Skip to content

Hvítar rósir og rómantík…

    • Um mig

recent posts

  • Baðherbergið framh.
  • Baðherbergið málað…
  • Ágúst, ljós og rómantík…
  • Svefnloftið ný málaði…
  • Garðvinna, dittað að og málað

about

  • Twitter
  • Facebook
  • Instagram
  • Kjóll 53#

    ágúst 10, 2014

    jæja þá er nú liðið eitt ár síðan ég hóf að  kynna fyrir ykkur kjólana mína og enn eru nokkrir eftir 😉 En kjóll þessarar viku er   algjört æði ❤ og er frá versluninni Spennandi og er svakalega rómatískur eins og allt frá þeim.

    Kjóllinn er í reynd saman settur úr þremur flíkum, þ.e. 2 kjólum og þunnum yfirkjól. Hann er bara algjör draumur með fullt af blúndum, puffum og pífum. Svo er  frúin svo heppin að eiga trefil/sjal og tösku í stíl, ekki leiðinlegt það! sjáið bara og dæmið sjálf….

    1

    Þið vitið nú orðið hvað ég er hrifin af öllu þar sem fyrsti stafurinn er blúnda…  en er þessi kjóll ekki æði…

    2

    Taskan er eins og kjóllinn algjört augnakonfekt.

    3

    ælovit ❤

    4

    Jedúddamía hvað mér finnst ég flott og fín þegar ég spranga um í þessu bjútýi…

    5

    Rómantíkin er sko ekki langt undan…

    7

    Var ég búin að segja ykkur frá öllum blúndunum sem mér finnst svo yndislega fallegar…?

    8

    …og pífunum oooohh svo rómó…

    9

    Töskublúndubjútýið…

    11

    ❤ ❤

    12

    Hér hafið þið nú fengið kynningu á kjól númer 53, sem er algjört uppáhald…

    10

    Blúndu og pífukveðja úr Hafnarfirðinum ❤

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Sólin mætt…

    ágúst 9, 2014

    æi þar sem sólin skín svo skært á þessum laugardegi þá getur maður ekki annað en dregið allt fram sem tilheyrir sól á svalirnar…

    Maður kann nú að láta fara vel um sig í hengirólunni og með réttu tímaritin sko… ❤

    sól1

    Ég keypti þessa hengirólu í fyrra og þá var litaþemað svolítið líflegra en í ár.  í ár er ég með blúnduþema þ.e ég klæddi róluna í blúndudúk og setti kodda í stíl í hana líka. þar sem klukkan var enn svo“ lítið“ þá var bara vatn á boðstólnum… 😉

    stóll

    Það er ótrúlega þæginlegt að hanga svona í sólinni…

    stóll2

    oooohhh…. svo notalegt….

    stóll3

    … og rétti koddinn fyrir enn meiri notalegheit….

    stóll4 stóll5

    lífið er yndislegt…

    stóll6

    ….og ég nýt þess ❤

    stóll8

    njótið dagsins, kveðja Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Spegill, spegill hermd þú mér…

    ágúst 6, 2014

    Jæja þá fer maður nú að detta inn í þetta daglega, þar sem sumafríið er á síðustu metrunum. En mér var gefinn svoooo fallega ljótur spegill um daginn, að ég hef verið frekar óróleg að geta komist í að gera eitthvað fyrir hann.  Fyrst var löng bið í að komast til að mála gripinn og síðan bið eftir speglinum sem ég þurfti að panta í´ann… 🙂 Skoðum „nokkrar“ myndum af gripnum…

    Svona leit hann út greyið þegar hann flutti heim til mín…  Ég límdi á hann smá skraut áður en málingarvinnan hófst.

    1

    þarna er búið að skella á þessa elsku kalkmálningu og verið að bíða eftir speglinum…

    2

    Ég er rosalega ánægð með útkomuna á litla ljóta andarunganum mínum…

    3

    …og hann smellpassar svo vel inn í herbergið, sem geymir fullt af gömlum minningum ❤

    4

    Og þessi er alltaf jafn pollrólegur í glugganum…

    5

    …gamli skírnarkjóllinn sem ég saumaði þegar ég var 14 ára…  og fleiri gamlir kjólar  og skór ❤   og hér er spegillinn mættur!!

    6

    Antik?  😉 …litlar treyjur sem mamma saumaði á mig þegar hún gekk með mig…  ❤ og fullt af dýrgripum…

    7

    Mér finnst hann flottur!

    8

    …spegilinn og mynd yfir svæðið…

    9

    …og mynd af vinkonu minni Marilyn Monroe þar sem hún er að „sjæna“ sig til fær að sjálfsögðu að vera meðal minninganna…

    11

    Hver segir að gúmmímotta sé ekki flott inn í herbergi?

    12

    Hús og híbýli og hlýtt teppi sem bíða eftir kósý vetrarkvöldunum…

    13

    Púðinn með okkur hjónunum á…

    14

    Mynd af  Gunnu ömmu, en hún átti þennan flotta hárbursta ❤

    15

    Er þetta ekki bara nokkuð kósý herbergi og það er fullt af yndislegu dýrgripum og minningum ❤ ❤

    16

    …og ein svona í lokin, fyrir og eftir mynd af Hvíta svaninum mínum ❤

    10

    kveðja Gunna

     

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Kjóll 52#

    ágúst 3, 2014

    sumar og sól er það sem kjóll vikunnar kallar eftir 🙂 þetta er skósíður léttur kjóll og mjöööög þæginlegur ferðakjóll ❤

    1

     

    2 3

     

    sumar og sólarkveðjur úr „drullunni“ á Ísó…

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Kertaljós…

    júlí 30, 2014

    jæja það er að renna upp kertavertíðin og þá er nú eins gott að vera með allan staðarbúnað við hendina…  Ég fór eitt rökkvað kvöld í myndavélaleiðangur um íbúðina og myndaði kertaljósin… ❤

    Rómantík og rólegheit…

    1 2

    kertaljós, blúndur og kósý, er hægt að biðja um meira…

    4

    í rökkurró…

    5

    6 7

    hummmmmmmmm…..

    8 9 10 11 12

    drungalegur kvöldhimininn í baksýn…

    13

    síðsumarkvöld…

    14

    …og ein mynd af vinkonu minni 🙂 ég fann þessa bók á bókamarkaði og fékk hún að koma með mér heim….

    15

    Kveðja úr rökkurró ❤

    Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Sófaborð fyrir og eftir meðferð

    júlí 29, 2014

    Við hjónin  keyptum voða sætt sófaborð fyrir síðustu jól í þeim Góða. Siðan hefur  staðið til að gera eitthvað fyrir blessað borðið … og þar sem ég var svo heppin að sólin sýnir sig frekar lítið þessa dagana 😉 nú þá voru ermar brettar upp og borðið pússað létt…

    Borðið var dulítið sjoppulegt með allskyns blettum og hringjum, sem ég hef  falið með bökkum pífum og dúllum!  En svona leit borðið út fyrir meðferðina hjá frúnni…

    borð1

    Ég blandaði saman 1/4 bolla af eplaediki og 1/8 bolla olifuolíu  (fann þessa uppskrift á Pinterest) og nuddaði borðið létt með þeirri blöndu, ég notaði fínan pottasvamp. þurrkaði síðan yfir með bómullarklút og fór svo aðra umferð með blöndunni og þurrkaði síðan aftur yfir borðið.  Og vitið bara hvað, allir blettirnir á borðinu hurfu… 😉

    borð2

    Nú þegar borðið hafði jafnað sig á meðferðinn hjá frúnni, nú þá var ekkert eftir nema að skella einhverju ofanáða ❤

    borð3

    Finnst ykkur ekki bara hafa tekist vel til?  Ég er nú samt ekki alveg hætt með borðið, því mig langar til að mála neðrihlutan á því hvítann -en halda borðplötunni í viðarlit 🙂

    borð4

    Húsmæðrataktakveðja úr Hafnarfirðinum… ❤

     

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Rigningar-dudd í þvottahúsinu

    júlí 28, 2014

    Ef rigningardagar eru ekki rétti tíminn til að snuddast og duddast í tiltekt og ýmsum inniframkvæmdum, nú þá er enginn tími réttur… 😉 Ég tók mig til á einum slíkum og henti mér í smá tilekt í þvottahúsinu -undarleg hvað það sogast drasl og dót inn í slíkt herbergi! jæja það er víst önnur saga 😉 En allavegana er ég  með mýkingarefni í TRÖLLAbrúsa og ég þoli ekki það, að ég virðist verða alveg stjórnlaus þegar ég reyni að hitta í mýkingarefnaopið í þvottavélinni og puða vökvanum út um allt… Svo frúin lagði höfuðið í bleyti og opnaði nokkra skápa til að sjá hvort þar leyndist einhver hókus-pókus lausn 🙂 og úlala lausnin lá á lausu inni í einum þeirra…

    …en þar beið líka þessi fína glerflaska, svartri málningu var skellt á tappann, krítartöflulímmiði límdur á og herlegheitin merkt! þið sjáið stóra,stóra trölladúnkinn á einni myndinni… 😦

    1flaska

    Frú bráðlát fór offörum í að mynda áður en tappinn var þornaður…  -en svona er maður nú bara 😉

    2flaska

    Ég er bara ánægð með nýju mýkingarefnisflöskuna mína og nú er sko ekkert mál að ráða skammtastærðinni sjálfur…

    3flaska

    Mjúkar kveðjur úr Hafnarfirðinum

    Gunna 🙂

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Kjóll 51#

    júlí 27, 2014

    Kjóll vikunnar er eldgamall eða þannig.  Þetta er sumarkjóll og ég hef t.d.alltaf tekið hann með þegar ég hef farið til sólarlanda fyrir utan það að vera í honum þegar það er „heitt“ hér á Íslandinu og það er líka svakalega gott að ferðast í honum á sumrin… Kjóllinn er úr þunnu og þæginlegu bómullarefni. Upprunalega var hann alveg skósíður en ég stytti hann… 😉

    1

    Ég er búin að nota hann gasalega mikið og eru litirnir aðeins farnir að dofna 😉 en ég druslast samt í´onum því hann er dáldið uppáhalds ❤

     

    2

     

    kveðja úr Hitabeltisrigningarsvæðinu… 😉

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Meira spennandi úr Spennandi

    júlí 25, 2014

    Ég bloggaði um daginn um að ég fór  í fallegu verslunina Spennandi og ég get lofað ykkur því að það er sko SPENNANDI! Ég fór aftur í gær en þá var útsala og ég tók smá með heim sem ég mun segja betur frá síðar 😉 Eeeen um daginn fjárfesti ég í svuntu, já  þið lásuð rétt, sú með fáu húsmæðragenin fékk sér svuntu!!! Ég get sagt ykkur það, að þessi svunta getur sko vakið löngun í að stússast í eldhúsinu, hún er svo dúlluleg… ❤ kíkjum á bjútíið…

    Sjáið bara hvað hún er falleg, pífur og puff út um allt!!  og sjáíð vasann maður minn ooohhhh…. ælovit!

    1

    Mann tekur sko ekki niður þó maður klæðist þessum „eldhúsklæðnaði“ yfir sparidressið ha!

    2

    jáhá ég er hrædd um að sumir muni  verða meira viðloðandi húsverkin, þegar þetta „dress“ er í boði…

    3

    Blúndukveðja úr Húsó… 😉

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Úlala rómó…

    júlí 25, 2014

    Ég bara varð að skella hér inn myndum af kerti „gærdagsins“ , sem ég tók þegar rökkrið var skollið á í gærkvöldi… það er bara bjútý ❤

    2a

    kveðja Gunna 😉

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
Fyrri síða Næsta síða

Bloggaðu hjá WordPress.com.

Hleð athugasemdir...
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    Hvítar rósir og rómantík...

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • Hvítar rósir og rómantík...
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar
%d