er lítið hús…

    mars 14, 2012

    Jæja þá er ég mætt aftur við tölvuna, eftir frábæra ferð á Ísafjörð, þar sem maður fékk að knúsa svo marga… 🙂 svo var pakkað restinni af dótinu og það flutt til „Egils-Daða“ og það er sko aldrei að vita nema að í kössunum leynst ýmsir gullmolar sem þyrftu smá hressingar við! Bara spennó🙂 En ég átti nokkrar myndir frá því um daginn þegar ég fór hamförum um húsið og myndaði eitt og annað, sem er inn hjá mér  þessa dagana 😉

    Gamalt verkfærabox sem átti að henda fyrir nokkrum árum en ég krækti mér í það og fór með heim (eins og svo margt annað)!

    Klósettglugginn minn með Vanillu-Epsonbaðsaltinu og kertaljósum…

    …Gamall hárbursti frá Gunnu ömmu og lítil skrín sem ég hef sankað að mér þegar ég leggst í ferðalög erlendis 🙂

    …lítill fugl „kroppar“ í gömlu „mínútu-lestrarblöðin“ sem maður kepptist við að lesa í skólanum hér í denn…

    …gamli síminn er dulítið stærri en sá nýji…

    ...ég er alveg hugfangin þessa dagana af þessum keflum sem gerir flottar blúndur að stofustássi og nýji smádótakassinn minn er líka æðislegur:)

    Tvær gamlar og góðar frá mömmu, og svo skemmtilega vill til að bókin „Litla kvæðið um litlu hjónin“ er gefin út af Bókaverslun Jónasar Tómassonar á Ísafirði árið MCMXXVII 🙂

    Þessi er sko gamall og var mikið haft fyrir að eignast hann.  Fundum hann á öskuhaugunum fyrir ofan Borgarnes fyrir margt löngu, hann var ekki fallegur og ég átti ekki að fá að taka hann með! En ef maður nauðar bara og suðar nóg og lengi nú þá…      …nú og svo gerði ég glermynd á´ann

    Skólahornið og bjöllusauðir…

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Hjartans mál…

    mars 6, 2012

    Einhver mjög vitur( hlítur að hafa verið kona) sagði að við ættum að hlusta á hjartað 🙂 og nú langar mig að skella inn myndum af nokkrum hjörtum sem ég á af öllum stærðum og gerðum…

    hjarta-1

    „Hlátur er lyf fyrir hjartað“ þessa flottu „límstafi“  á spegilinn minn, gerði listakonan og vinkona mín, hún Dagný Þrastardóttir á Ísafirði.

    hjarta-2

    Home made hjörtu sem ég duddaði við…

    hjarta-3

    …silfurhjartað fékk ég í Blómavali og skreytti það smá með blúndu, en litlu boxin keypti ég þegar ég var að flandrast í útlandinu…

    hjarta-4

    …hjartaboxið fékk ég í gjöf frá eiginmanninum í denn, en glugga-og kertahjartað var keypt á Akureyri…

    hjarta-5

    …Home made…

    Hér fyrir neðan eru myndir af hjörtum sem ég hef fundið á netinu og sem mér þykja mjög flott…

    net

    net-2

    kveðja

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Sreybrúsinn á lofti!

    mars 4, 2012

    „dýrið“ gekk laust með spreybrúsann í dag og nú var svarta sæta gúmmímottan fórnalambið 🙂 fyrst byrjaði ég á að spreyja gestahliðina þ.e. réttuna og svo þegar ég ætlaði að spreyja bakliðina þá hummmm… fannst mér ílla farið með allt þetta hvíta flotta sprey sem fór á plastið sem var undir! nú ég náði mér í blindramma sem ég var búin að mála svartann og skellti mottunni ofaná’ann og spreyjaði! oohh hvað þetta var gaman 🙂 mottahér er svo fyrir og eftir!

    motta-2hér er svo málverkið mitt, bara sniðugt 🙂

    hér fyrir neðan er „gamall“ járnhitaplatti sem hitti spreybrúsann

    handavinna-1

    og hér eru sko gömul sænguver sem ég reif niður í ræmur og vatt upp í hnikla sem ég ætla svo nota til að hekla körfur og töskur 🙂 spennandi!

    Kveðja Gunna 🙂

     

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Myndir úr stofunni og eldhúsinu mínu.

    mars 3, 2012

    Þegar ég var búin að þrífa 300 fm. eins og hvítur stormsveipur, þá tók ég fram myndavélina og myndaði eitt og annað sem fyrir augu ber í stofunni minni og í eldhúsinu. Svo valdi ég úr það sem mér fannst „fallegast“ og deili því nú með ÞÉR…

    stofa

    stofa-2

    stofa-8

    stofa-3

    stofa-4

    stofa-5

    stofa-6

    stofa-7

    stofa-9

    stofa-10

    stofan-1

    Kveðja Gunna 🙂

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Meira af dúkkulísum

    mars 2, 2012

    þar sem ég á alveg glommu af dúkkulísum langar mig að deila fleirum og af því að ég held svo upp á hana Mjallhvíti og hennar 7 vini, þá kemur hér smá af henni…mjalla-1

    Mjalla-4

    mjalla-3

    mjalla-5

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Kjóll á 4 ára prinsessu :)

    mars 1, 2012

    Jæja amman er ekki alveg að standa sína plikt!  Kolbrún María prinsessa á 4 ára afmæli í dag og kjóllinn sem hún á að fá í afmælisgjöf, liggur flatur til þurrkunar á gólfinu hjá ömmunni!  Ekki nóg með það heldur eru sokkarnir, stúkurnar og taskan sem eiga að vera í stíl enn í hnotunum 😦 en  það verður sett í fluggír og klárað á helginni 🙂

    kjoll_1

    set inn til gamans kjólinn síðan í 3 ára afmælinu -ótrúlega líkir litir 🙂kjoll_2

    Kveðja Gunna 🙂

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
Fyrri síða Næsta síða

Bloggaðu hjá WordPress.com.

Hleð athugasemdir...
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    Hvítar rósir og rómantík...

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • Hvítar rósir og rómantík...
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar
%d