Skip to content

Hvítar rósir og rómantík…

    • Um mig

recent posts

  • Baðherbergið framh.
  • Baðherbergið málað…
  • Ágúst, ljós og rómantík…
  • Svefnloftið ný málaði…
  • Garðvinna, dittað að og málað

about

  • Twitter
  • Facebook
  • Instagram
  • Vasabóka-aðdáandi no.1

    júní 19, 2014

    Ég er voðalega veik fyrir vasabókum og þá minnisbókum 😉 Ég fæ bara alltaf í hnén þegar ég rekst á fallega vasabók útí búð…

    Frúin rakst á svo flottar servíettur í Föndru um daginn, að þær fengu að koma með heim.  En þegar þangað var komið var farið að spá í hvað hægt væri að gera við þessar flottu servíettur og vitið bara hvað ég rakst á eina „gamla“ vasabók, sem var svosem ekkert fjaska fín og þurfti því smá makeup…

    …nú og það var bara að skella á hana smá hvítri kalkmálningu…

    5

    …sníða til servíettuna og líma svo á bókina góðu…

    6

    er´ún ekki bara krúttileg 😉 Svona bók er sko nauðsynleg í veskið svo maður gleymi nú engu….

    7

    sko og ein mynd í restina af bókinni góðu, svona fyrir og eftir sjæninguna!!!

    8

    Kveðja út í sumarnóttina…

    Gunna

     

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • 17 júní bolli frúarinnar…

    júní 17, 2014

    Mér finnst að allar dömur verði að eiga fína bolla, bolla sem geta passað inn í alla daga ársins hvort sem þeir eru spari eða hvundags 😉

    Ég ákvað því að gera mér spes bolla fyrir 70 ára afmæli lýðveldisins! hæhójibbýjei það er kominn 17. júní…

    …. og hér er svo handmade porstulínsbolli frúarinnar frumsýndur…

    1

    ég er bara nokkuð ánægð með hann þennan! Hvað segið þið? er hann ekki bara frambærilegur?

    2

    Kaffið verður sko örugglega afbragð í´onum þessum… 😉

    Eigið góðan þjóðhátíðardag kæru vinir…

    kveðja Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Sautjándajúnírabbabaradrykkur…

    júní 16, 2014

    …jedúddamía hvað þetta er langt orð… en ég verð bara að deila með ykkur nýjustu tilrauninni með drykkjarkrúsina góðu sem ég keypti í Pier um daginn.

    Þessi drykkur er mjög auðveldur og svakalega svalandi fyrir utan það að vera gasalega hollur 😉

    Sko, maður tekur bara slatta af niðursneiddum rabbabara og skellir honum í krúsina og svo slatta af vatni þó ekki of miklu! ég hefði t.d. mátt hafa diggulítið meira af rabbabaranum hjá mér 🙂 því annars verður bara vatnsbragð af drykknum góða! þetta er látið standa við stofuhita í ca. sólarhring… þumalputtareglan er, að þegar allur rabbabarinn er sokkinn þá er þetta reddí 😉

    1

    …þá setti ég ca.10 dropa af steviu útí, það má líka setja hrásykur eða venjulegan útí ef maður vill frekar velja þá leið 😉 sumir fjarlægja rabbabarann úr drykknum á þessu stigi en mér fannst þetta svo smart svona í krukkunni! Annars er rabbabarinn orðinn algjörlega bragðlaus þegar nú er komið sögu! Næst er gott að skella krukkunni inn í ískáp og kæla drykkinn smá og svo getur maður bara drukkið þetta að vild í sumarhitanum….

    2

    Ég prófaði að setja fallega beika safann í soda streamtækið mitt, bara svona til að athuga hvort ég næði að setja smá gos í´ann og     ….ummmm ælovit ❤

    4

    Ég mæli sko með, að þið prófið líka að rabbabarast 😉

    kveðja RabbabaraRúna 😉

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Kjóll 47#

    júní 15, 2014

    Kjólakynningardagur í dag!

    Sá sem þið fáið að kynnast í dag var keyptur árið 2011 sérstaklega fyrir brúðkaup dóttir minnar ❤  litirnir eru skemmtilega skærir og sumarlegir 😉 Kjóllinn var síðari eða rétt fyrir neðan hné -sídd sem ég þoooooli ekki!!! Ég klippti því svörtu röndina neðan af og stytti kjólinn smá og saumaði röndina síðan aftur á og enginn tók eftir að átt hafði verið´ann 🙂

    1

    ég nota ýmist bláa eða svarta peysu undir hann og stundum er ég í hvítum kvartbuxum líka, ægilega smart… 🙂

    2

    sniðið er mjög þæginlegt og munstrið ruglar mann frá því að sjá „stærrilínur“ 😉

    3

    Þessi er líka eins og allir mínir kjólar svo mikið uppáhalds…

    4

    Sumarið er tíminn…

    5

    Kveðja úr kjólahrúgunni

    Gunna 🙂

     

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Kjóll 46

    júní 9, 2014

    Annar í hvítasunnu bíður uppá kjól vikunar, sem er sá 46. í röðinni…

    Hann er svartur og rauður, að sjálfsögðu og með blúndu og alles ❤

    0

    Þessi getur bæði verið hvundags og spari…

    1

    … og er bæði léttur og þæginlegur…

    2 3

    kjólakveðja Gunna

     

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Meira af doppum…

    júní 5, 2014

    Ég sýndi ykkur um daginn hvernig ég leysti að hluta, drauminn minn um að eignast doppótta bolla 😉 eeeeen mig vantaði sko meðdiska við þá…

    11

    Í dag leystist svo málið að hluta!!! því ég rakst á svarta diska með hvítum doppum á, í RL design 🙂 þeir eru að vísu úr plasti, en sóó… þeir gera gagn ha! bollar

    Er þetta ekki bara alveg að gera sig? Nú er það bara næsta verkefni þ.e. að finna út einhverja lausn með rauða diska…

    12

    Doppóttarkveðjur úr Hafnarfirði

    Gunna 🙂

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Undirbúningur fyrir góða sumardrykki…

    júní 4, 2014

    Jæja þar sem sumarið kemur til með að verða gaaaasalega hlýtt og gott, nú þá þarf maður að vera tilbúin með réttu græjurnar.  Eins og  t.d. sólarvörn, sólgleraugu, léttan sólstrandarfatnað og ílát undir svalandi sumardrykki… 😉 og þar erum við komin að efni dagsins þ.e. drykkjunum!!!

    Mér áskotnaðist um daginn, alveg svakalega flottur glerkútur úr PIER sem er með krana á!!! sniðugt ha?

    1

    Og það verður sko flott að hafa tilbúinn drykk í kútnum nú  eða klakavatn inni í ísskáp 😉 á komandi heitu sumardögunum…

    2

    Að sjálfsögðu er búið að vígja kútinn góða og var það gert á kostningadaginn 🙂 prófað var að blanda „grunninn“ sem er  í hinu ljúfa Mojito, og svo geymt inni í kælir og leyft að samlagast… ummmm þetta var ekki slæmt, skal ég segja ykkur!!! Eitthvað var nú farið að minnka í kútnum þegar ég áttaði mig á að taka mynd… 😉

    3

    Sérlega flottur kútur og sniðugt fyrir allavegana drykki… ❤

    Sumarkveðja Gunna

     

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Bollar með doppum…

    júní 2, 2014

    ….og ælov ❤ doppur! Ég fékk svo flottar rauðar og svartar doppóttar skálar og annað dúllerí, um daginn.

    1

    Sætar undir sultutau og rjóma… ha?

    2

    Dásamlegt…

    3

    En eitt leiddi auðvitað í annað og mig langaði svo svakalega í fallega doppótta bolla til að hafa með í hópnum. Eeeeen það voru bara til einhverjir hlussufantar sem mig langaði sko ekkert í 😦  ooooohhhhh það var bara enginn sjarmör við þá…

    Svo nú voru góð ráð dýr.  Ennnn ég er alltaf svo heeeeeppin og haldið ekki bara að ég hefi rekist á svo sæta og ódýra bolla (194 kr.) með undirskál í Ilvu…  sem ég bara skellti mér á!

    4

    Þegar heim var komið var dregin fram rauð og svört porstulínsmálning, sem fæst í A4, mjög þæginleg, sem maður brennir heima í bakarofninum og hún þolir UPPÞVOTTAVÉL…

    5

    Doppum var skellt á porstulínið og…

    6

    …og það síðan sett inn í bakarofninn við 150°C í 35 mín… látið kólna áður en það er tekið út!!!!

    6a

    Og sjáið bara flottu doppóttu bollana mína!

    7

    Eru þeir ekki bara dulítið sætir?

    8

    meira af doppum…

    9

    …og doppum…

    10

    …svartar doppur…

    11

    …rauðar doppur…

    12

    …og nýja doppóttastellið mitt 🙂

    14

    Er þetta ekki bara flott fyrir sumarkaffið?

    Doppóttar kveðjur úr Hafnarfirðinum…

    Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • kjóll 45#

    júní 1, 2014

    …kjóllinn í dag er  ljós og léttur, flottur inn í sumarið…

    00

    …smart snið…

    1

    lovit… ❤

    2 3 5

    8

    Eigið ljúfar sunnudag…

    kveðja Gunna 😉

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Fyrir og eftir… -draumadiskurinn!

    maí 30, 2014

    Það kemur nú fyrir besta fólk að langa í eitthvað, og það gerðist einmitt hjá mér  um daginn. Afleiðing saklausrar búðarheimsóknar í ILVU, varð til þess að ég fór heim… -með poka.

    OK. þannig er að ég er búin að leita að sætum kökudiski á fæti, möööööööög lengi og bara ekkert fundið sem mér líkar!  Eeeeeen þarna sem ég er bara í sakleysi mínu röltandi um í Ilvu og bara horfa. Nú þá blastir við mér  diskur og lítil skál, ofboðslega falleg á litinn. Það var eiginlega ekki hægt að sleppa þessu… -og þetta fór því með mér heim.

    1

    Þegar heim var komið tók við breytingarskeið hjá nýkeyptri vörunni,  ég dró fram sílikonlím og skellti á botninn á skálinni, þar sem ég ákvað að breyta henni í fót undir diskinn.  Þar á eftur setti ég farg á svo það næði að límast sem best saman…

    2a

    Þetta tókst líka svoleiðis glimrandi vel og ég á núna „draumakökudiskinn“ jedúddamía hvað mér finnst þessi litur flottur…

    3

    svo á ég flottann glerkúpul sem passar smart á´ann…

    4

    Maður er sko ekkert bundinn við að setja kökur á diskinn, enda ekkert alltaf verið með bakkelsi! Því er þetta svona fjölnota diskur sem fær augað til að njóta…

    5

    Finnst ykkur ekki hafa tekist vel til?

    Góða helgi.

    kv. Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
Fyrri síða Næsta síða

Bloggaðu hjá WordPress.com.

Hleð athugasemdir...
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    Hvítar rósir og rómantík...

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • Hvítar rósir og rómantík...
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar
%d