Ég sýndi ykkur um daginn hvernig ég leysti að hluta, drauminn minn um að eignast doppótta bolla 😉 eeeeen mig vantaði sko meðdiska við þá…
Í dag leystist svo málið að hluta!!! því ég rakst á svarta diska með hvítum doppum á, í RL design 🙂 þeir eru að vísu úr plasti, en sóó… þeir gera gagn ha!
Er þetta ekki bara alveg að gera sig? Nú er það bara næsta verkefni þ.e. að finna út einhverja lausn með rauða diska…
Doppóttarkveðjur úr Hafnarfirði
Gunna 🙂