Í dag er það sko „Leðurkjóll“ í boði hússins… 😉 eða þannig sko…
Þessi kjóll er voðalega mjúkur og næs, hann flokkast í svona betri fataflokkinn, held ég…
skrautlegur…
Sorrý en sunnudagurinn kom degi of seint á þessum bæ 😉
kv. Gunna
Ég var að flandrast á facebookinu í gær og skoðaði þar síðu sem Gamlir munir eiga þar rakst ég á svakalega fallega heklaða kappa, sem ég heillaðist af. Ég hafði samband við hana Herdísi sem er með fornsölu heima hjá sér og fékk ég að koma til að skoða kappann með puttunum… 🙂 það fór nú svo að ég fékk báða kappana sem eru hvor um sig ca. 2 metrar að lengd, með mér heim. En í framtíðinni á fá þeir að prýða gluggana í nýja húsinu okkar ❤
Hér eru sýnishorn, ég á að sjálfsögðu eftir að þvo þá og stífa. Svo ætla ég að sauma þá neðaná bómullarefni, þannig að kappinn verði breið blúnda!
Mig langar mikið til að fá „kristalla“ til að hengja neðan í kappann, en ég hef ekki fundið neina svona glerkristalla þó ég hafi leitað víða… en kannski vitið þið hvar ég fæ svoleiðis skraut!! Hugmyndina fékk ég á netinu ( 2.bp.blogspot.com), þið sjáið hana hér fyrir neðan…
Ég fann þessa kristalla í skúffu hér heima og langar í eitthvað svipað…
Þessi blúnda er svakalega falleg…
Frú óþolinmóð á nú dálítið erfitt með að bíða eftir því að geta nú mátað blúndukappann í tilvonandi glugga og virka því 8 mánuðir órafjarri…
Ég er rosalega glöð í hjarta mínu að „þurfa“ ekki að hekla þennan blúndukappa sjálf… nóg að þurfa að stífa og strauja hann fínan ❤
Mjúkarkveðjur inní helgina, Gunna ❤
Jæja hvað haldið þið að frúnni hafi dottið í hug núna? Jú sko ég fékk mér te í vinnunni gær og á miðanum sem hangir við tepokann voru svo sæt „skilaboð“ að ég bara varð að taka pokann með mér heim og gera eitthvað meira með´ann 🙂
Hérna er flipinn góði sem fékk að koma með mér heim…
..og einhvern veginn fékk ég þá flugu í hausinn að finnast ég verða að teikna nýja fallega húsið mitt á tepokann. Svo ég byrjaði á að rissa það upp…
…krotaði svo ofaní með tússi,ok þetta er nú ekkert eitthvað súperdúber, en þið verðið að viðurkenna að hugmyndin er góð 😉
ég var búin að sjá fyrir mér að nota vatnsliti, eeeenn þeir eru úti í bílskúr í einhverjum kassanum þar! Nú svo ég tók bara tréliti og fyllti uppí…
Frú bráðlát skellti herlegheitunum í ramma sem hún fann inni í föndurherbergi (merkilegt hvað hægt er að finna þar, í þessarri líka litlu skonsu…) en ég sé það að ég þarf annann og minni ramma utan um tepokann minn.
þetta er bara „fjarska“ fín mynd… ég held að ég prófi að komast í smá vatnsliti og „sjæni“ aðeins til litina og fylli aðeins betur uppí umhverfið…
…lítill poki í stórum ramma -ekki alveg að gera sig! Verð að gera mér ferð fljótlega í IKEA og skoða kjúttlegann ramma…
…smá viðbætur við blogg dagsins, þar sem ég komst í vatnsliti og klíndi smá viðbót á pokann… 😉
Jæja njótum öll dagsins í dag, því hann kemur aldrei aftur…
kveðja Gunna.
Í dag ætla ég að deila með ykkur mjööööög sniðugri hugmynd 😉 Þetta er sko frábær hugmynd fyrir þá sem eru löööngu búnir með jólanammið sem keypt er lööööngu fyrir jól… ❤
Sko þegar frúin var í fríhöfninni um daginn freistaðist hún í að kaupa sér nammigott sem er nauðsynlegt með kaffisopanum þegar maður fær góða gesti… Nammið er að vísu ekki búið, en það fékk dvalarleyfi í fallegri glerkrukku. Þá fékk frúin líka þessa snilldarhugmynd. Svona lítur nú tóm nammidolla út, fyrir ykkur sem ekki hafið séð svoleiðis 🙂
Ég tók pappírinn innan úr…
…ég fann útprentað A4 blað af sætri jólamynd inni í föndurdótinu mínu, ég snyrti það smá til og…
…setti það síðan inní dolluna. Svo fann ég mér rafkerti til að setja inní…
…sko búin að kveikja upp, og fæ lika þessa dásemdar birtu í „nýju“ luktina mína ❤
sjáið bara, hérna er þessi líka flotta endurnýting á plastinu. svo getur maður bara skipt um mynd eftir „behag“… 😉
Ég vona að ykkur finnist þetta jafn sneddý og mér…
kveðja Gunna
Kjóll vikunnar er af mér eins og hinir kjólarnir, nema hvað þennan hefur frúin ekki farið í í möööörg ár 😉 Ég keypti mér lítla gínu í RL um daginn og ákvað að skella einum að „gömlu“ kjólunum mínum á hana… ❤
Þennan kjól notaði ég síðast fyrir ca 50 árum eða svo….
Kjóllinn er í góðum félagskap með öðrum „gömlum“ kjólum. Af mér og dóttir minni og svo skírnarkjóll sem ég saumaði þegar ég var 15…
Sætur gamall sparikjóll ❤
Hér sést í nokkra gamla kjóla sem mamma saumaði á mig nýfædda ❤
„spariskór“ af dótturinni ❤
Á „stóru“ gínunni er flotti blúndusumarkjóllinn minn frá Spennandi en hann fékk smá viðbót þegar ég kom heim frá Brighton en þar keypti ég þessa fallegu blúndusólhlíf. ég bara varð!!!
oooohhh…. er hún ekki falleg….
… mér finnst blúndan vera alveg svakalega falleg á sólhlífinni…
Ég á nú eftir að finna út hvernig best er að festa hana, en það kemur . Ég bara varð að smella nokkrum myndum af´enni mér finnst hún svo flott með kjólnum fína 😉
Bestu kveðjur úr kjóladeildinni…
Gunna
Var ég nokkuð búin að segja ykkur að ég skrapp um daginn til Brighton 😉 hehehe okey þið voruð semsé búin að heyra af því… eeeen ég var sko ekki búin að sýna ykkur það sem frúin sett í handfarangustöskuna sína og passaði uppá eins og ungabarn!!! Maður er nú kannski bilaður, en ég bara VARÐ að taka þessar fallegu glerkrúsir með mér heim… Þið eigið sko eftir að skilja mig þegar þið skoðið myndirnar af þeim.
Krúsirnar sem fengu þessa sérmeðferð eru tvær ein stór og önnur „minni“, svo kostuðu þær svo „lítið“ maður bara getur ekki sleppt svona tækifærum ha? Sú langa kostaði um 5000 og sú minni 1500, þetta var sko enginn peningur fyrir þetta verð…
Sjáið þið bara… þær eru bara bjútý. Litli sæti fuglinn á lokinu fullkomnar fullkomnleikann ❤ og sú „minni“ hún er nú ekki síður smart…
ummmmm…. er hann ekki dásamlega sætur…
Ég er svo glöð með að hafa druslast með þær heim með mér, ég hefði sko AAALDREI gleymt þeim…
ahah… þarna eru þær komnar inn í krukkusamfélagið á heimilinu og samkeppnin er hörð…
…voruð þið búin að sjá fuglinn… 😉
Það verður nú ekki vandamál að nýta þessar himnesku krukkur á mínu heimili… ❤ ❤
Lifið í lukku, en ekki í krukku…
kv. Gunna
í flottu Workshop búðinni Í BRIGHTON sem ég sagði ykkur frá hér um daginn 😉 fékk ég þessi fallegu gamaldags kefli… sko það er alveg hægt að falla fyrir þeim 😉
þeim var stillt upp hjá gamalli saumarvél í stofuglugganum á meðan frúin hugsaði hvað væri flott að setja á þau…
þau eru voða krúttileg og vekja upp gamlar minningar, þegar maður lék sér af svipuðum trékeflum hjá ömmu ❤
sko þau urðu ekki lakari þegar búið er að fylla á þau
síðdegissólinn er alveg sammála mér með bjútýið…
…
oooohhhh eru fallegu púðarnir mínir frá Lín Design ekki yndislegir?
Ein mynd svona í lokin af stofuglugganum mínum í ljósaskiptunum og fullum af dóti!!!
Eigið nú góðan dag, kv. Gunna
Þegar maður ætlar að gefa einhverjum sem manni þykir rosalega mikið væntum litla sæta gjöf, þá er mjög sniðugt að sauma utan um gjöfina… kíkjum á´etta…
Það skemmtilega er að maður getur notað hvaða pappír sem er t.d eru auglýsingabæklingar og blöð tilvalin. Ég átti til doppóttann pappír sem er dálítið stífur og ber sig því vel 🙂 Ég saumaði fyrst botninn og aðra hliðina, síðan setti ég gjöfina (pening) ínní og saumaði svo bara fyrir. Þetta er mjög fljótlegt og það er öðruvísi að gefa svona pakka.
Það er ekki svo nauið hvaða litur á tvinna er notaður, það er jafnvel flottara að hafa skrautlegar lit á honum.
svo lítið mál…
Lítil og sæt gjöf tilbúin að komast í hendur afmælisbarnsins ❤
❤ ❤
Vona að einhver nýti sér þessa sneddý hugmynd…
kveðja Gunna