Sögu vil ég segja stutta…

…ó já hvað er skemmtilegra en góð saga?   Ég er leikskólakennari og hef gaman af því að finna skemmtilegar sögur handa börnum. Öllum börnum finnst líka gaman að segja sögu 😉 og þá eru „sögusteinar“ skemmtileg tilbreytning!  Ennþá skemmtilegra er að leyfa börnunum að tína steinana sjálf og svo setjum við myndir á þá og þá er hægt að hefja sögustundina 🙂

Mig langar til að sýna ykkur hér nokkra af þeim „sögusteinum“ sem ég hef gert fyrir leikskólann minn og svo er líka gaman að eiga nokkra steina heima, fyrir börnin eða barnabörnin 😉 þetta er öðruvísi og ekki til í fjöldaframleiðslu eins og annað dót sem finnst í flestum barnaherbergjum…

best er að hafa steinana flata, og mála á þá ljósann grunn og ég svindlaði smá því ég „kóperaði“ myndirnar á með límlakki og þurrkaði svo pappírinn af með vatni…

sögusteinar1

Svo notaði ég bara tússliti til að lita, eeeeeen það er betra að hafa þá vatnshelda… ég klikkaði á því og tússið rann til með lakkinu sem ég setti yfir 😉

sögusteinar2

En það er vel hægt að segja sögu með þeim…

sögusteinar3

Það er bara gaman saman í sögustund 🙂

sögusteinar4

Vonandi gefur þetta einhverjum góðar hugmyndir.

Kveðja Gunna

 

5 athugasemdir við “Sögu vil ég segja stutta…

  1. Takk Gunna mín fyrir frábæra hugmynd. Þú ert bara sjálf svo frábær. Elska þessa síðu þína. Kveðjur að austan.

    Líkar við

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s