Skip to content

Hvítar rósir og rómantík…

    • Um mig

recent posts

  • Baðherbergið framh.
  • Baðherbergið málað…
  • Ágúst, ljós og rómantík…
  • Svefnloftið ný málaði…
  • Garðvinna, dittað að og málað

about

  • Twitter
  • Facebook
  • Instagram
  • Kerti sem fékk andlitslyftingu.

    febrúar 29, 2012

    Þar sem ég er kertasjúk og er sífellt að tendra upp ljós, þá þarf oft að kaupa ný kerti inn á heimilið. Og auðvitað þarf frúin alltaf að breyta og bæta lúkkið á kertunum þegar heim kemur 🙂 Hér er sýnishorn af síðasta „fórnalambinu“ …

    kerti_1

    …falleg servíetta sett á þetta líka flotta kerti úr R.L. og frúin bara nokk sátt með útkomuna

    Kveðja Gunna 🙂

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Næsti stofuskápur

    febrúar 28, 2012

    Jæja þá er næsti skápur kominn úr kalkmeðferðinni góðu og er ég alveg rosalega ánægð með útkomuna á honum 🙂 og þegar raða átti aftur inn skápinn, því sem var í ´onum áður, þá þótti mér sumt ekki vera nóg og „flott“ til að fara inn í skápinn. svo nú er verið að skoða lagerinn og hvað hægt sé að flytja milli staða 😉

    skapur_2

    Kveðja Gunna 🙂

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Dúkkulísur.

    febrúar 27, 2012

    Ég hef lengi haft brennandi áhuga á gömlu góðu dúkkulísunum sem maður lék sér með þegar maður var aðeins yngri 🙂 en í dag safna ég dúkkulísum og á orðið nokkuð gott safn sem ég hef fengið að skanna eða ná mér í á netinu. Ég á mér uppáhalds, það eru gamlar dúkkulísur sem eru m.a. frá mömmu minni, það eru Mjallhvít og dvergarnir 7. Mamma átti einn dverg eftir af sinni seríu og svo skemmtilega vildi til að Ingu vinkonu áskotnaðist 3 dvergar inní seríuna.  Nú er það spurningin hvort einhver þarna úti eigi dverga eða hana Mjallhvíti sjálfa, inní safnið mitt og sem ég gæti kannski fengið að skanna???? ég er mikið búin að leita á netinu en hef ekki fundið eins, en ég fann áþekka dúkkulísuseríu  en þó ekki alveg eins. Eins langar mig að eignast gömlu góðu dúkkulísurnar sem voru aftan á haframjölspökkunum hér í denn.

    dvergar

    Dvergarnir 4  (Mjallhvít er úr annari seríu).

    Kveðja Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • stofuskápurinn minn kominn í sparifötin…

    febrúar 25, 2012

    jæja ég er búin að ganga lengi með þann draum að mála „nokkra“ skápa á heimilinu og fá á þá svona „shabbý“ áferð. En erfilega hefur gengið að fá „meðeigandann“ til að samþykkja þessa hugdettu húsmóðurinnar. En  loksins kom að því að við náðum samkomulagi um aðgerðina og keyptir voru auskula kalklitir frá kalklitir.com  og  akrílgrunnur, nú og svo var hafist handa!  Hér fyrir neðan eru fyrir og eftir myndir af glerskápnum. (Hinir skáparnir tveir eru í meðferð). Ég er mjög ánægð með breytinguna og „meðeigandinn“ held ég líka…

    fyrir-og eftir-skapur

    Kveðja Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
Fyrri síða

Bloggaðu hjá WordPress.com.

Hleð athugasemdir...
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    Hvítar rósir og rómantík...

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • Hvítar rósir og rómantík...
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar
%d