æi það er svo kósý þegar maður hefur skellt rósum í vasa og kveikt á kertatírum… nú er bara að njóta þess á fallegu laugardagskvöldi!
njótið kvöldsins, kveðja Gunna ❤
Þar sem maður var svo heppin að fá auka laugardag í gær 1. maí 😉 nú þá þurfti að taka til hendinni og sjæna smá. Ég á svaka sætan bakka sem mig langaði að dubba upp á og fékk þá hugmynd að prenta út gamalt Íslandskort og tilla lauslega á bakkann, þar sem ég tími ekki að líma það pikkfast á. þetta er bara skemmtileg tilbreyting og ég prófaði líka að setja kortamynd á kerti það kom líka smart út 😉 En hér er handavinna gærdagsins…
ég prentaði út á A3 blað og klippti svo út…
svona leit bakkinn út fyrir meðhöndlun …og svo eftir sjæninguna…
er þetta ekki bara að gera sig?
Hvíta útvarpið mitt er líka voða krúttilegt og þæginlegt…
Mér finnst þetta bara sniðug lausn á að skreyta bakka, nú getur maður alltaf skipt um mynd allt eftir hvernig skap frúarinnar er…
Eldgamla Ísafold svíkur mann sko ekki, síung og falleg 😉
Hafið það nú gott á helginni, kveðja Gunna.
Ég á nokkrar töskur og veski og eru þær allar að sjálfsögðu, mikið uppáhalds 😉 Eeeeenn ein er meira en hinar, ég keypti mér hana á Dönskum dögum í Stykkishólmi í fyrrasumar. Lítum á gripinn…
hún er að sjálfsögðu rauð og er með hvítum doppum, þetta er eiginlega svona ferðataska 😉
… sko, maður getur þurft að ferðast með „rauðvínsbeljuna“ sína á milli staða og þá er taskan góða flottur ferðafélagi…
er´ún ekki sneddý og flott? og svo þæginleg 🙂
ég lauma líka með nokkrum myndum af hluta af fylgihlutasafninu mínu, svona í gamni…
kveðja úr skó og veskjadeildinni Gunna 🙂
ég er búin að eiga flotta gamaldags krukku lengi, en einhvernvegin hefur blátt plastlokið á´enni pirrað mig… 😦 Ég hef gert ýmsar tilraunir með að gera smá andlitslyftingu á lokinu og loks datt ég niður á lausn sem ég er nokk sátt við. Kíkjum á myndir…
Hér sjáið þið krukkuna fínu með lokið bláa… og svo eina af tilraununum að prófa að hylja það… að endingu prófaði ég að bora gat á lokið til að setja höldu á lokið… 😉
…sko! bara dulítið lekkert! er haggibara?
Þvottahússkápurinn er bara að koma sterkur inn, með öllu dúllerýinu! Gamall þreyttur straubolti, sápubaukur saddur minninga og svo annað sem er töluvert nýrra… 😉 en Krukkan góða er flott með nýju höldu-kórónuna sína!
Njótið kvöldsins. Kveðja Gunna 🙂
nohhhh kjóll númer 40 segja nú örugglega einhverjir 😉 en það er nóg eftir enn af kjólum bíðið bara! Þessi er keyptur í útlandinu fyrir u.m.þ.b 6 árum, í stelpuferð á Rodos. Ég bara kolféll fyrir honum og varð eins og með alla hina kjólana mína að fá hann með mér heim og hann er líka svona uppáhalds…
Ég hef notað hann mjög mikið og hann er alltaf eins, ekkert orðinn neitt sjoppulegur eftir þvottavélina 🙂
efnið er svona nokkurskonar „joggings“ gasalega þæginlegt, hægt að teygja og toga á alla kanta….
hann getur bæði verið spari og hvundags…
ooooo Ilovit…
svo klæðilegur þessi essska…
Njótið nú dagsins og sumarsins
Sunnukjólakveðja Gunna 🙂
Þar sem kertatíminn fer dvínandi með aukinni dagsbirtu, þá má ég til með að skella inn nokkrum myndum af kertum sem frúin hefur puðað myndum utan um.
ég bræði alltaf myndina inn í kertið, því þá koma ekki eins mikil skil þegar kertið brennur niður.
litirnir í tígriskertinu eru æðislegir…
Njótið helgarinnar, kveðja Gunna 🙂
hóhóhó það er kominn kjóll! Gleðilegt sumar þið öll!!! Myndavélin er fundin og því var kjólamyndum reddað hið snarasta… Kjóll vikunar er eins og allir hinir kjólarnir mínir, minn uppáhalds 😉 verum ekkert að draga þetta og kíkjum á gripinn!
Kjóllinn er í raun jólarauður, myndirnar eru alls ekki að sýna hans rétta andlit…
Kjóllinn er mjög þæginlegur, og á hliðinni er prjónastroff sem gerir hann enn liprari!
Ég er voðalega skotin í kraganum á þessum kjól…
Njótið nú sumarkomu.
Kveðja Gunna
Sunnudagur leið og enginn kjóll! Mánudagur að klárast og enn enginn kjóll! Nú er tæknin og eitthvað meira að stríða mér, því myndirnar sem ég var búin að taka af kjólnum eru puffff…. horfnar úr tölvunni minni og myndavélin virðist vera gufuð upp! hvað er að gerast hér á bæ? Ég er þó heppin að geta sett inn mynd sem ég á af svo fallegu sem mamma gerði fyrir páskana í fyrra. Nebblega yndislega páskaseríu! sjáið bara…
Er´ún ekki bara himnesk? Heppin ég að eiga mömmu sem er listakona og örlát á að leyfa mér að njóta verka sinna 🙂
Njótið nú síðustu súkkulaðimola páskanna á meðan ég fer að leita að myndavélinni…
kveðja Gunna
Ég hef verið að fikta við að búa til egg úr steinleir og litla hnetti eða kúlur. Mér finnst það hafa bara tekist ágætlega og er svona að velta fyrir mér hvað verði næsta skref með þetta… að sjálfsögðu fékkst myndataka á gripina sem þekja stofuborð og hillur!
hnettirnir eru ca 20 cm háir…
…og eggin eru svipað há en auðvitað lengri 😉
mér finnst þau svo flott svona í hrúgu…
ég prófaði að gylla eina kúlu og eitt egg… og er ekki alveg viss um að mér líki útkoman…
kveðja úr leirvinnslunni Gunna 🙂