• Ég sýndi ykkur póst um daginn þar sem ég var svo voða lukkuleg með krítarmiðana mína, sem ég var búin að skella hér og þar á ýmsar krukkur. Nú og svo merkti ég þær með krít. Eeen úbbs krítin þurrkaðist af!!!  Ég gerði mér því ferð í Föndru og keypti mér „krítarpenna“ og nú eru krukkurnar kyrfilega merktar. Það er að vísu hægt að ná blekinu af með vatni, en það þarf meira til en smá „káf“  eins og með krítina 😉

    Svona voru miðamerkingarnar orðnar, daufar og ólæsilegar…

    1

    Nýji penninn minn mættur í hús og tilbúinn í verkið…

    4

    AAAAAAH…  þetta er betra!

    2

    …og þetta 😉

    3

    …og nú gat ég bara ekki hætt…. ❤

    5

    Broskveðja

    Gunna

  • Mér finnst afskaplega gaman að fara í svona „húsmæðrabúðir“ ekki af því að mér finnist svo gaman að baka eða þannig 😉 heldur af því að þar finn ég stundum sniðuga hluti sem ég get nýtt í mínu brasi. Þannig fór líka þegar ég skellti mér inn í eina slíka í Brighton um daginn. Þar fann ég líka þetta flotta mót, sem steypa á sykurmassaskraut í…  eeeeen þetta var einmitt það sem ég hafði verið að leita að hér í föndurbúllum, til að steypa mér rósettur í, bæði úr leir eða gifsi. Heppna ég!

    Sko hér er frumraunin gerð úr gifsi… ég er voðalega lukkuleg með’etta!

    1

    Hér er mótið fína, það er mjúkt gert úr sílikoni…

    2

    …hér er ein rósetta tilbúin og önnur í lögun.

    3

    Gifsið virðist alveg vera að gera sig, en ég ætla að prófa að gera  nokkrar úr steinleir og brenna svo. Það verður spennandi að sjá hvað kemur út úr því.

    4

    Ég festi gifsrósettuna á tréramma sem er utan um spegil sem ég á og þetta kemur bara svakalega flott út.

    5

    Bráðum verða svo rósettur komnar á allt hér á heimilinu hehehehe…. 😉

    6

    Kveðja úr gifsrykinu…

    Gunna

  • þar sem sólin skín í dag inn um gluggana og minnir óþarflega á að þurrka þurfi af 😉 þá er það sumarkjóll, sem er kjóll vikunnar að þessu sinni.

    þessi er sko gasalega þæginlegur og sætur…

    1

    Hálsmálið er mjög smart og hlýrarnar rykkjast skemmtilega yfir axlirnar…

    2

    ég bara elska svona pífur og puff…

    3

    Hálsmenið sem er ofsalega mikið uppáhalds, passar þetta líka vel við!

    4

    Litirnir eru skemmtilega glaðlegir og maður getur valið úr þessum fallegu litum á sokkabuxur til að vera í við ❤ Ekki leiðinlegt það!

    5

    Þessi er að sjálfsögðu UPPÁHALDS ❤

    6

    Sólarkveðja Gunna

  • Þegar ég skrapp til Brighton um daginn 😉 þá heillaðist ég alveg af gamla bænum og öllum þeim fallegu byggingum sem þar voru. Svo voru líka innan um litlar sætar búðir alveg í mínum anda 🙂 ein þeirra var workshop lítil falleg búð  með tveimur alveg yndislegum kaupmönnum.  Í þessari búð langar manni mikið í margt… ég keypti mér m.a emeleraðar skeiðar til að setja í þvottaefniskrúsirnar mínar. Það fór reyndar fleira með heim úr þessari búð, sem þið fáið að sjá seinna 😉

    Ég keypti mér sitthvora stærðina, en hefði sko alveg viljað taka tvær af hvorri. En maður kann sig nú…. eða þannig.

    1

    Hér eru þær mættar á planið og tilbúnar að vinna verkin…

    23

    smá myndavélatjekk yfir svæðið…

    4

    Uppi á þurrkaranum trónir emuleruð kanna á emuleraðri skál sem fékk að koma með heim úr söstrene Grene…

    5

    seinna tjekk! ok það virðist allt vera í orden hér á bæ 😉

    6

    Ég setti „stoppmottu“ undir skálina svo hún kæmi ekki fljúgandi ofan af þurrkaranum, þegar þvottavélin setti vindinguna á fullt swing!!!

    7

    það koma fleiri Workshop fréttir frá frúnni síðar.

    kveðja  úr þvottaherberginu

    Gunna

  • Eitt af því sem hefur átt tíma minn og huga síðustu vikur er nýja húsið okkar. Við festum kaup á ofsalega fallegu gömlu húsi um daginn ❤ Þetta hús er byggt á Ísafirði 1903 sem skólastjórahús. Við erum búin að fá húsið afhent, eeeeeen við flytjum ekki inn í það fyrr en í júlí 2015  eða eftir 9 mánuði!!!!! Frúin er því á fullu að plana og pæla og húsbóndinn gantast með það að konan verði nú búin að breyta nokkrum sinnum áður en kemur að flutningi… mér finnst hann sko ekkert fyndinn 😉 Ég má nú til með að leyfa ykkur að dáðst að nýja fallega húsinu okkar með mér…

    Hér er gestahliðin á húsinu þ.e. framhliðin og svo glittir í sólskálann á hliðinni…

    1hús

    …og teikningin af sömu hlið… ❤

    1

    …og vangasvipurinn…

    4hús

    …og teikningin…

    2

    er það ekki bjútý?  Gluggarnir eru sko spennandi verkefni fyrir frúna…

    3hús

    Ég get samt lofað ykkur því, að ruslatunnurnar verða sko ekki staðsettar þarna…!!!

    5hús

    Þessa vetrarmynd varð ég að stelast til að hafa með, en ég fann hana á netinu 😉 jiiii hvað það verður notalegt að sitja í hengirólunni minni,  inni í sólskálanum með heitt kakó ❤

    6hús

    kveðja úr draumheimum…

    Gunna 😉

     

  • Halló, halló konan er mætt aftur eftir laaaangt hlé. Það er sko búið að vera miiiiikið að gera á STÓRA heimilinu 😉 meðal annars var ömmuhlutverkið tekið mjög alvarlega eina vikuna og svo skrapp frúin til Brighton í vinnu- og skemmtiferð. þannig að allt blogg var sett til hliðar 🙂 jæja en hér er mættur kjóll no. 59.  Hann var keyptur í Kjólar og konfekt og fékk ég hann í afmælisgjöf. Hann er algjört æði rósóttur og smart ❤

    3

    …og litirnir í´onum eru svo glaðir…

    4

    …sniðið er líka mjög gott…

    5

    hann er baaaara æðislegur…

    6

    ælovit ❤

    7 8

    Þessi er sko klárlega einn af mínum uppáhalds…

    9

    Nú fer bloggið mitt að vakna aftur

    kveðja Gunna

  • Úlala 58 kjólar frá frúnni og enn eru nokkrir til sem ekki hafa verið myndaðir… 🙂 en kjóll vikunnar er voðalega sætur, hann getur bæði verið sumarkjóll og líka flottur þegar að létta þarf lund yfir drungalegri daga… ❤

    Kjóllinn er fallega grár, sem er einn af mínum uppáhaldslitum.  hehehe ég á svoooo marga uppáhaldsliti, en það má alveg 😉  en ég kaupi ekki brún föt og myndi ekki samþykkja brúnan bíl á heimilið 😉

    1

    hann er með góðu sniði, tekin saman að aftan með belti…

    2

    …gasalega lekkert…

    3

    …

    6

    Það er tjullundirkjóll undir þessum fallega kjól, og það er ótrúlegt hvað þetta gerir fyrir kjólinn…

    4

    bara flottur

    8

    fellingar í mittið… -sko á kjólnum 😉

    9

    …er nokkuð skrýtið að maður haldi upp á svona fallegan kjól?

    10

    kjólakveðja úr rokinu,

    Gunna

     

  • Ég tók smá rúnt um íbúðina  á sunnudaginn, með myndavélina og ég áttaði mig á að hér er kannski dulítið  af blúnderýi…          Kíkjum betur á´etta…

    „Drottningin“ er að sjálfsögðu þessi útsaumur á „kommóðudúk“ sem langömmusystir mín gerði. Þessi dúkur er mitt uppáhalds… en hann virkar voðalega krumpaður á þessarri mynd… 😦

    1

    sjáið bara listaverkið…. ❤

    2

    …og meira af dúkum…

    3

    þessi dúkur er að reyndar gamall gardínukappi…

    5

    Þennan dúk sem gamla saumavélin mín geymir, gerði ég fyrir möööööööörgum árum.

    6

    Borðstofuborðið skartar þessum líka flotta löber…

    7

    …öðruvísi blúndudúkur…

    8

    …og útsumað puntuhandklæði…

    9

    …enn einn dúkurinn, handir  bara og bíður verkefna…

    10

    Þessi dúkur hitti gæru… 😉

    11

    Það eru 3 svakalega stórir gluggar í stofunni hjá okkur og ég hef því verið að prófa að nota löbera sem viðbótar „gardínur“ til að loka smá fyrir þetta svaka gímald…

    12

    …og annar löber…

    13

    talandi um og kvartandi um að ég sé með svo stóra glugga, þá er það tíbískt fyrir mig að skella glugga í glugga…

    14

    Þessi hilla fékk smá viðbætur til sín í vikunni sem leið…

    15

    …það eru þessar flottu krukkur. Sú stærri úr Pier og sú minni úr litlu Garðabúðinni, voða krúttilegar og smart undir sultutauið….

    16

    …og þessa flottu platta fékk ég í Leir og postulín.

    18

    Í litlu garðbúðinni sem er alveg yndisleg búð,  fékk ég þennan flotta disk á fæti sem ég er með kúpulinn á…   Það  sést líka í nýju (gömlu) flottu viktina sem mér áskotnaðist um daginn.

    19

    Dúkkustellið mitt í góðum félagskap ❤

    20

    Njótið dagsins…

    kv. Gunna

     

  • Þessa viku bíð ég upp á heklaðann svartann kjól. Hann var að vísu appelsínugulur í upphafi, en frúin litaði hann 😉

    Hann er með mjög flottu mynstri og nýtur það sín best með því að hafa hvítan undirkjól innan undir…

    1

    Ég játa það nú að ég fer ekki oft í þennan flotta kjól, en ástæðan er að brussan ég er alltaf að festa mig í öllum húnum og hönkum þar sem mynstrið er svo „götótt“…

    2

    Kannski maður reyni að vera aðeins dömulegri, svo maður geti notað kjólinn meira í framtíðinni 🙂

    3

    Hann er bara nokkuð smart þessi ❤

    4

    Kveðja Gunna 🙂

  • Ég bara verð að sína ykkur að dúkahringurinn sem ég sagði ykkur frá um daginn, er búinn að eignast bróðir…  og þriðji bróðirinn er í meðferð… 😉

    1

    Mér finnst útkoman mjög skemmtileg þar sem dúkarnir eru svo ólíkir annar prjónaður og hinn heklaður…

    2

    Andstæðurnar nótt og dagur eiga vel við…

    3

    Njótum dagsins, kveðja Gunna