Í gegnum tíðina hef ég safnað mikið af myndum. því á ég orðið mikið safn af myndum sem á eru falleg heimili og margar sniðugar hugmyndir. í dag langar mig að deila með ykkur myndum af mjög skemmtilegri heimasíðu http://www.tineskreativehjorne.com
Frábær hugmynd; jólakökuform og „jólatrés“kertahöldum, falleg mynd límd í botninn…
Bara snilldin ein! vínflöskur sem búið er að setja nýja miða á og dúlla dulítið við…
meira dúllerý…
þessi kollur er meiriháttar, bara að skella skinni og smá kalkmálningu á gamla kollinn, þá er þetta komið!!!!
látum þetta duga að sinni kveðja Gunna