Skip to content

Hvítar rósir og rómantík…

    • Um mig

recent posts

  • Baðherbergið framh.
  • Baðherbergið málað…
  • Ágúst, ljós og rómantík…
  • Svefnloftið ný málaði…
  • Garðvinna, dittað að og málað

about

  • Twitter
  • Facebook
  • Instagram
  • Haust

    september 18, 2012

    Haustið og ljósin sem því fylgir heilla því allt verður svo mjúkt og maður verður eitthvað svo slakur eftir erilsaman dag. Eldhússkotið mitt er svo kósý og þar er notalegt að sitja í rökkrinu og gera ekki neitt…

    ummm…

    Þennan bekk keypti ég fyrir möööörgum árum síðan og þá var hann lútaður, frúin hvíttaði hann fyrir all löngu síðan. 

    alltaf notalegur…

    …en nýjasta breytingin er þetta skraut sem ég keypti í Föndru um daginn og hvíttaði það og límdi síðan á bekkinn.  Dubbar bara heilmikið upp á´ann 🙂

    að sjálfsögðu er þetta svefnherbergisglugginn minn, það sést á stöfunum…

    Stóru pappastafina keypti ég í Föndru og málaði svo gyllta.

    Kósýheit…

    fótamyndir  af ömmukrílum…

    …og fleiri

    Frmraunin að púðagerð. Ég tók þessa „gömlu“ mynd sem ég á af okkur hjónunum, þar sem við erum örugglega um ca 2 ára gömul.  krúttlegt! prentaði hana út á „efnispappírinn“ og þetta kemur bara nokkuð vel út.

                                               ljúfar kveðjur úr rökkrinu

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • kerti og…

    september 11, 2012

    Þar sem kertatíminn er runninn upp þá má ég til með að skella inn nokkrum kertamyndum hér á síðuna mína…

    hér prentaði ég út „gamlar“ myndir og hitaði þær síðan á kertið…

    …og eins hér…

    …líka hér 🙂

    hér prentaði ég svo út mynd af elsta barna barninu mínu og skellti ljóði með…

    þetta er svo sniðug lausn fyrir „gömlu“ gulnuðu kertin.  maður setur bara smá akríl lit í lófann og tekur síðan efst utan um kertið og snýrð eins og skrúfu þannig að mynstur myndast! bara snilld 😉

    gömul eða ný nótnablöð…

    hér prentaði ég fyrst út nótnablað og síðan „gamlar“ myndir ofan í

    jólaservéttur hitaðar á kerti…

    …

    …

    þetta eru svo úrklippur úr Morgunblaðinu sem ég fann á timarit.is.  á öðru kertinu eru auglýsingar síðan 16. maí 1963 þ.e fæðingardegi mínum en á hinu frá fæðingardeginum hennar mömmu.  sniðugt að gefa svona kerti 😉

            kveðja að sinni Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Fallegar myndir

    ágúst 30, 2012

    Í gegnum tíðina hef ég safnað mikið af myndum. því á ég orðið mikið safn af myndum sem á eru falleg heimili og margar sniðugar hugmyndir.  í dag langar mig að deila með ykkur myndum af mjög skemmtilegri heimasíðu  http://www.tineskreativehjorne.com

    Frábær hugmynd; jólakökuform og „jólatrés“kertahöldum, falleg mynd límd í botninn…

    Bara snilldin ein! vínflöskur sem búið er að setja nýja miða á og dúlla dulítið við…

     

    meira dúllerý…

    ég elska blúndur…

    þessi kollur er meiriháttar, bara að skella skinni og smá kalkmálningu á gamla kollinn, þá er þetta komið!!!!

                                                                                                                  látum þetta duga að sinni                                                                                                                        kveðja Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Home sweet home…

    ágúst 27, 2012

    myndavélin fór ferð um heimilið…

    Gamlar mjólkurflöskur

    ekki veit ég hvort þið trúið því en ég  sem drep öll blóm, hef haldið lífinu í Basilikunni minni í rúman mánuð…

     

    falleg ömmuprinsessa Kolbrún María…

    Kveðja Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Ný „krítar“ tafla

    ágúst 23, 2012

    Ísskápurinn á heimilinu er komin af sínu léttasta skeiði og er orðinn dulítið sjoppulegur, þ.e hurðin á honum.  Nú og svo safnast „óvart“ á hann ýmislegt sem maður ætlar að muna eftir…  Einn daginn þegar ég var að vafra um Pinterest sá ég lausnina, það var að líma „töflu“ límmiða á hann. mér finnst nú límmiðarnir á Pinterest flottari, en ég fann þessa sem ég setti á skápinn hjá Söstrene Grene  http://www.facebook.com/Grenes 

    hér er ískápurinn fyrir meðferð…

    …og hér eftir.

      bara nokkuð ánægð með´etta 🙂

                                 Kveðja Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Rökkurró…

    ágúst 22, 2012

    Minn uppáhaldstími ársins (sko fyrir utan jólin 🙂 ) er þegar líða tekur á ágústmánuð, því þá fer að rökkva á kvöldin. kerti og aðrir ljósgjafar heimilisins eru dregin upp og tendrað er á þeim.  þessi milduljós  gefa heimilinu vissan rómatískan blæ (nú og svo sést rykið ekki eins vel…) og ég bara verðu eitthvað svo mjúk og róleg. Ég lét myndavélina mala í eldhúsglugganum mínum eitt kvöldið og sjáið bara hvað allt verður ljúft í þessari birtu…

                                                                                                                  Kveðja úr rökkurró

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Kanntu brauð að baka…

    ágúst 6, 2012

    Vinkona mín hún Inga er bjartsýniskona og hefur mikla trú á vinum sínum og þar með talið mér 🙂  Því þegar ég átti afmæli færði hún mér flottan stand undir muffinsköku (hún er nebblega að vonast eftir því að húsmæðrataktar fari nú að taka sig upp hjá mér með auknum aldri og vonandi þroska) en þar sem frúin er ekki alltaf með standandi kökuhlaðborð, nú og þá fannst mér að standurinn flotti gæti nú ekki staðið stingandi auður uppi á borði.  Nú var heilabúið ræst aðeins upp og inn datt hugmynd! Ég brunaði í Megastore og fann þar ódýrar frauðkúlur í tilraunina og nú taka við myndir…

    …frauðkúlan heil og ósnert…

                                                                                                                        …botninn kúttaður af…

    litlum töflupinnum stungið ofaní,  aahh… þetta er að koma…

    …svo er það málningin, bara dúmpað á…

    …og þæfðir dúskar settir ofaná í þetta sinn…

    …þetta er að koma…

    …er haggi bara…

     

    neibb ekki alveg, smá borði límdur í kringum kúluna…

    júúú aðeins betra eeenn, það vantar aðeins meira dúllerý þarf að skoða það betur…

    kveðja að sinni Gunnan

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Duddað að náðhúsinu…

    ágúst 4, 2012

     Ég sá um daginn svo svakalega sniðuga hugmynd um hvernig hægt væri að fegra glugga með límmyndum http://dossag.blogspot.com/2012/07/innblastur-og-utkoman-part-i.html  Klósettglugginn hjá mér er með filmu og því smellpassaði þessi frábæra hugmynd fyrir mig.  Ég skellti mér í Söstrene Grene og keypti fallega fuglalímmynd og svo var bara að puða´essu upp…

    …og hvað finnst ykkur er þetta ekki fallegra…

    …og bara rómó í rökkurró!

    þar sem ég er ekki með grænar fingur ferst mér best að hafa silkiblóm, held samt stundum að ég geti „drepið“ þau líka 😦

    sætt…

    „gömlu“ sápurnar úr yndislegu búðinni Sirku á Akureyri.

    …þetta flotta „salerniseyðublaðastatíf“ fékk í Evitu á Selfossi endilega kíkið á þetta blogg þið sem ekki eruð búin að því nú þegar: http://stinasaem.blogspot.com/2012/07/i-verlunarfer-selfossi.html
      bastkörfurnar geyma rusl og hin geymir ný og óútfyllt salerniseyðublöð…

    …snyrtipungarnir mínir sem ég keypti í Sirku á Akureyri bíða spenntir eftir næsta ferðalagi og hjartað er líka frá Akureyri :)…

    rest af límmiðum skellt á spegilinn…

    ég var svo ákveðin í að hafa grátt þema á klósettinu, að þegar ég fann hvergi gráar baðmottur þá keypti ég bara þessa sem var kringlótt og svo klippti ég hana bara í tvennt, og önnur var sett fyrir framan baðið…

    …og hin við vaskskápinn, bara nokkuð sátt me´ða 🙂

                                                                                                                                Kveðja að sinni Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Ég skal mála allan heiminn…

    júní 24, 2012

    bara svona til að halda blogginu virku ákvað ég að skella inn helgarvinnunni minni 🙂 ég málaði nokkrar myndir og tók síðan af þeim myndir, þær eru að vísu ekki mjög skýrar þar sem myndavélin var eitthvað að stríða mér…

    og svo ein í lokin ég ákvað að prófa að mála á nýju svörtu tómlegu bókina mína sem kemur til með að geyma „vit“ mitt næsta vetur…

    kveðja Gunnan

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Hjartagull…

    júní 11, 2012

    Ég bara varð að setja smá fyrir augað inn á síðuna mína, en væntanlegir flutningar eru eitthvað að trufla mig þessa daganna.  en ég lofa að skella svona einu og einu spennandi inn eftir bestu getu og tíma.  Eitt af því sem ég er afskapæega veik fyrir eru hjörtu af öllum gerðum og stærðum. Ég tók rúnt og myndaði nýjustu hjörtunum mínum og verð að leyfa ykkur að njóta með…

    Þetta yndislega fallega kristalhjarta færði kær vinkona mér á afmælisdaginn minn…

    … ég bara gat ekki ákveðið hvar þetta fallega hjarta ætti helst heima…

    …Fallegt!

    þessi fann ég í flottu blómabúðinni á Selfossi…

    …skellti blúndu á eitt…

    …og upp á grein, I love it…

    ylmhjarta á baðherberginu..

    …ummm ylmar vel…

    …og fallegt fyrir augað!

    Njótið vel…

    Kveðja Gunnan

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
Fyrri síða Næsta síða

Bloggaðu hjá WordPress.com.

Hleð athugasemdir...
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    Hvítar rósir og rómantík...

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • Hvítar rósir og rómantík...
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar
%d