Úlala 58 kjólar frá frúnni og enn eru nokkrir til sem ekki hafa verið myndaðir… 🙂 en kjóll vikunnar er voðalega sætur, hann getur bæði verið sumarkjóll og líka flottur þegar að létta þarf lund yfir drungalegri daga… ❤
Kjóllinn er fallega grár, sem er einn af mínum uppáhaldslitum. hehehe ég á svoooo marga uppáhaldsliti, en það má alveg 😉 en ég kaupi ekki brún föt og myndi ekki samþykkja brúnan bíl á heimilið 😉
hann er með góðu sniði, tekin saman að aftan með belti…
…gasalega lekkert…
…
Það er tjullundirkjóll undir þessum fallega kjól, og það er ótrúlegt hvað þetta gerir fyrir kjólinn…
bara flottur
fellingar í mittið… -sko á kjólnum 😉
…er nokkuð skrýtið að maður haldi upp á svona fallegan kjól?
kjólakveðja úr rokinu,
Gunna