Skip to content

Hvítar rósir og rómantík…

    • Um mig

recent posts

  • Baðherbergið framh.
  • Baðherbergið málað…
  • Ágúst, ljós og rómantík…
  • Svefnloftið ný málaði…
  • Garðvinna, dittað að og málað

about

  • Twitter
  • Facebook
  • Instagram
  • jólin og frúin færa sig upp á skafti…

    nóvember 27, 2012

    myndir dagsins í dag eru úr holinu mínu.  Og takið bara eftir hvíti stóllinn er kominn í jólafötinn og orðinn rauður hóhóhó…

    eins og svo margir aðrir á ég voða sæt hreindýr 🙂

    Húsin mín góðu…

    ég er voða veik fyrir jólatrjám (eins og svo möööörgu öðru hehe)

    þessa varð ég bara að setja með, ég þæfði utan um litla steina og nota þá sem skraut…

    …meira síðar

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • smá jól í glugga

    nóvember 25, 2012

    maður má nú aðeins byrja að dúllast við gluggana sína þó að aðventan sé ekki komin, eeeen hún nálgast.  Mig langar til að leyfa ykkur að njóta með mér, en ég held mjög mikið upp á þetta jólaskraut en það er með ljósum inn í…

    Finnst ykkur þetta  ekki yndislega fallegt?

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • …og sami andinn…

    nóvember 2, 2012

    Nú er komin enn ein helgin, og satt best að segja er það bara ágætt. Ég ætla aðeins að bæta á myndasafnið hér, þar sem „jólin“ leika aðalhlutverkið og hátíð er í bæ…

    Dunnan mín að kíkja á jólasveinana henna ömmu…

    Þetta sæta par áttu nú að verða svona „létt“ laugardagsverkefni hjá okkur vinkonunum, en eitthvað var það flóknara, og dróst verkið mislengi hjá okkur…

    Gamla jólatréð henna Gunnu ömmu skipar alltaf heiðursess á heimilinu og skartar ýmist dönskum- eða íslenskum flöggum.

    Jól úti, jól inni…

    …


    …

    …jól bara jól…

    og síðast en ekki síst flotta luktin sem Dóri minn kom með heim,                                          einn góðan óveðurdag fyrir ein jólin

                                                                                             …framhald síðar…

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Meira af því liðna…

    október 31, 2012

    Jæja hér koma fleiri jólaminningar…

    Gamla eldhúsið mitt í Þvergötunni var alltaf skreytt laugardaginn fyrir fyrsta sunnudag í aðventu.  það er gamallt og lítið, en yndislegt og það geymir maaaargar minningar…

    Eldhúsjólaglugginn…

    fullur gluggi af jólum…

    Stofuskápurinn minn, þarna er hann dökkur en núna er hann orðinn „sjabbý hvítur“ það verður spennandi að sjá hvernig skrautið kemur út 🙂

    Skenkurinn er líka orðinn hvítur svo það verða breytingar…                                           Jólatréð var jólaföndursverkefni okkar vinkonu minnar eitt árið, en við höfum verið ótrúlega duglegar að gera eitt og annað sniðugt fyrir jólin, í gegnum tíðina…

    …og þorp…

    Bekkurinn uppstrílaður…

    Heimabíóið fer líka í jólabúning heima hjá mér!

    rómó-jól…

    Bekkurinn og jóladúllerý.

    Það hefur alltaf verið spennandi að skoða „betur“ jólaskrautið hennar ömmu og svo þarf auðvitað að flytja til fólk og hluti sem er á „röngum“ stað…

    Vonandi langar ykkur í meiri upprifjun næstu daga, allavegana á meðan maður þarf að sitja á sér að rjúka ekki í jólakassana í geymslunni…

     

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Andi liðinna jóla…

    október 29, 2012

    Æi þar sem ekki eru nema 33 daga í aðventu og Ikea og Blómaval farin að flagga jólum, nú þá hlýtur maður að mega koma með minningar um liðin jól! það getur varla flokkast undir „stílbrot“…

    „barnaþorpið“ mitt er í miklu uppáhaldi…

    …og það er endalaust hægt að bæta við það ýmsum sætum smáhlutum!

    Maður nú dálítill „þorpari“ í sér um jólin…

    Allir þessir smáhlutir eru yndislegir…

    er það nokkuð skrýtið þó barnið komi upp í manni um jólin, sjáið allt dótið…

    …

    Sokkarnir hanga virðulegir á arninum.

    og meira af húsum…

    Krúttilegu krílin mín!

    Að sjálfsögðu fær náðhúsið líka sína uppliftingu.

    Sæti skíðasnjókarlinn minn sem er gjöf frá vinkonu minni prýðir alltaf forstofuna okkar,  hann er svoooo krúttlegur…          …ég læt þetta nú duga í dag, en það bíða sko miklu fleiri myndir sem ég skelli inn næstu daga…

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • meira af ljósum

    október 15, 2012

    …og hér koma fleiri myndir af ljósum 🙂

     

    Þessi er þæfð og mótuð með bjöllulagi. Síðan saumaði ég á hana litlar myndir sem ég hafði prentað á „straupappír“ og strauað á efni…

    …sko

    …og önnur…

    …gamaldags og krúttlegt!

    stjarnan er gerð á pappír sem ég hafði prentað á nótur, svo málaði ég pappírinn með matarlit og bar síðan á hann matarolíu! þá kemur þessi skemmtilega áferð á pappírinn og…

    …þessa gerði ég með börnum í leikskóla, liturinn verður svo fallega skær. Eins væri sniðugt að prenta sætar myndir af uppáhalds fígúrunni þeirra á pappírinn áður og mála svo 🙂

    Þessi sem er úr eggjabökkum og sómar sér vel hvort sem er í leikskólanum eða heima. Hún kemur ótrúlega skemmtilega út.. „blómunum“ er dýft ofan í vatn með matarlit í  eða bleki og svo þurrkað. skreytt  með tjulli…

    …bara sæt!

    Þessi er úr „kökuservíettum“ sem klippar eru til og mótað er kramarhús.  Flott um jólin 😉

    þessi er svo þæfð í þurrkaranum og er í sauðalitunum!                                                               jæja látum nú þessari ljósa-seríu lokið í bili en tendrum endilega  kósý ljós í rökkrinu…

    Kveðja Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • ljósadýrð

    október 14, 2012

    Ég er mjörg hrifin af þeirri birtu sem ljósaseríur gefur frá sér, og því má finna þær út um allt heima hjá mér.   Ég hef þæft utan um þær, gert úr eggjabökkum og svo úr „olíubornum“  pappír ,máluðum með matarlit en þær eru æðislega glaðlegar sérstaklega fyrir börn (…og mig 🙂 )  og hér er fullt af myndum…

    Þessi er hvít með lituðum perum í…

    …og þessi er tvöföld og myndar þannig blóm…

    Bleik og sæt með silfurþræði í…

    kósý…

    þessi er mín uppáhalds, hér þæfði ég blúndu með. þetta kemur ótrúlega vel út.

    …svo mikil blúnda…

    …

    …engill flögrandi í rómantískri birtunni…

    …ég bara gat ekki hætt að mynda´ana 🙂

    og ein til. En það koma fleiri myndir af ljósum á morgun…

    kveðja Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Mánudagur til mikills…

    október 8, 2012

    Á þessum fallega rigningarmánudegi ætla ég að skella inn nokkrum“haustmyndum“

    Ég eins og svo margir aðrir lagði leið mína í Blómaval á dögunumog fjárfesti í þessu líka flotta tinhúsi, ég hefði gjarnan viljað tvær stærðir en einhverjir voru á undan mér að kaupa þau öll  🙂

     

    Þessi leirhús gerði ég fyrir mööööööörgum árum síðan og held dulítið upp á…

    smá rómantík á „gamla“ snyrtiborðinu mínu…

    …

    Lyklar að ástinni…

    …

    Bakkann fékk ég í hirðinum góða, þar leynist nú ýmislegt, hárburstann þykir mér afskaplega vænt um, en hann átti Gunna amma mín.  Ég er svolítið veik fyrir svona litlum sætum öskjum en þær eru minjagripir úr ferðalögum héðan og þaðan!

    hér fer morgunþvotturinn framm…

    …og hér kvöld…

    munum bara að hlátur er lyf fyrir hjartað…

    kveðja úr haustmyrkrinu Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • sunnudagur er sólardagur sálarinnar…

    september 30, 2012

    Ég á svo flotta járnkertastjakakrónu sem mig hefur þó langað um nokkuð skeið, mjög mikið til að prófa að mála hvíta. En ekkert orðið úr. Jæja en um daginn þegar ég var að skoða flotta síðu á facebook http://www.facebook.com/FranskaLiljan  þá sá ég að þarna var hugmynd fyrir mig. En eins og með margt annað þá varð ég að gera dulítið öðruvísi en átti að gera 🙂  Ég tók hvíta akrílmálningu og svo barnapúður (einn á móti einum) og smá vatn, þessu hrærði ég vel saman og útkoman varð hálfgerð kalkmálning.  í upprunalegu uppskriftinni átti líka að vera hvítt föndur- eða trélím en ég sleppti því. En lítið nú á og dæmið sjálf…

    hér er´ún fyrir og eftir…

    …flott ekki satt?

                         nú þegar frúin kemst í ham þá getur fátt stöðvað ´ana.    þessi spegill fékk líka andlitslyftingu, því ég átti  „tréskraut“ sem fékk smá „púðurmálningu“ á sig.

    sko allt annað að sjá ´ann

    merkilegt hvað það þarf lítið til að dubba uppá.

    eeeen þessi er sko algjör drottning!!!!

    kveðja að sinni Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • máluð vegglímmynd

    september 23, 2012

    Jæja verkefni helgarinnar er veggmálun, þ.e. ég málaði „límmiðamynd“ í holið hjá mér. æi mér fannst veggurinn frekar nakinn eins og hann var.  Að sjálfsögðu fékk frúin frábæra hugmynd, nú en að mála bara mynd á´ann 🙂

    svona leit skotið út áður og…

    …svona á eftir

    Hér er verkið nýhafið…

    …og hér langt komið…

    …úlala hér er myndin komin öll!  Myndin á að vera táknræn fyrir okkur hjónin. Við búum jú á sitthvorri greininni þ.e hann á Egilsstöðum og ég í Hafnarfirði.  Þannig að hann er alltaf á flögri milli greina þessi esska.

    hér sést duggulítið meira af „nýja“ horninu

    gömlu bangsarnir sitja stilltir að vanda…

        nýgerður púði með krummapari á. (myndin prentuð á „bómullarpappír“)                             allt verður að vera í stíl!!!

    Rólegheit…

    og frúin bara sátt við helgarverkið sitt 🙂

                Kveðja Gunnan

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
Fyrri síða Næsta síða

Bloggaðu hjá WordPress.com.

Hleð athugasemdir...
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    Hvítar rósir og rómantík...

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • Hvítar rósir og rómantík...
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar
%d