Skip to content

Hvítar rósir og rómantík…

    • Um mig

recent posts

  • Baðherbergið framh.
  • Baðherbergið málað…
  • Ágúst, ljós og rómantík…
  • Svefnloftið ný málaði…
  • Garðvinna, dittað að og málað

about

  • Twitter
  • Facebook
  • Instagram
  • Sokkaprjón…

    apríl 8, 2012

    Ég á ofsalega fallega sokka sem hún Gunna amma mín prjónaði handa mér fyrir mööööörgum árum.  En fyrir líka möööörgum árum var ég búin að slíta sokkunum svo að ég varð að stoppa í þá, sem var nú ekki voða lekkert hjá mér.  Síðan þá hef ég alltaf verið á leiðinni að prjóna nýja leista og núna loksins aftekaði ég að ráðast í verkið 🙂 endilega kíkið á…

    Ég byrjaði á því að klippa leistana af sokkunum, tók síðan upp lykkjurnar…

    …og til að milda skilin prjónaði ég blátt mynstur á skilunum því hvíti liturinn var sko örlítið hvítari!!  Rjúpnamynstrið eru svo krúttilegt og litirnir afskaplega fallegir í sokkunum! Ég er bara reglulega ánægð með útkomuna á nýja leistanum mínum!!

    Kveðja Gunnan

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Rósir og annað dudd…

    apríl 5, 2012

    Ég reif niður „gamalt“ léreftssænguver í mjóar ræmur um daginn og í dag var komið að stóru stundinni þ.e gera eitthvað úr herlegheitunum.  Þetta er svo útkoman…

    ég gerði fyrst eina prufurós…

    …svo var hún lituð í rauðum Kool Aid…

    …svo var önnur gerð eins og perlur festar á þær, þegar þær voru orðnar þurrar. Mér finnst þær bara svo sætar…

    …og ég gat ekki hætt að mynda þær!!!!

               

    Næst var að prófa að hekla úr lengjunum.  Ég notaði heklunál númer 8 og böðlaðist við að hekla mér litla „körfu“…

    …svo var gert blóm á’ ana og blúnda saumuð á.  Græni matarliturinn blandaður og körfunni skellt ofaní…

    vóvó karfan er bara nokkuð glaðleg 🙂

    Kveðja Gunnan

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • fer nú ekki að styttast í páska…

    apríl 4, 2012

    Jæja þá er skollið á laaaaangt frí og nægur tími verður vonandi í ýmis  skemmtileg „verkefni“ ég hef verið að hekla nokkrar  litlar páskakörfur á greinar og eru þær bara krúttlegar.   þegar körfukvótinn var fullnýttur þá varð ég að prófa að gera þennan „bjöllu-unga“ og hann er voða sætur svona á grein…

     

    Hér eru gömul græn kerti úr kertakassanum mínum góða, ég fann hjá mér mikla þörf til að dubba smá uppá þau með litlum ungum af servíettu!

     

    kertakrónan í stofunni fékk líka smá grænan lit eins og svo margt annað hér á heimilinu…

    og kertið líka 🙂

    þessi voðalega sætu flotkerti fundu mig í Blómaval og að sjálfsögðu bauð ég þeim heim með mér!

    þessi „dúkur“ með krúttlegu ungum er prentaður með þekjulit og textilblöndu, með blöðru og teiknað síðan á með tússi!

    ooohhh svo dætir…

                             


    Kveðja Gunnan

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • handavinnan…

    apríl 2, 2012

    Í dag var mér bent á uppskrift af svo sætum páskakörfum í Bændablaðinu, að ég varð að prófa að gera mér smá prufu og að sjálfsögðu fékk myndavélin að mynda herlegheitin 🙂 og loksins kláraði ég svo sokkana í stíl við kjólinn sem ég prjónaði um daginn og það fær að fljóta mynd af þeim með…

    Körfurnar passa akkúrat undir lítið egg og lítinn sætann unga…

     

    Sokkarnir nýþvegnir og lagðir til þurrkunnar

    kveðja Gunnan

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • …og enn meiri páskar…

    apríl 1, 2012

    Víst að ég er byrjuð í páskagírnum þá er svo erfitt að stoppa og hérna kemur dulítið meira…

    Krúttlegar kanínur sem standa vaktina í eldhúsglugganum

    Þetta er nú gamlar perlumyndir sem ég gerði með börnunum mínum fyrir mööööööörgum árum síðan, en eru alltaf dálítið sætar.

      

    Glaðleg hænsni…

      

    þessa finnst mér mjög vænt um, yndislegir páskaungar eftir börnin mín!!

    Haninn fær að trjóna uppá arninum

    Þessa gerði Frúin hér í denn...

    …og þennan líka.

    Þessi egg málaði Birgitta Brá ömmustelpa þegar hún var c.a 3-4 ára, yndislegt að eiga svona gersemar!

    Blómlegt…

    Kanína mín á flotta hvíta stofuskápnum og hænuklippimyndir sem ég gerði fyrir mörgum, mörgum árum…

     

    Kær kveðja Gunnan

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • …og meiri af páskum…

    mars 31, 2012

    Ohhh hvað ég elska að dúllast svona á laugardegi!! Hér eru líka fleiri myndir af páskadótinu mínu… 

    Ég fann þessar fallegu servíettur og bara gat ekki staðist það að taka þær með mér heim úr búðinni og þar sem ég átti kerti inn í skáp þá skellti ég sýnishorni af þeim, á það bara nokkuð gott!

      

    OOOhh þessi kerti keypti ég í frábærri búð á Eskifirði, vá ég hef aldrei og þá meina ég ALDREI, séð annað eins úrval af kertum og ég varð bara eins og barn í dótabúð -ég ætlaði bara ekki að geta valið!!! Hænudúkinn gerði ég fyrir síðustu páska…

        

    Fallegu páskagardínurnar mínar, sem ég keypti í Kaupfélagi Borgfirðinga Borgarnesi, hér á seinni parti síðustu aldar 🙂

      

    Eldhúsglugginn minn með þæfðu hænunum mínum og „leikskólablómaföndrinu“ 

    glaðlegar hænur…

    Meira leikskólaföndur

    engir páskar án eggja…

    og bakkinn góði og glaði

    grænu servíetturnar sem ég var búin að kaupa en…

    kveðja Gunnan 🙂

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Páskar…

    mars 30, 2012

    Jæja þá er konan svona aðeins farin að kíkja á páskadótið sitt og myndavélin fékk að fylgjast með, við byrjum á þessum myndum og á morgun koma fleiri 🙂 og eins og sjá má þá er grænt svona uppáhalds þessa páska.

    Kveðja Gunnan

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Allt sem er hvítt, hvítt…

    mars 29, 2012

    Hér koma nokkrar myndir af litlu borði sem ég keypti í R.L design 🙂 En ég bara hreinlega gleymdi að taka mynd af því áður en það var meðhöndlað með Kalkmálningunni góðu…

    Fallega styttan sem hún Gunna amma mín gerði, sómar sér mjög vel á svona stalli!!

     

    Auðvitað fékk skúffan nýja höldu.

     

    Kveðja Gunnan 🙂

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • dansi, dansi, dúkkan mín…

    mars 23, 2012

    Bara svona í tilefni loka þessarar vinnuviku þá ákvað ég að skella inn myndum af sæta prjónakjólnum sem minnsta prinsessan fékk  í afmælisgjöf og litlu veski sem mér fannst tilheyrandi að prjóna svona í stíl 🙂Kolbrún María 4 ára ömmuskott

    Kveðja Gunna 🙂

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • handavinna…

    mars 22, 2012

    það er mikið að gera á „stóru“ heimili svo frúin hefur ekkert gert að „viti“, en ég ákvað að flagga smá „gamalli“ handavinnu í dag 🙂

       

    Kveðja Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
Fyrri síða Næsta síða

Bloggaðu hjá WordPress.com.

Hleð athugasemdir...
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    Hvítar rósir og rómantík...

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • Hvítar rósir og rómantík...
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar
%d