„dýrið“ gekk laust með spreybrúsann í dag og nú var svarta sæta gúmmímottan fórnalambið 🙂 fyrst byrjaði ég á að spreyja gestahliðina þ.e. réttuna og svo þegar ég ætlaði að spreyja bakliðina þá hummmm… fannst mér ílla farið með allt þetta hvíta flotta sprey sem fór á plastið sem var undir! nú ég náði mér í blindramma sem ég var búin að mála svartann og skellti mottunni ofaná’ann og spreyjaði! oohh hvað þetta var gaman 🙂 hér er svo fyrir og eftir!
hér er svo málverkið mitt, bara sniðugt 🙂
hér fyrir neðan er „gamall“ járnhitaplatti sem hitti spreybrúsann
og hér eru sko gömul sænguver sem ég reif niður í ræmur og vatt upp í hnikla sem ég ætla svo nota til að hekla körfur og töskur 🙂 spennandi!
Kveðja Gunna 🙂