Skip to content

Hvítar rósir og rómantík…

    • Um mig

recent posts

  • Baðherbergið framh.
  • Baðherbergið málað…
  • Ágúst, ljós og rómantík…
  • Svefnloftið ný málaði…
  • Garðvinna, dittað að og málað

about

  • Twitter
  • Facebook
  • Instagram
  • Meira af kertum…

    júlí 24, 2014

    Ég er svo heppin að það voru 6 kerti saman í pakkanum sem við fengum gefins, sem þýðir það, að ég fæ að stússast í smá breytingum á næstu dögum. ooohh mér leiðist það nú ekki…

    En kerti 2. Því var ég búin að planta inni á svefnherbergisbekknum hjá okkur skötuhjúunum. Og þá leit þetta svona út…

    1

    Því næst var sótt falleg mynd í safnið. Ok ég á alltaf til útprentaðarmyndir, þar sem maður getur alltaf lent í því að vanta bráðnauðsynlega eins og eina mynd… 😉 og hver vill sitja í þeirri súpu, að eiga ekki til mynd? -ekki ég…  Myndin var sniðin til, tyllt á kertið að aftan með teipi og allt var reddý…

    1a

    Ég setti sæta blúndu á kúpulinn, svona bara til að undirstrika blúnduna í mér… ❤

    1b

    Ég er rosalega spennt að sjá hvernig þetta kemur út í kvöld þegar það fer að rökkva. Ég bara get varla beðið…

    1c

    En þar sem ég var nú byrjuð að duddast þetta í svefnherberginu. Nú þá hélt frúin áfram…  Skáparnir í svefnherberginu er stórir og góðir, enda verða þeir að vera það þar sem þeir hýsa ansi marga kjóla sko 😉  eeeen það er svo leiðinlegt bil á milli þeirra sem nýist í ekki neitt, ég hef notað stórar bastkörfur þar inní svona til að fylla smá uppí og það er bara allt í lagi. Körfurnar fengu smá andlitslyftingu í leiðinni, hér eru fyrir og eftir myndir af þeim…

    2

    …kveðja Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Kerti fær „andlits“lyftingu…

    júlí 23, 2014

    Við hjónin fengu gefins um daginn svakalega sniðug kerti.  Þessi kerti ganga fyrir batteríi svo það er engin eldhætta af þeim….  Eitthvað fannst nú frúnni kertin vera hálf berrössuð svo hún tók sig til og gerði smá tilraun á einu kertanna… kíkjum á afraksturinn;

    Kertin eru meira að segja með fjarstýringu. Það er ótrúlega þæginlegt að ganga um og slökkva á kertum með henni hehehe 🙂  Kertin eru af 3 stærðum mjög flott.  Ég ákvað að skella einu kertanna í Drykkjarkrúsina mína fínu en fannst að kertið þyrfti einhverja smá alndlyftingu…  Svo ég náði mér í uglumynd sem ég átti útprentaða á venjulegan  pappír.

    1

    Ég sneið myndin eftir kertinu og tyllti henni á með límbandi að aftan á samskeytunum. Mjög þæginlegt 😉 og sko hér sjáið þið  þetta líka flotta kerti! Eða hvað finnst ykkur?

    2

    Ég ætla að skella myndum á fleiri kerti næstu daganna, þetta er svo þæginlegt maður getur svo bara breytt um mynd daglega… ji hvað það er spennandi 🙂

    3

    …ein svona í rökkrinu…

    4

    …og ein svona yfirlitsmynd 😉 ég elska þetta fráleggsborð mitt enda er ég endalaust að breyta þar…

    5

    kertaknús úr Hafnarfirðinum.

    Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Parísarferð hugans…

    júlí 21, 2014

    Þar sem veðrið er ekki  mikið svona sumarlegt þá er ekkert annað í boði en að láta sig dreyma um framandi lönd með sumri og sól 😉 nú ég ákvað að skella gínunni minni í sætt sumardress og gerði hana ferðbúna fyrir Parísarferð. Að sjálfsögðu er regnhlif hluti af ferðafötunum hennar…

    1

    yrði maður ekki flottur að spranga um í þessum sæta sumarkjól í borg ástarinnar París…

    2

    …og regnhlífin góða yrði nú flott viðbót ef það gerði nú góða gróðrarskúr í hitanum ❤

    3

    Draumakveðja Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Kjóll 50#

    júlí 20, 2014

    jæja kjóll númer 50 er ekkert sumarlegur, heldur er hann frekar hlýlegur fyrir napra daga. Langerma prjónakjóll með rómatískri blúndu í brjóststykkinu…

    1 2 3

    Hlýjar regnsumarkveðjur.

    Gunna 🙂

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • skotthálmen…

    júlí 17, 2014

    og blogg sem er búið að vera ansi dapurt upp á síðkastið, en Æi konan er búin að vera í sumarfríi og á flandri um landið þvert og endilangt. svona er nú sumarið 🙂 en ég ákvað að henda inn myndum af hálsmeninu mínu sem ég henti upp á silfurhálsspöng þar sem mig vantaði eitthvað viðeigandi við flotta „upphluts“bolinn minn..

    2014-07-16 12

    collage

    njótið nú sumarsins…

    kveðja Gunna

     

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Kjóll vikunnar

    júlí 6, 2014

    jæja nú ætla ég aðeins að breyta til með kjól vikunnar  en þennan hef ég ekki notað…  😉  Þessi er home made og sá 4. sem ég hef gert, en enginn þeirra er þó ekki alveg eins!  Þetta er prjónaður skírnarkjóll…

    Garnið sem ég nota er Mandarin petit þannig að það er hægt að þvo kjólinn eins og „tusku“ og hann er alltaf eins!!

    1

    Mynstrið á kjólnum er ofsalega fallegt…

    2

    og fullt af skemmtilegum puffum og prjóni í´onum

    3

    Bláu slaufurnar eru að sjálfsögðu líka heimagerðar, en það kom ekki til að góðu þar sem ég fékk ekkert sem mér líkaði! Ótrúlegt hvað lítil perla gerir fyrir litla „ómerkilega“ slaufu 🙂

    4

    Finnst ykkur hann ekki bara yndislegur?

    5

    Hér er smá sýnishorn af slaufugerðinni.  Borðarnir eru dálítið stífir og bera sig því betur. Litlar perlur saumaði ég svo framan á og þær fela smá sauminn!  Svo í lokin saumaði ég garn aftaná slaufurnar svo þær eru bara bundnar fastar á kjólinn. Því kannski þarf að skipta um lit og svo líka þegar kjólinn fer í þvottavélina 😉

    6

    7

    SUMARkveðja… ❤  Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Kjóll 49#

    júní 29, 2014

    jæja þá birtist kjóll númer 49 ykkur, kæru kjólaunnendur 😉 þessi er gasalega þæginlegur úr þungu en þunnu efni sem fellur vel og krumpast sko ekki!

    Mér finnst flottast að nota rautt við´ann. Rauða beltið er úr teygju -mjög heppilegt…. 😉

    1

    …rauðar sokkabuxur eru að sjálfsögðu líka mjög smartar við…

    2

    …Rauð peysa og hálsmen…

    3

    …og rauðu uppáhalds skórnir mínir, maður minn ælovit ❤

    4

    Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Spennandi…

    júní 26, 2014

    …Ó já það er sko spennandi að kíkja í litlu sætu verslunina Spennandi og þar langar manni sko í eitt og annað…  Til dæmis kjólarnir maður minn, þeir eru svo rómó og sætir ❤

    Ég fór nú ekki alveg tómhent þaðan út og ég á sko örugglega eftir að detta þarna inn aftur 😉

    Ég keypti ofsalega sætan bakka og kertastjaka sem er svo fallegur að ég er endalaust að dáðs af´onum.

    Sjáið bara hvað bakkinn er dásamlegur og það verður sko gaman að nota hann undir eitthvað af gullmolunum sem ég á.  Ég byrjaði nú á að setja þessa fallegu bolla á´ann…

    1

    mynstrið fallega á hliðunum og svo er gler í botninum…

    2

    Þarna er búið að skella á hann fallegri gamalli könnu og sjáið nú kertastjakann og blúnduna sem er é honum…  Er hann ekki bjútí?

    3

    ooooohhh… ég var óstöðvandi með myndavélina sko….

    4

    þessum blómum  og bakkanum kom sko sannalega vel saman…

    5

    Kertið er heimaskreytt, mér finnst myndin svo krúttileg…

    6

    birtan af kertastjakanaum er eitthvað svo mjúk og rómó…

    7

    …og blúndan dásemdin ein…

    8

    …eina mynd yfir svæðið…

    9

    sjáið bara smáatriðin sem setja svo flottan svip á bakkann t.d  fæturnir ælovit ❤

    10

    …hmmmmm…. Ég hef það einhvernvegin  mjög sterkt á  tilfinningunni að ég eigi eftir að fara aftur í Spennandi og fjárfesta þar í rómatískum blúndukjól …

    Kveðja úr draumalandinu

    Gunna ❤

     

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Dannebrog…

    júní 23, 2014

    Ég skrapp til „Akureyris“ á helginni síðustu og að sjálfsögðu fór jólabarnið og kíkti í Jólagarðinn rétt við bæinn. En viti menn það er risið þetta æðislega krúttilega hús við Jólahúsið.  Í því húsi er svo verslunin Bakgarðurinn og þar fæst sko margt fallegt maður minn. . 😉

    Eitt af því sem ég heillaðist af voru lítil dönskflögg á bandi, eitthvað sem passar svo smart á gamla jólatréð mitt. Ég er alltaf með lítil pappaflögg á því um jólin, en þetta er sko toppurinn ❤  Þau eru  gerð úr garni en hanga saman á fíngerðu snæri! Eigum við ekki bara að kíkja á myndir. kannski eru myndirnar dulítið dökkar en ég skellti flöggunum beint á eldhúsgluggahlerana mína, því ég fékk mig ekki til að pakka þeim niður 🙂

    Flöggin eru svo yndislega gamaldags, vóóó… hvað mig hlakkar til að prófa þau á jólatrénu…

    flagg1

    Eruð þið ekki bara sammála um að þau eru krúttileg… ælovit ❤

    flagg2

     

    Mánudagskveðja úr sól og sumri, njótið lífsins

    kveðja  Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Kjóll 48#

    júní 22, 2014

    Hér kemur sá fertugastiogáttundi í þáttaröðinni „kjóll vikunnar“

    þessi er svolítið léttur og sumarlegur, grár og hvítur…

    1

    Ég keypti hann á Rodos fyrir nokkrum árum, gráa stykkið framan á er einn stór vasi…

    2

    flottur inn í sumarið…

    3 4

    kjólakveðja úr Hafnarfirðinum…

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
Fyrri síða Næsta síða

Bloggaðu hjá WordPress.com.

Hleð athugasemdir...
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    Hvítar rósir og rómantík...

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • Hvítar rósir og rómantík...
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar
%d