Já ég vissi það! Á síðunni http://shabbyartboutique.com/ færðu fallegt dagatal sem hægt er að prenta út… á þessarri síðu finnur maður líka margt fleira skemmtilegt. Endilega að kíkja þar við…
kv. Gunna
Já ég vissi það! Á síðunni http://shabbyartboutique.com/ færðu fallegt dagatal sem hægt er að prenta út… á þessarri síðu finnur maður líka margt fleira skemmtilegt. Endilega að kíkja þar við…
kv. Gunna
Mig langar svo til að deila með ykkur link að dásamlegum blöðum sem maður getur skoðað frítt á netinu http://shabbyartboutique.com/magazine endilega kíkið á, það þarf bara að smella á það blað sem maður vill skoða..
Ég eignaðist svakalega fallegan púða um jólin og þar sem myndin á honum er svo yndisleg, langaði mig að skipta um og setja sviðaðar myndir á nokkur rafkerti heimilisins. Frúin fór því og grúskaði smá og fann það sem henni líkaði hvað best…
Sjáið nú bara þennan dásemdarpúða, mér finnst hann æðislegur…
…ég byrjaði á að fjarlægja gamlar klæðingar utan af kertunum, en þær verða auðvitað geymdar til betri tíma…
Hér eru svo komnir tveir sætir, sitjandi á grein…
…þeir mæna upp til „stóra“ bróður.
Þessi er örlítið stærri, enda settur á stærra kerti.
Sko hérna eru þeir svo fuglakrúttin mín, bara sætir ❤
Mér finnst rafkertin mjög sniðug, maður getur alltaf breytt um mynd á þeim allt eftir hvernig skapið og stíllinn er hverju sinni…
kveðja út í daginn og helgina…
Ég sagði ykkur frá ljósi í síðasta bloggi, sem ég fékk í Ikea. Alveg gasalega flottu ❤ En þannig er að þau komu sko tvö með mér heim!! Nú langar Frúnni að deila með ykkur ljósamyndum úr eldhúsinu, þar sem annað nýja ljósið fær að dvelja um sinn…
…sko þarna kúrir það á fráleggsborðinu mínu, innan um fleiri flotta hluti…
…mér finnst birtan af því svo falleg, jafnvel platblómið mitt fær fallegan „lifandi“ blæ…
…fullar krukkur og kúplar út um allt hjá Frúnni…
…
…ooohhh… er þetta ekki algjört bjútý… mér finnst lögunin á ljósakúplinum alveg gordjöss og svolítið gamaldags!
…ég vippaði mér smá í gluggann og leyfi þessarri að fá smá athygli…
…og þyngdin er hún ekki lykilatriði…
…lokamyndin í dag… gaman saman…
kv. Gunna
…í beljandi roki hefur Frúin það bara náðugt. Það er víst ansi langt síðan eitthvað gerðist á þessarri síðu minni, en nú fer pælingar. Það er að sanka að sér kössum og gera plön. Hluti af jólaskrauti heimilisins flutti t.d. vestur í dag og svo flytur „bílskúrsdótið“ þ.e. það sem Sorpa fær ekki 😉 næstu vikurnar…
En þar sem veðrið er eins og það er, þá ákvað ég að skella inn í dag kertaljósamyndum og öðru sem róað getur hugann ❤
…bara kósýheit inni á meðan það hvín í öllu undan rokinu…
…hehehe restin af aðventukertunum sem úbbbs… voru ekki brennd… 😉
Flotta klukkubakkahugmyndin hennar Dossu í Skreytum hús kominn á borðið mitt, æðislega sneddý hugmynd ❤
Þessi flotti lampi fékkst í Ikea, ég kolféll fyrir honum og við bara urðum að fara saman heim… Birtan af honum er svo mjúk og þæginleg.
…María tékkar á kertunum fyrir mig…
ooohhh.. þessar krúsir eru svo mikið uppáhalds… ❤ Ég skellti rafkerti, sem ég hafði sett fallega mynd á, inní minni krukkuna! Kemur skemmtilega út.
…og meira af klukku…
Þessi sæti situr salirólegur í rokinu og íhugar… Gúmmímottuna í glugganum málaði ég hvíta og er voða lukkuleg með´ða 🙂
jæja ég vona að allir hafi notið helgarinnar sem mest og best, það gerði ég allavegana 🙂
Gunna
já það er víst komið að því enn og aftur að kveðja jólin og nú verður pakkað niður jólaskrauti til flutninga…
Hér eru því smá sýnishorn í lok jólanna…
Áramótagrímur tróna uppi á stofuskápnum…
…ummmm ég elska grímur….
…og hér er vængirnir mínir í hvíld, það er erfiðara að taka mynd af geislabaugnum mínum, þar sem hann er fastur um hálsinn á mér…. 😉
❤
jólatrésflutningar….
jól í glugga…
…og þessi ljúflingur fékk sér tíu í tilefni dagsins, hóhóhó…
Úr rokinu og rigningunni…
kveðja Gunna
Ok ég ætla að bæta við nokkrum kjólamyndum í viðbót…. 😉
Kjóll vikunnar er áramótakjóll Frúarinnar, hann er alvöru glamúr og er alsettur pallíettum ❤
Bjútý…
Þar sem pallíetturnar eru með gráum tónum í, kemur það mjög flott út í heildinna og gefur kjólnum smá „hreyfingu“
Spari „lúran“ mín er flott við….
…
Kveðja út í nýja viku…
njótum allra daga kv. Gunna
jæja þá er síðasti kjóll ársins mættur , hann er númer 70 og kannski er hann bara sá síðasti sem verður myndaður… ég á að vísu nokkra í viðbót 😉
Þessi er alveg nýr ❤ ég fékk hann sko í jólagjöf … Kjóllinn og „axlaböndin“ eru frá Evuklæðum og Ísafold algjört bjútý eins og allt sem frá þeim kemur.
bakstykkið er ofsalega flott…
❤ ælovit…
fremst á ermunum er netaefni eins og er neðst á kjólnum að aftan…
þessi kjóll var líka til í fallega rauðum lit, en var búinn þegar minn var keyptur… en þessi svarti er sko ekki síðri ❤
hér standa tveir úr skápnum mínum saman, en þó mjög svo ólíkir…
kjólakveðja úr jólakósýheitum…
Gunna
issss jólaskapið mitt það er skolöngu komið…
Jólaskórnir mínir eru sko settir upp á stall og fyrir ofan þá er sjálfsmynd af fótaburði Frúarinnar… Alltaf jafn „dömuleg“
Jólin í forstofunni/holinu
Jólahjörtun hanga á greinum, en ekki þó grænum…
Jóla, jóla….
…og jólavöndur….
…jólastemming í holinu ❤
Hér eru fjórir alveg gáttaðir yfir sögu jólanna…
Jólakveðja þvi nú fer hækkandi sól… Gunna