Ég „þurfti“ að bregða mér í Blómaval á dögunum og vitið bara hvað ég rakst á? júbb svo sniðugt „grindverk“ og mjög „billigt“, sem ég er að spá í að setja í glugga -seinna sko… en það hefur millilent á meðan á biðtímanum stendur! Ég bara verð að deila með ykkur nokkrum myndum og ég er jafnvel að spá í að hvítta það…
Svona leit það út áður en Frúin tók það í smá klippingu og fjarlægði brodda og hanka…
…og hér er það hálf strýpað eftir kippingu…
Nú hefur grindverkið fengið samastað á meðan það bíður nýrra heimkynna…
…nei sko fallegu járnfuglarnir mínir og einn þeirra geymir fyrir mig skæri og snæri á pakka…
Home sweet home… ❤
Þetta lúkkar bara nokkuð vel er haggi bara?
Flotti lampinn minn sem ég málaði skerminn á í denn, sjá nánar hér
Kósý og rólegheit í holinu mínu
Jaherna her….mikid er thetta snidugt!
Líkar viðLíkar við