Skip to content

Hvítar rósir og rómantík…

    • Um mig

recent posts

  • Baðherbergið framh.
  • Baðherbergið málað…
  • Ágúst, ljós og rómantík…
  • Svefnloftið ný málaði…
  • Garðvinna, dittað að og málað

about

  • Twitter
  • Facebook
  • Instagram
  • Kjóll 65

    nóvember 23, 2014

    Kjóll vikunnar er mættur á svæðið skoðum hann…

    Þessi er sko léttur og þæginlegur, hann er líka mikið uppáhalds ❤

    IMG_2675

    Kjóllinn er eiginlega bútasaumskjóll, gerður úr allskonar efnum og blúndum…

    IMG_2676

    ❤

    IMG_2677

    gasalega lekkert og gott snið 😉

    IMG_2678  IMG_2681

    Kjólinn nota ég hvundags enda er hann svo þæginlegur til að skottast í…

    IMG_2679

    Það fer nú að styttast í að allir kjólarnir mínir séu komnir á mynd en þó verða nokkur olbogabörn sem ekki fá að vera með…

    knús úr kjólahrúgunni…

    Gunna ❤

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Dúkkur í dekri

    nóvember 22, 2014

    jæja Frúin er mætt aftur og nú með nokkrar dúkkur sem hún verslaði á útsölunni hjá Ásbirni Ólafssyni á dögunum 😉 Dúkkurnar eru í Tildu-síl en þurftu smá uppliftingu ❤

    hérna eru tvær af þeim ég keypti sko þrjá og eru hér ennþá  hálf strípaðar að frúnni fannst…

    IMG_3615 IMG_3616

    …og hinar tvær…

    IMG_3618 IMG_3620

    Hér er frúin búin að skella skvísunum í buxur, prjóna á þær trefil og ýmislegt smálegt komið á þær…

     

    IMG_3673

    vængir og alleg komið…

    IMG_3676

    ég setti smá loðkant á „vettlingana“ og það setur flottan svip á lúkkið…. ❤

    IMG_3678 IMG_3679

    Þrjár af þeim mættar…

    IMG_3692

    mér fannst þær endilega verða að fá skauta á lappirnar, svo ég beygjaði og beygði vír…

    IMG_3693

    smá andlitslyfting -túss og kinnalitur 😉

    IMG_3696

    þær eru bara svooooo sætar…

    IMG_3698  IMG_3702

    og svo er bara beðið stilltur eftir fleiri jóla jóla…

    IMG_3704

    …kannski skella þær sér smá á skauta til að stytta biðina…

    IMG_3708 IMG_3710 IMG_3711

     

    fyrir og eftir myndir í lokin… ég er sátt ❤

    IMG_3622   IMG_3703

    Eigum öll góðan dag,

    kveðja Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Maður fær bara stjörnur í augun…

    nóvember 16, 2014

    í dag er enginn kjóll úbbs… Frúin bara steingleymdi að smella mynd af kjól vikunnar 😦 það er bara svooooo mikið búið að vera að gera annað! eeen þar sem nokkrar stjörnur hafa komið sér vel fyrir í stofunni, þá fór myndavélin á smá flakk.

    Þarna sitja þrjár góðar uppi á skáp…

    IMG_1

    þær tvær aftari eru pappastjörnur, en sú fremsta er úr járni.

    IMG_2

    úlalala ekki slæmt að hafa ljóstýru hjá og í þeim… ji mér finnst þetta svo rómó ❤

    IMG_3

    dagur…

    IMG_4

    kvöld…

    IMG_5

    svoooo bjútý…

    IMG_6 IMG_7

    æi þessi situr bara aaalein, en flott er´ún og nýtur sín því bara betur 😉

    IMG_8

    mér finnst hún svo falleg á litin ❤

    IMG_9

    hér eru vinkonunar á stofuskápnum baðaðar í dagsljósinu,,,

    IMG_10

    úbbbbsss…og ein stjarnan enn 🙂 Þessa keypti ég í „Þeim góða“ eftir jólin í fyrra og hún á þrjár systur…

    IMG_11

    …og ljósin eru tendruð…

    IMG_12

    það grillir í fuglana mína á greinunum

    IMG_13

    Rökkrið er svo fallegt baðað í ljóstýru…

    IMG_15

    ❤ ❤

    IMG_16

    Kveðja úr sunnudagskyrrðinni, Gunna ❤

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Nýja fallega gluggaskrautið mitt

    nóvember 13, 2014

    Frúin eignaðist æðislegt skrautjárn á helginni og var snögg að skella því út í stofugluggann -svona til bráðabrigða sko!! Þetta nýja flotta skraut fékk ég úr litlu búðinni hennar Soffíu í Skreytum hús og þjónustan er sko ekki slök á þeim bæ, því hún kom færandi hendi alveg heim að dyrum 😉

    En sjáið bara nýja bjútýið mitt….

    1

    Þetta fallega járnskraut á nú eftir að sóma sér vel í nýja gamla húsinu haaa….

    4

    ummmm… ælovit ❤ ❤

    2

    5

    það verður nú örugglega skemmtilegt verkefni fyrir Frúnna að finna heppilegan stað þar sem þetta bjútý fær að njóta sín til fulls…

    7

    …ég bara gat ekki hætt að mynda´ða…

    8

    ooooohh…  finnst ykkur þetta ekki fallegt ❤

    9

    Njótum dagsins, kveðja Gunna ❤

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Kjóll 64#

    nóvember 9, 2014

    Kjóll vikunnar er rauður skokkur, gasalega léttur og þæginlegur…<3

    IMG_2687

    …svo gerði ég líka þetta flotta hálsmen við´ann…

    IMG_2688

    …

    IMG_2689

    …vúúúúú…

    IMG_2691

    kjóllinn er mikið notaður og mikið uppáhalds…

    IMG_2692 IMG_2694

    ❤ ❤ ❤

    IMG_2695

    kjólakveðja úr hrauninu í firðinum…

    Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Hreindýrahjörð

    nóvember 4, 2014

    Frúin hefur síðustu dagana verið að draga fram  hreindýrahjörð inn á heimilið. Æi þau eru svo kjúttleg og sæt,  en hver segir að þau séu bara svona „jóla“ Sko ég veit að fyrir austan eru þau ekkert bara jóla-jóla,  þau  eru þar ALLTAF ójá ALLTAF…!!!!

    Sjáið bara sæti hreindýrapúðinn minn kúrir inni á bekk með  skinnpúða sér til stuðnings…

    IMG_3592

    ooooohhh…  þessi sæta fjölskylda hún er sko ættuð frá Brighton ❤ Frúin á nú eftir að nálgast smá snjó og  falleg tré til frekari skreytingar…

    IMG_3600

    …ok það eru tré í næsta nágrenni 😉 Því flottu rafkertin mín fengu andlitslyftingu með trjám.

    IMG_3601

    Virðulegur stendur Hjörturinn við skógarjaðarinn í glugganum góða! Frúin skipti út Effelturninum fyrir skógarþykknið. Það skapast mjög falleg birta með því að hafa ljós á bakvið…

    IMG_3595

    og sjáið bara, hér er svo önnur fjölskylda mætt, hún er ættuð úr Toys ‘R’ Us… Græni flotti diskurinn passar svo flott við, en að sjálfsögðu fær þessi fjölskylda líka að kynnast smá snjó og einhverjum gróðri þegar nær líður jólum 😉

    IMG_3587

    rökkurró…

    IMG_3598

    Þeir eru tignalegir bræðurnir með hornin sín…

    IMG_3594

    Fjölskyldan  á grænuflöt er bara orðin nokkuð spennt fyrir komandi tímum 🙂 IMG_3584

    Krúttin í horninu…

    IMG_3579

    Er þetta ekki bara nokkuð vel heppnað hjá mér?

    IMG_3591

    Ég bara stenst þau ekki…

    IMG_3577

    Loka myndin sýnir síðdegiskyrrð hreindýranna á bekknum ❤

    IMG_3590

    Bestu kveðjur úr hjörðinni,

    Gunna

     

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Kjóll 63#

    nóvember 2, 2014

    Svartur og smart, þannig er kjól vikunnar best líst 😉

    IMG_2717

    Ég á reyndar annan alveg eins kjól, nema hann er rauður ❤

    IMG_2718

    Kraginn er mjög flottur og klæðilegur…

    IMG_2719

    uppáhalds!!!!!!

    IMG_2720

    ❤ ❤ ❤

    IMG_2724

    flott að leika sér með liti við þennan kjól, en rautt verður þó ansi oft fyrir valinu…

    IMG_2725

    Kveðja út í nýja viku!

    Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Föstudagsblóm í glugga

    október 31, 2014

    Mig langar til að senda ykkur inn í daginn með ljúfa blómakveðju, svona smá á mótivægi á halloweenæðið… ❤

    IMG_2742  IMG_2744IMG_2745IMG_2743

    njótum helgarinnar, kveðja Gunna.

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Fleiri tilraunir við eldhúsbekkinn!

    október 30, 2014

    Áfram heldur tilraunastarfsemin hjá Frúnni.  Nú komst hún yfir nokkra kringlótta glerplatta 😉 Svo sá konan fallega snjókornakransa úr pappír í Föndru á kynningarkvöldinu góða, sem Frúnni fannst passa svona líka akkúrat -heppin ha!

    Glerplattarnir sem mér voru gefnir eru í 2 stærðum, en ég notaðist við stærri týpuna…

    IMG_3543

    Pappírskransarnir er svakalega fallegir og úr þykkum glansandi pappír. Ég notaði MOD úr Föndru til að líma þá á glerið…

    IMG_3544

    …hér er beðið eftir þurrki… 🙂

    IMG_3555

    …svei mér þá ef mér finnst þetta ekki bara koma nokkuð vel út…

    IMG_3558

    …dökkur bakgrunnurinn skerpir myndina…

    IMG_3565 IMG_3570

    …Svo nú er bara eftir að setja gyrni í glerið og svo fara plattarnir í stofugluggann minn með dúkunum mínum… spennó að sjá hvernig það kemur út!

    IMG_3545

    Ég  set svo inn myndir af herlegheitunum þegar allt er komið á sinn stað í gluggann…

    Kveðja út í ljúfan vetrarmorgun, Gunna ❤

     

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Jólavatnsflöskutilraun…

    október 28, 2014

    Ég fór á kynningarkvöld Föndru í síðustu viku og sá margt mjög spennandi. Eitt fór þó með Frúnni heim og það var voða sniðugt efni sem lætur mynd flytjast yfir á t.d. gler eða kerti 😉 nú Frúin bráðláta gekk í verkið eeeeeen ég verð að viðurkenna að þetta virkaði nú dálítið smartara í Föndru ha… :/

    Hugmyndin var að gera „jólalega“ vatnsflösku…

    IMG_3523

    …nú hér er búið maka „líminu“ á mynd og flösku og búið að hita með hárblásara í mjöööööööög langar 10 mínútur!!!!

    IMG_3524

    Svo var það rúmum sólarhring síðar sem pappírsþvottavinnan hófst þ.e. það þarf að nudda pappírinn af! jájá skemmtilegt verk fyrir bráðláta eða þannig…

    IMG_3539

    ….og möööööörgum nuddum og möööööörgum klukkutímum síðar, ég held að pappírinn ség bara endalaust að koma af flöskunni!!!!!

    IMG_3541

    þetta er staðan í dag, þetta verður bara svona langtímaverkefni með daglegu flöskunuddi, ég er sko viss um að myndin verður farin af áður en pappírinn verður horfinn… hefur einhver þarna úti reynt þetta trix????

    IMG_3542

    Bestu kveðjur út í daginn…   Gunna 🙂

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
Fyrri síða Næsta síða

Bloggaðu hjá WordPress.com.

Hleð athugasemdir...
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    Hvítar rósir og rómantík...

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • Hvítar rósir og rómantík...
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar
%d