Skip to content

Hvítar rósir og rómantík…

    • Um mig

recent posts

  • Baðherbergið framh.
  • Baðherbergið málað…
  • Ágúst, ljós og rómantík…
  • Svefnloftið ný málaði…
  • Garðvinna, dittað að og málað

about

  • Twitter
  • Facebook
  • Instagram
  • Nú er Frúin komin með kjól -ekki jól í glugga…

    mars 12, 2015

    Þó svo veðrið hafi á köflum verið svolítið „jólalegt“ upp á síðkastið þá er ég nú ekki komin með jól í glugga, heldur setti ég þangað kjól ❤ Ég skellti hlerum upp í sjónvarpsherbergisgluggan og ákvað, að fríska smá uppá þá með að hengja gamlan kjól af einkadóttirinni á milli þeirra ❤

    1

    …og gamlir spariskór af ´enni fengu að fylgja með…

    2

    ❤

    3

    …nú fer að styttast í að Frúin fari að pakka fyrir alvöru niður fyrir flutninga og því verður örugglega minna gert og „dúllast“ við heimilið…  Hugurinn hefur að vísu verið dulítið „fjarverandi“ og litlir húsmæðrataktar verið sýndir að undanförnu…hehehe en það gerist nú stundum eitt og eitt hjá Frúnni.

    4

    Slide1

     

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Skilrúm eða…

    mars 10, 2015

    Mér áskotnaðist svakalega flottir gluggarimla á dögunum, sem ég er með ákveðin plön fyrir, í nýja húsið …

    Þessir rimlar eru stærri en þeir sem ég á þ.e. þeir eru tvöfaldir. Ég hef hugsað mér að mála þá síðar…  – sko en ekki fyrr en þegar ég er flutt. Þeir eru rúmlega 140 cm á hæð og  rúmur einn m. á breidd.

    1

    Ég ákvað að „geyma“ þá og nota sem skilrúm inni í svefnherberginu til að byrja með…

    2

    Ég er bara rosalega skotin í þessum rimlum finnst þeir koma smart út sem skilrúm. Þeir skildu þó ekki enda sem slíkt…

    3

    …hér sést í hvítu gluggarimlana mína úti í glugganum…

    4

    lov it… ❤

    5

    …það flæðir upp úr gullaboxinu mínu…

    6

    …ubbbsss bara óumbúið hjá Frúnni haaaa….

    7

    skilrúm eða…

    8

    …það er sko spennandi verkefni fyrir höndum hjá mér…

    9

    Slide1

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Nú er Frúin farin að girða…

    mars 4, 2015

    Ég „þurfti“ að bregða mér í Blómaval á dögunum og vitið bara hvað ég rakst á? júbb svo sniðugt „grindverk“  og mjög „billigt“, sem ég er að spá í að setja í glugga -seinna sko… en það hefur millilent á meðan á biðtímanum stendur! Ég bara verð að deila með ykkur nokkrum myndum og ég er jafnvel að spá í að hvítta það…

    Svona leit það út áður en Frúin tók það í smá klippingu og fjarlægði brodda og hanka…

    1

    …og hér er það hálf strýpað eftir kippingu…

    2

    Nú hefur grindverkið fengið samastað á meðan það bíður nýrra heimkynna…

    3

    …nei sko fallegu járnfuglarnir mínir og einn þeirra geymir fyrir mig skæri og snæri á pakka…

    4

    Home sweet home… ❤

    7

    Þetta lúkkar bara nokkuð vel er haggi bara?

    8

    Flotti lampinn minn sem ég málaði skerminn á í denn, sjá nánar hér

    9

    Kósý og rólegheit í holinu mínu

    10

    Slide1

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Ný vika böðuð rósum

    mars 1, 2015

    Mér finnst voðalega gaman að gefa sjáfri mér blóm svona við og við. Blóm eru yndisleg viðbót við umhverfið og ekki er verra ef þau ilma…  Ég fjárfesti í gasalega fallegum „plat“rósum í Pier á helginni, en það var Tax free  og rósirnar því á lækkuðum prís…

    Liturinn á þeim finnst mér vera mjög sérstakur en fallegur…

    1

    Bjútý ❤

    2 3 4 5

    njótum öll komandi viku..

    Slide1

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Merkisdagar í fjölskyldunni…

    febrúar 24, 2015

    …eru nú loksins skráðir og komið upp á vegg. Um daginn sagði ég frá flottu dagatali sem hægt er að ná í á netinu og prenta út! Ég náði mér í það og prentaði út fyrir okkur, en fór svo að spá í hvernig væri sniðugast að hengja það það upp…

    IMG_4193

    …þá mundi ég eftir því að hafa séð svo svakalega sniðuga hugmynd á flakki mínu um netið, þar sem „klemmu“herðatré var notað til að hengja upp myndir og dagatöl! Heppna ég að eiga slatta af slíkum herðatrjám…

    IMG_4194

    ég byrjaði á að grunna það,  en svo var hvít kalkmálning frá Föndru notuð yfir grunninn…

    IMG_4196

    Sko bara er það ekki smart? Ég fyllti út í dagatalið afmælisdaga í fjölskyldunni svo og aðra merkisdaga sem nauðsynlegt er að muna…  Svo notaði ég mynstrað karton í bakið, því það fannst mér gefa lúkkinu betri fyllingu!

    IMG_4198

    …Herðatréð fékk smá „sjabby“ áferð í lokin…

    IMG_4201

    …hér sjáið þið svo hvernig ég er búin að færa inn nokkra merkisdaga í febrúar.  Ég mæli með að þið geri ykkar eigið persónulega dagatal með merkisdögum í ykkar fjölskyldu!

    IMG_4205

    Njótum dagins…

    Slide1

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Baðbombur…

    febrúar 21, 2015

    …voru mótaðar af Frúnni úr 2 bollum af epsonsalti,  nokkrir dropar af ilmolíu, smá vatni og olivuolíu og gel-lit þynntum í smá vatni… hnoðað saman, bæta við vökvan þar til allt loðir saman…

    1

    …svo var þjappað vel ofaní form, ég ákvað að hafa bomburnar mínar ekkert of stórar.  Það er mjög mátuleg stærð að móta baðbombur í litlum flotholtum.

    2

    Næst ætla ég að setja rósablöð með í bomburnar, en í þetta skiptið var litlum rósaknúmpum þjappað með i botninn…

    3

    Ég lét þær þorna í rúma 2 sólahringa, eftir að ég losaði þær úr forminu…

    4

    …sko bara, hérna eru þær svo tilbúnar til að fara í baðið…  það kom mér virkilega á óvart hvað þær urðu harðar…

    5

    …og héngu alveg saman!

    6

    hehehe svo virka þær líka vel…  sjáið bara hér er blómaknúmpurinn orðinn laus úr prísundinni og flýtur upp… ❤

    IMG_4183

    Fallegt! Ekki satt… ?

    IMG_4184

    það  getur líka verið sneddý að setja baðbomburnar í sætan sellófan-poka sem fæst t.d. í Söstrene Grene og gefa einhverjum sem manni þykir voða vænt um, í dekurgjöf…

    Slide1

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Ilmur á heimilinu…

    febrúar 19, 2015

    …já það er nú ekki slæm lyktin á þessu heimili -a.m.k. í dag 😉  Frúin fór nebblega  hamförum í framleiðslu á baðdekurvörum…

    Fyrst var framleitt baðsalt í tveimur ilmtegundum, þar á eftir var skellt í baðilmolíu og síðast voru gerðar baðbombur sem þurfa víst nokkra daga til að „þorna“… myndir af þeim koma  síðar… -vonandi!

    Hér er ég búin að blanda saman Epsonsalti, Sjávarsalti, Matarsóda (til að gera hvissið þegar þetta er sett í baðið 😉 ) lit og ilmum…  Blátt er með Vanillu og Gult er með Jasmin

    1

    Vanillubaðsaltið komið í krukku…

    2

    …og Jasminbaðsaltið komið líka í neytendaumbúðin ❤

    3

    …Þetta fer að skapa valkvíða við baðferðir hjá Frúnni…

    4

    Svo eru það Búbbúlbaðflöskurnar og Baðolían mín með Vanillu …setti reyndar vanillustöng ofaní líka með olíunni og ilminum. Ég elska vanilluilm… ❤

    5

    já nú verður lítið annað gert á þessu heimili, en að hanga í baði í tíma og ótíma…

    Slide1

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Innkallaðar páskaliljur

    febrúar 17, 2015

    Í gær tók ég eftir því að páskaliljurnar sem  hent var út á svalir eftir páskana í fyrra, voru að lifna við!!! Þetta þótti Frúnni sem er „ekkiheldurlifandiblómumkona“ mjög merkilegt! Svo ræfils laukarnir voru teknir inn, og nú á að gera smá tilraun með þá…

    Það verður nú spennandi að sjá hvort mér takist það sem meira að segja vetrinum tókst, það er halda liljunum lifandi…

    1

    …sjáið þið bara eitt lítið blóm sem gægist uppúr pokanum…

    3

    Þetta verður nú spennandi verkefni…

    2

    …verður þetta kannski bara eina blómið?

    4

    Hver veit…

    5

    …en við sjáum hvað verður, kannski er þetta bara sérstaklega harðgerð tegund sem hentar konu eins og mér…

    Slide1

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Hver veit um hvar?

    febrúar 15, 2015

    Jæja já nú „vantar“ Frúnni gasalega mikið að eignast fleiri svona postulínsbakka!!!  Ég fékk þessa tvo í leir og postulín, en langar núna bæði í minni og fleiri típur af þeim… veit einhver um hvar er sjens á að leita hérlendis??? Ég yrði voða-voða glöð að fá þær upplýsingar ef þið lumið á þeim… 😉

    1a 2a 3a

    Sunnudagsknús…

    Slide1

     

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • 14. febrúar – blómadagur

    febrúar 14, 2015

    Bleikar rósir, rigning og rok, er svo vel við hæfi í dag… njótum helgarinnar ❤

    1 2 3  54

    Slide1

     

     

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
Fyrri síða Næsta síða

Bloggaðu hjá WordPress.com.

Hleð athugasemdir...
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    Hvítar rósir og rómantík...

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • Hvítar rósir og rómantík...
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar
%d