Jæja amman er ekki alveg að standa sína plikt! Kolbrún María prinsessa á 4 ára afmæli í dag og kjóllinn sem hún á að fá í afmælisgjöf, liggur flatur til þurrkunar á gólfinu hjá ömmunni! Ekki nóg með það heldur eru sokkarnir, stúkurnar og taskan sem eiga að vera í stíl enn í hnotunum 😦 en það verður sett í fluggír og klárað á helginni 🙂
set inn til gamans kjólinn síðan í 3 ára afmælinu -ótrúlega líkir litir 🙂
Kveðja Gunna 🙂
hann er ÆÐI ! það verður svakalega glöð afmælis prinsessa sem að fær þessa gjöf 🙂
Líkar viðLíkar við