Skip to content

Hvítar rósir og rómantík…

    • Um mig

recent posts

  • Baðherbergið framh.
  • Baðherbergið málað…
  • Ágúst, ljós og rómantík…
  • Svefnloftið ný málaði…
  • Garðvinna, dittað að og málað

about

  • Twitter
  • Facebook
  • Instagram
  • Æðislega fallegar myndir…

    júní 4, 2012

    þegar maður dettur niður á jafn frábæra síðu og Pinterest er, þá finnur maður nú ýmislegt spennandi.  Ég rakst m.a. á síðu sem heitir The old painted cottage.   http://theoldpaintedcottage.com/pages/cotm-dec-08.htm  og hún er bara æði!!! ég má til með að setja smá sýnishorn hér (það er með smá jólaívafi), en endilega að kíkja inn á síðuna sjálfa…

    Njótið vel, Gunnan…

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • ljós í krukku…

    maí 12, 2012

    ég á svo svakalega mikið að allskyns glerkrukkum að é ákvað að gera smá prufu sem ég sá einhvern tíman einhver staðar á netinu 🙂 fann ekki linkinn þegar ég ætlaði að setja hann með! en þetta er ekkert mál bara að gera svona:                                                                      blanda matarlit í smá vatn, og hrærði það síðan út í límlakk. helltið því síðan í krukkuna og veltið henni þar til hún er þakin lit að innan, hella afgangnum í næstu krukku eða í ruslið.  hvolfið krukkunni á pappír í ca. 20 mín.  því næst er krukkan sett á bökunarplötu klædda með smjörpappír.  sett í 100°C heitan ofn í 10 mín til að flýta þurrkun slökkt á ofninum opna rifu og látið kólna…    þrælsniðugt fyrir okkur sem erum alltaf að dubba upp með nýjum og nýjum litum 🙂 nú eða í veisluna!!!

    sko bara sætt…

    kveðja Gunnan.

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • EGG…

    maí 3, 2012

    Ég rakst á svo sniðugt á einni heimasíðunni þar sem egg voru soðin í silkibindum og mynstrið bókstaflega soðnaði við skurnina. Ég bara varð að prófa þetta NÚNA STRAX 😉 Að sjálfsögðu var myndað fyrir og eftir…

    fyrir þá  sem hafa áhuga þá er slóðin á síðuna:     http://www.ourbestbites.com

     

    Kveðja Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • fallegu sumarbollarnir mínir.

    maí 1, 2012

     Mér hlotnaðist nú á dögunum, 2 pör af yndislega fallegum og glaðlegum bollum.  Ég má til með að deila með þér myndum af þeim.  Maður getur ekki annað en fengið glampa í augun við það eitt að horfa á þá, hvað þá að drekka úr þeim :)hægt að skoða síðuna þeirra á  www.babetteharm.nl  og á facebook.  Ég varð líka að taka smá myndaséríu  af „gamla“ fallega bollastellinu mínu sem Gunna amma gaf mér hér í denn…

    Yndislegt…

    nú held ég að frúin verði að fara að baka…

    þetta sett þykir mér mjög vænt um, enda skipar það háan sess hér á heimilinu!

        

    Sólarkveðja Gunnan

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Perlur og…

    apríl 26, 2012

    Ég fann skemmtilega síðu á netinu þar sem gerð voru blóm úr perlum. sem svo má nota sem skraut á ymislegt. Auðvitað varð ég að prófa, eeeeen þau urðu nú ekki eins falleg og á kennslumyndbandinu!!! þau eru svona „fjarska“ falleg 🙂  hér eru nokkrar myndir.

    Kveðja Gunnan

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Furðukettir

    apríl 22, 2012

    Fyrir laaaanga löngu gerði ég nokkra ketti úr gleri, sem ég átti alltaf eftir að sjæna og klára að ganga frá. Í dag rann sá dagur loksins upp 🙂 mig langar að deila með þér myndum að þessum furðuköttum mjáááá…

    kveðja Gunnan

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Búdda…

    apríl 21, 2012

    Ég er afskaplega hrifin af öllu sem tilheyrir Búdda og á nokkra fallega t.d. þennan krúttlega, eeeen mér hefur alltaf leiðst liturinn á honum!!! og nú er tími spreybrúsans og því engu hlíft…

    svona leit ´ann út fyrir…

    …og bara sætur á eftir.

    kveðja Gunnan

     

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Gleðilegt sumar!

    apríl 19, 2012

    Jæja þá er páskaskrautið komið í geymslu og því er upplagður tími til smá tilfæringa, þrífa glugga, sem sólin er farin að sína ískyggi hve skítugir eru og fl. vorverk 🙂 ég arkaði af stað með tusku og myndavél. Hér eru myndirnar mínar…

    sólin var farin að bræða kertin sem voru í glugganum svo ég er að gera tilraun með svona dropalöguð kerti…

    rósirnar mínar eru eins og öll önnur blóm hér á heimilinu gerfi, enda þau einu sem „lifa“ í minni umsjá…

      

    Kertið mitt er „pakkað“ inn í venjulegann ljósritunarpappír, sem ég prentaði gamla fallega mynd á…

     

    Sumargjafir sem eiga eftir að komast í réttar hendur, pakkaðar inn í bokkupoka“ úr ÁTVR sem ég skellti í prentarann til að fá skreytingu á þá…

    Sumarkveðja Gunnan

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Þæfing

    apríl 10, 2012

    Ég var svo heppin að eiginmaðurinn keypti æðislega skó, sem hann ætlar að gefa mér  í afmælisgjöf 🙂 En eins og allir vita eru ýmsir fylgihlutir nauðsynlegir hverri konu s.s. eins og t.d. veski og þá helst í stíl!!! Og enn elti heppnin mig, því ég á léttlopa í alveg sömu litum og eru í skónum, nú svo ég bara dreif mig í að fitja uppá prjónana og prjónaði litla, en hina fínustu tösku, sem ég skellti bara í þvottavélina mína góðu, sem svo sá um að þæfa veskið fyrir mig! Kíktu á…

    taskan fyrir þvott og svo á eftir hjá skónum mínum flottu

    kveðja Gunnan

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • prjónamerki.

    apríl 9, 2012

    Við mæðgur sitjum og dúllum okkur að vanda við handavinnu, en nú bráðvantaði mömmu 8 prjónamerki í flottasjalið sem hún er að prjóna!! Auðvitað varð að redda því hið snarasta, kafað var í box og skúffur og ýmislegt gagnlegt fannst.  Sett voru sama nokkrar týpur af merkjum, svona til að hafa val 🙂

    nú og svo er mamma búin að vera að dunda sér við að gera perludúk handa mér og gerði 2 svona svo ég gæti valið, en þar sem „prinsessan“ gat ekki gert upp hug sinn nú þá fékk ég að eiga báða, heppin ég 🙂 Sjáið bara hefðuð þið getað valið????

    Kveðja Gunnan

     

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
Fyrri síða Næsta síða

Bloggaðu hjá WordPress.com.

Hleð athugasemdir...
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    Hvítar rósir og rómantík...

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • Hvítar rósir og rómantík...
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar
%d