Skip to content

Hvítar rósir og rómantík…

    • Um mig

recent posts

  • Baðherbergið framh.
  • Baðherbergið málað…
  • Ágúst, ljós og rómantík…
  • Svefnloftið ný málaði…
  • Garðvinna, dittað að og málað

about

  • Twitter
  • Facebook
  • Instagram
  • Grænir fingur… -eða þannig

    maí 28, 2014

    …en það verður víst seint sagt um frúna, sem drepur jafnvel gerviblóm 😉  Eeeeen um daginn eignaðist ég tvö svakalega sæt „gróðurhús“ og það er nú ekki hægt að láta þau standa tóm!!!!  Frúin ákvað að kaupa svona til að byrja með, kryddjurtir og skella í minna húsið. Í hitt eiga svo að koma jarðaberjaplöntur og vera staðsettar úti á svölum…

    En mikið eru þessi „gróðurhús“ sem fást nú reyndar í RL- design (lesist Rúmfatalegerinn) flott og ég rauk að sjálfsögðu til með myndavélina og smellti á annað nokkrum myndum, bara svona fyrir ykkur 😉

    Sko, þarna er það stærra en það bíður spennt eftir jarðaberjaplöntunum… ❤

    1

    sko bara Basilikan og Myntan eru bara nokkuð grænar ennþá…

    2

    mig dreymir reyndar um að gera enn eina tilraunina, með að sá fyrir kryddjurtum og láta þær dafna í þessa fína „gróðurhúsi…

    3

    Þetta tekur sig bara vel út í litla eldhússkotinu mínu…

    4

    kryddaðar kveðjur úr Hafnarfirðinum…

    Gunna 😉

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Sögu vil ég segja stutta…

    maí 26, 2014

    …ó já hvað er skemmtilegra en góð saga?   Ég er leikskólakennari og hef gaman af því að finna skemmtilegar sögur handa börnum. Öllum börnum finnst líka gaman að segja sögu 😉 og þá eru „sögusteinar“ skemmtileg tilbreytning!  Ennþá skemmtilegra er að leyfa börnunum að tína steinana sjálf og svo setjum við myndir á þá og þá er hægt að hefja sögustundina 🙂

    Mig langar til að sýna ykkur hér nokkra af þeim „sögusteinum“ sem ég hef gert fyrir leikskólann minn og svo er líka gaman að eiga nokkra steina heima, fyrir börnin eða barnabörnin 😉 þetta er öðruvísi og ekki til í fjöldaframleiðslu eins og annað dót sem finnst í flestum barnaherbergjum…

    best er að hafa steinana flata, og mála á þá ljósann grunn og ég svindlaði smá því ég „kóperaði“ myndirnar á með límlakki og þurrkaði svo pappírinn af með vatni…

    sögusteinar1

    Svo notaði ég bara tússliti til að lita, eeeeeen það er betra að hafa þá vatnshelda… ég klikkaði á því og tússið rann til með lakkinu sem ég setti yfir 😉

    sögusteinar2

    En það er vel hægt að segja sögu með þeim…

    sögusteinar3

    Það er bara gaman saman í sögustund 🙂

    sögusteinar4

    Vonandi gefur þetta einhverjum góðar hugmyndir.

    Kveðja Gunna

     

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • kjóll 44#

    maí 25, 2014

    Þá er komið að því að kynna kjól númer 44!   Þessi er sko voðalega þæginlegur lekkert…

    Það kemur sjálfsagt engum á óvart að kjóllinn er rauður og svartur 🙂 hann er með léttu og margskiptu pilsi…

    44#4

    Hann er sko mikið notaður þessi skal ég segja ykkur…

    44#2

    Ég á svo flotta peysu sem ég nota undir kjólinn, en hún gæti alveg verið hluti af honum, svo vel passar hún við…

    44#

     

    hann er svo mikið uppáhalds þessi ❤ ❤

    44#1

    kveðja úr kjólahrúgunni,

    Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Blíður bleikur blær…

    maí 21, 2014

    …leikur nú um náðhús heimilisins.  Mér finnst þessi bleiki litur voðalega ferskur oghann  lífgar upp á hvítt herbergið 😉

    eða hvað finnst ykkur?

    wc1

    Tómar búbblebaðflöskur bíða eftir áfyllingu…

    wc2

    sú rauðklædda sér um skartgripina mína ásamt músinni og svo bíða baðbomburnar mínar eftir því að komast í bað…

    wc3

    Baðbombur, freyðibað og baðsalt allt saman skyldueign fyrir baðferðir…

    wc4

    eitthvað eru nú gráu snyrtipungarnir mínir slappir, þarna uppi á ofninum…

    wc5

    …og svo ein í restina, af uppáhaldsbaðglugganum mínum… 😉

    WC6

    Bleikar sumarkveðjur, Gunna.

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Nýir skór!!!!

    maí 19, 2014

    Þeir eru sko flottir nýju skórnir sem frúin fékk á helginni 😉 ég bara verð að leyfa ykkur að njóta með mér…

    Skórnir eru svo ekta „eftir-bað-skór“ og ég elska litinn á þeim ooooooog þeir eru með doppum sem er sko ekki leiðinlegt 😉 hehehe En sjáið bara sætu mjúku kósýskóna mína!

    skór

    jiiii hvað þetta verður huggulegt hjá mér, þegar ég fæ mér heitt súkkulaði og þeyttan rjóma í rauða doppótta bollann minn. Nú og súkkulaðibitaköku á rauða doppótta diskinn minn og tríttla um á rauðbleiku doppóttukósýskónum  mínum á ljúfum kvöldum ❤ ❤ lovit…

    skór2

    Kósýkveðja úr Hafnarfirðinum

    Gunna 🙂

     

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Kjóll 43#

    maí 18, 2014

    Þessi er sko uppáhalds!!! Ég nota hann rosalega oft í vinnuna þennan, hann er líka léttur og þæginlegur 😉 ég elska blúndur og þessvegna finnst mér þessi kjóll voða fallegur og grái liturinn er líka ekki slakur… skoðið bara myndirnar og segið mér að þið séuð sammála mér!!!

    Hann er voðalega lekkert og getur bæði spari og ekki spari…

    1

    blúndudúllerí út um allt á´onum… 😉

    2

    Ég þarf  í sjálfum sér ekkert að segja um þennan kjól, hann lýsir sér best sjálfur og er ekkert að ýkja´ða

    3

    Hálsfestin passar vel við heildarlúkkuð sko…

    4

    Yfirleitt nota ég nú þessa sætu gráu peysu við kjólinn, þau eru bara nokkuð gott par 🙂

    5

    Er það nokkuð skrýtið þó þessi sé uppáhalds?

    6

    ok bara ein í viðbót af uppáhaldinu… 😉

    7

    Kveðja úr kjólalandi, Gunna 🙂

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Kjóll42#

    maí 11, 2014

    úlala það er komið að kjól númer 42 🙂 þetta er rauður og svartur ullarkjóll alveg gasssalega heitum, svo hann er ekkert svona sumar…  en góður í vetrarkuldanum 😉 endilega skoðaðu gripinn…

    0

    Hann er svolítið öðruvísi þessi en samt smart 😉

    1 2

    Flottu rauðu skórnir mínir er líka voða elegant og passa við þennan kjól eins og svo marga fleiri í fataskápnum mínum!

    3

    Kjólakveðja Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Men at lunch

    maí 9, 2014

    Ég sýndi ykkur um daginn kerti sem ég hafði sett mynd utan um. Þessi mynd var að verkamönnum í matarhléi uppi í háhýsi eða réttara sagt á byggingarbita… ég gerði 2 aðferðir til að „kópera“ myndina yfir á púða. Skoðum málið…

    sú fyrri þarf miiiiiikla þolinmæði!!! maður finnur bómullarefni sem prenta skal á og prentar út myndina á venjulegan pappír. því næst dregur maður upp límlakk ég notaði MUD…  og svo góðan pensil!

    1

    næst þekur maður myndina með lakkinu og nota vel af því 😉 síðan skellir maður myndinni ofan á efnið og strýkur vel yfir svo öll myndin leggst að.  þetta er látið þorna í 1 sólarhring. Þá hefst vinnan við að nudda pappírinn af 😉 ég bleitti vel í pappírnum og lét standa á honum í 3-4 mínútur þá var auðveldara að ná pappírnum af! ég þurfti að gera 2 umferðir af nuddinu en lét alveg þorna á milli!!!!

    2

    svo eru herlegheitin hengd upp til þerris og svo er straujað yfir. Myndin kom bara mjög vel út, en þessi aðferð er maus!

    3

    svo saumar maður bara púðann sinn saman 🙂 ég gerði fyrst prufu með litlum myndum og gerðist heldur bráðlát og bleytti upp í pappírnum of fljótt, þess vegna nuddaðist hluti af bambanum í burtu, passið ykkur á því 🙂

    4

    hinn púðinn var bara „písofkeik“ þar prentaði ég á straupappír (pappír sem maður prentar á og straujar síðan yfir á efni) ég var með 2 arkir svo ég þurfti að skeyta myndina saman, en það tókst bara nokk vel samskeitin  hrópar alls ekkert á mann!! Eða hvað finnst ykkur?

    8

    Munurinn á myndunum er að, límda myndin er grárri en sú sem er straujuð á…

    13

    Ein svona auka, ég er svoooo ánægð með þessa púða!  Ég lauma líka með tveimur kertum sem ég setti utan um og ég er líka ánægð með 😉

    9

    Njótið nú helgarinnar kv. Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Sumarkaffi

    maí 8, 2014

    þar sem sumarið er rétt handan við hornið, þá ákvað ég að skella inn fyrsta sumarkaffiborðinu hér í Sléttahrauninu. Vöfflur og alles sko…

    Er þetta ekki sumarlegt? Rauðu fallegu bollana og diskinn, fékk ég í Evitu á Selfossi.

    kaffi

    frostingskakan er til að kveðja veturinn 😉

    kaffi1

    Litirnir eru voða þjóðlegir, rautt, hvítt og blátt!

    kaffi2

    kveðja Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • kjóll 41#

    maí 4, 2014

    Með kjól í hjarta og…  jæja þá er kominn sunnudagur -aftur 😉 Kjóll þessarar viku er ótrúlega þæginlegur, hann er með hálfgerðu blöðrupilsi og axlabönd halda uppi brjóststykkinu. Litirnir í honum eru allir mínir uppáhalds, rautt, svart, grátt og blátt. Ekki leiðinlegt það, ég get því verið í sokkabuxum í öllum þessum litum við hann!  Hálsfestin mín er gerð úr gömlum saumavélaspólum sem ég fékk fá henni Gunnu ömmu minni. Ég setti bara sömu liti og eru í kjólnum á spólurnar 🙂

    kjóll41-2

    Þennan kjól er ég búin að eiga í nokkur ár og hef notað hann roslalega mikið, og hann er alltaf eins!

    kjóll41

    þar sem hann er svona skræpóttur þá gefur það möguleika á að notað nokkra liti af peysum eða blússu  við´ann  😉

    kjóll 41-4

    Þessi kjóll getur bara ekki verið annað en uppáhalds, þar sem hann er bæði þæginlegur og mjög klæðilegur!

    kjóll41-1

    kjóll41-3

    Eigið nú notalegan sunnudag,

    kveðja Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
Fyrri síða Næsta síða

Bloggaðu hjá WordPress.com.

Hleð athugasemdir...
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    Hvítar rósir og rómantík...

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • Hvítar rósir og rómantík...
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar
%d