Mér hlotnaðist nú á dögunum, 2 pör af yndislega fallegum og glaðlegum bollum. Ég má til með að deila með þér myndum af þeim. Maður getur ekki annað en fengið glampa í augun við það eitt að horfa á þá, hvað þá að drekka úr þeim :)hægt að skoða síðuna þeirra á www.babetteharm.nl og á facebook. Ég varð líka að taka smá myndaséríu af „gamla“ fallega bollastellinu mínu sem Gunna amma gaf mér hér í denn…
Yndislegt…
nú held ég að frúin verði að fara að baka…
þetta sett þykir mér mjög vænt um, enda skipar það háan sess hér á heimilinu!
Sólarkveðja Gunnan