Jæja kjóll þessarar viku er nú ekki mikið eða oft notaður… Hann er þó sannalega minn eini réttnefndi jólakjóll!
Hóhóhó…. Kveðja Gunna
-
Rosalega líður tíminn svakalega hratt þetta árið…
Ég er svolitið veik fyrir jólatrjám úr gleri og póstur dagsins fjallar einmitt um nokkur slík 😉
Hnotubrjótar fá nú alltaf Frúnna til að fá í hnén…
„Areneldur“ svoooo notalegt… ❤
Hreindýrafjölskyldan í kósýlandi…
Njótum dagsins og góða helgi…
kv. Gunna
-
í dag langar mig að deila með ykkur nokkrum myndum af jólunum í stofunni okkar…
hérna eru glerplattarnir sem ég gerði og sýndi ykkur um daginn…
Hóhóhó…
hér er ein af uppáhaldsbókunum mínum, Saga jólanna ❤ mætt í stuðið…
aren“eldur“ og kósýheit á aðventunni
hér er „fyrir mynd“ úr stofuhorninu og er með hvítt teppi….
…og hér er „eftir mynd“ og jólateppið er búið að leggja sig fyrir jólin…
hljótt og rótt kvöld á aðventunni …
Gunna
-
í dag ætla ég að segja ykkur frá leyndarmáli sem á að fara í jólapakka til lítillar ömmustelpu.
Ég prjónaði sem sagt þennan sæta kjól á yngstu ömmuskottuna mína og mér finnst vagninn framan á toppa þetta allt saman…
sko það á að vera prjónuð dúkka í vagninum en hún varð svo stór og klunnaleg að amman var ekki sátt, svo að hún töllti sér út í búð og keypti bara dúkku sem passar prýðilega ❤
sko bara…
blúndan neðan á setur fallegan svip á kjólinn…
Amman bíður nú bara spennt eftir að sjá litlu skottuna sìna ì kjólnum ❤
Jólaleyndamál ùt í daginn…. Usssssss
kveðja Gunna
-
Kjóll vikunnar er sko alveg flúnkunýr eða svo gott sem 😉 þetta er skokkur gasalega lekkert og þæginlegur og hann fæst í Flash eins og svo margir aðrir kjólar sem ég á…
…ég elska svona hálsmál…
vúbbbss… það er eins og það sé endurskinsmerki á´onum en það er sko ekki!!!
hann er flottur…
þessi skokkur var líka til í rauðu en ég ákvað að gerast djörf og breyta um lit… hehehe
hóhóhó hér sjáið þið tvær góðar á ganginum mínum, kona sem á yfir 70 kjóla verður að eiga a.m.k. 2 gínur… hehehe en nei nei ég gaf elstu ömmustelpunni minni sem er 14 ára aðra gínuna í afmælisgjöf um daginn 🙂
hlýjarkveðjur út í frostið og snjóinn
Gunna
-
Kjóll vikunnar er mjöööööög seinn á ferðinni, ástæðan er að ég var búin að taka slatta af myndum af kjólunum mínum en svo týndust myndirnar mínar… En hér kemur ´ann og hann er sko rauður ❤
Þessi kjóll er meira svona spari…
Bolurinn er útsaumaður, með perlum og pallíettum á voða lekkert…
kveðja þar til næst…
Gunna
-
jæja nú er Frúin búin að setja jólin á stofuskenkinn og þar er rauði liturinn að sjálfsögðu í aðalhlutverki…
Mér finnst þessi dúkur sem ég keypti á rúllu í RL-design, alveg gordjöss…
sveppir og jólatré er það ekki bara málið?
…þessi yndislegu hér fékk ég í Hagkaup og ælovit ❤
jólabókin mín tilbúin til aflestrar… úbbs hver sér földu myndavélina??
Trjástjarnan…
ég bara elska jólin og allt sem þeim fylgir ❤
Gamla fallega klukkan hennar ömmu, er sígild…
eru þetta ekki jólin…
Skenkurinn í lok dags, snemma á aðventunni.
kveðjur úr jólakössunum
Gunna 🙂
-
jæja loksins er´ún hafin ❤ Og nú MÁ spila jólalögin hátt og án þess að hafa heyrnatól og nú þarf maður ekki lengur að skáskjóta sér út um útihurðina, því jólaskrautið gat sést fram á gang… og nú fara jólin aaaalveg að koma 🙂 hóhóhó ælovit
Minn aðventukrans er með svörtum kertum -sko það var nú svartur föstudagur og það er svartasta skammdegið núna, þannig að þetta passar alveg. ég elska hvað kertin eru hjólbeinótt þau eru nebblega dálítið gömul og ég er bara að nýta gamlar birgðir…
Ég setti hreindýr á minn bakka. Datt kannski einhverjum fleirum það í hug?? hehehehe 😉 svo eru þarna jólatréskerti sem ég keypti í flottustu kertabúð landsins, sem er stödd á Eskifirði!!
litlar flöskur halda kertunum uppi og svo eru merkispjöld sem telja niður fyrir Frúnna…
ubbbbsss dulítið blörrað…. Myndavélin hefur örygglega komist í dagatalaflösku Frúarinnar…
En það eru bara rólegheit yfir kransinum mínum í ár…
Njótum aðventunnar…
kveðja og knús Gunna.
-
Jæja kjóll vikunnar er orðinn frekar gamall en hann var síðkjóll og ég stytti hann, því þannig varð hann meira notaður. Efnið er svolítið skrítið eiginlega eins og mjög þunnt apaskinn 😉 þessi kjóll er eins og allir hinir minn uppáhalds ❤
ég saumaði þessi axlabönd til að getað dubbað uppá kjólinn svona til spari…
voða,voða flott 😉
…
ég nota oftast hvítar peysur eða boli undir þennan kjól en þessi er svona meiri spari…
sunnudagskveðja út í rokið og rigninguna, Gunna
-
… aðventuljósin í glugga og á bekki 😉 En ég bara gat ekki beðið lengur og laumaði mínum upp. Það verður líka svo gasalega mikið að gera hjá Frúnni á helginni að hún flýtti sælunni um nokkra klukkutíma… eða daga sóó…
aðventurósirnar mínar eru yndislega fallegar á litinn og ég stóðst ekki freystinguna að versla mér einn vönd…
hóhóhó… sumir mættir á svæðið og gefa jólamöffinskúlunum hýrt auga…
okey ég viðurkenni að aðventuljósið varð að fleiri hlutum, en ég gat bara ekki stoppað…
fallega Boston-glerkrukkan komin með eplafyllingu…
og södd möffins-nissan situr sæl á smjörglerkúplinum…
jólin, jólin…
greni, jólabjöllur og glerstjörnur ælovit… ❤
bjöllurnar og stjörnurnar eru home made af Frúnni…
Þessi bíða spennt eftir jólabakstrinum með Helgu Sigurðar …
… já og það er bara búið að setja tappana í flöskurnar… -en kannski seint að setja þá í tómar flöskur 😉
bakaradrengurinn og daman…
Krílin mín þrjú ❤
elska svona porstulíns bretti og langar í fleiri en minni… veit einhver hvar maður fær svona sætt?
Svona er nú jólabaksturinn á þessu heimili! -viktin bara gerð upptæk af jólaskrautinu!!!!
Fallegar glerkrukkur næstum því tilbúnar fyrir jólavertíðina…
… ❤
jólamöffins sem endist og endist…
púfffff…. sumir eru saddir…
spari smjörkúpan á heimilinu…
…
já sumir eru duglegir í bakstrinum… a.m.k. er viktin þó í notkun 😉
oooohhhh… rósirnar
Þetta fallega ljósaskraut gaf mamma mér fyrir mööööörgum árum og mér finnst það gera fallega aðventuljósið mitt (sem ég fékk þegar ég var 14 ára í jólagjöf frá ömmu minni) enn fallegra ❤
uppáhalds…
skreytum hús með greinum grænum…
jóló…
aðventan komin í startstöðu á þessu heimili…
og serían reddý…
voruð þið annars búin að taka eftir hvað rósirnar eru fallegar? ….nú ókey…
jólaeldhúsgluggin er næstum því tilbúinn… Frúin ætlar reyna að fá eitthvað rautt og fallegt í glugganahlerana…
ahhhh… öndum nú djúft og njótum komandi daga…
kveðja úr jólakössunum, Gunna ❤







































































































