Skrautlegt rusl…

Í dag ætla ég að deila með ykkur mjööööög sniðugri hugmynd 😉 Þetta er sko frábær hugmynd fyrir þá sem eru löööngu búnir með jólanammið sem keypt er lööööngu fyrir jól… ❤

Sko þegar frúin var í fríhöfninni um daginn freistaðist hún í að kaupa  sér nammigott sem er nauðsynlegt með kaffisopanum þegar maður fær góða gesti…  Nammið er að vísu ekki búið, en það fékk dvalarleyfi í fallegri glerkrukku.  Þá fékk frúin  líka þessa snilldarhugmynd.  Svona lítur nú tóm nammidolla út, fyrir ykkur sem ekki hafið séð svoleiðis  🙂

1

Ég tók pappírinn innan úr…

2

…ég fann útprentað A4 blað af sætri jólamynd inni í föndurdótinu mínu, ég snyrti það smá til og…

3

…setti það síðan inní dolluna.  Svo fann ég mér rafkerti til að setja inní…

4

…sko búin að kveikja upp, og fæ lika þessa dásemdar birtu í „nýju“ luktina mína ❤

7

sjáið bara, hérna er þessi líka flotta endurnýting á plastinu. svo getur maður bara skipt um mynd eftir „behag“… 😉

9

Ég vona að ykkur finnist þetta jafn sneddý og mér…

kveðja Gunna

6 athugasemdir við “Skrautlegt rusl…

  1. Þetta er frábær hugmynd. Ég nota svona dollur með pappír inní til að nota sem gjafaumbúiðir fyrir mjúku pakkana. Vekja alltaf lukku.
    En þetta er skemmtilegt. Hvar fékkstu svona stórt rafkerti?

    Líkar við

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s