Skip to content

Hvítar rósir og rómantík…

    • Um mig

recent posts

  • Baðherbergið framh.
  • Baðherbergið málað…
  • Ágúst, ljós og rómantík…
  • Svefnloftið ný málaði…
  • Garðvinna, dittað að og málað

about

  • Twitter
  • Facebook
  • Instagram
  • Púðaást…

    júní 15, 2015

    Ég  verð bara að fá að monta mig smá af nýja flotta púðanum sem mér var færður nú í kvöld, af eldri syni mínum og elsku tengdadóttirinni ❤

    Þessum æðislega púða er ég búin að vera sjúklega ástfangin af í dulítið langan tíma… og ég er sko búin að fara nokkrar ferðirnar í búðina til að horfa á hann og strjúk´onum!!!

    1

    …og að fá hann núna inn á frekar tómlegt heimilið er bara yndi…

    2

    …hann þessi á sko eftir að fá að njóta sín á góðum stað í nýja húsinu! Finnst ykkur hann ekki æðislegur? Takk elsku Þórdís mín og Birgir Þór ❤

    3

    Ég bara lovit…

    Slide1

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Griðarstaður…

    júní 6, 2015

    …já það er gott að eiga sér griðarstað, þar sem maður getur skriðið út úr kassahrúgunni. Ég bjó mér til einn slíkan úti á svölum í blíðunni í dag ❤

    Hengiróla, sól, kirsuber og rósir gerist vart betra…

    sól1

    …nú er sumarið komið…

    sól2

    …ég hvet svo alla endilega til að kíkja á eða taka þátt í skemmtilega bloggpartýinu hjá Stínu Sæm og skoðið líka…                   Austfjardapúkar/ facebook pages
    Blúndur og blóm/ facebook.page
    Deco chic
     / facebook
    Frugalin
    adda-heima
    mAs
     / facebook page
    Skreytum hús /facebook page
    Svo margt fallegt/facebook

    Slide1

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Ég skal mála allann heiminn elsku mamma…

    maí 31, 2015

    …ó já því ég fékk mér nebblega litabók og liti, fyrir hluta af afmælispeningunum sem mamma og pabbi gáfu mér um daginn. Það er nú bara þannig að ekkert finnst mér eins róandi og að lita! -maður verður nú að róa sig á milli þess að henda dótinu sínu ofan í kassa…

    Þessa líka flottu litabók keypti ég í Eymundsson, en það eru til nokkrar týpur og  trélitina fékk ég í A4 -á 80% afslætti ekki slæmt það!!

    1lita

    …myndirnar eru svo fínlegar og fallegar, þannig að maður er góðan tíma að vinna hverja mynd…

    2litir

    …Frúin er svo sultuslök með litina sína…

    3litir

    Hér er sko full af spennandi verkefnum, sem gaman verður að fylla með litum…

    4litir

    …litum nú gult fyrir sól…

    Slide1

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • uppáhalds…

    maí 28, 2015

    …ljósaserían mín er hér á leiðinni niður í kassa og ég bara varð að smella mynd af henni. Hún er úr þæfðriull og svo saumaði ég gamaldags myndir á hana…

    1sería 2sería

    ..og svo ein „gömul“ mynd af með ljósi inní… sjá betur hér… og hér

    ljós20

    Slide1

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Baðferðir og slökun

    maí 24, 2015

    Flutningar og niðurpakk getur reynt á. Nú og þegar Frúin er svo búin að burðast niður af 4 hæð, með misþunga kassa í geymsluna, þá þarf  sko að vera einhver gulrót 😉 Gott bað getur því verið yndislegt og ekki verra að hafa góðan ilm með sem kaupbætir…

    Ég tók mig til um daginn og prófaði að búa til nýja tegund af „baðbombum“ Ég leitaði lengi að hjartalöguðu sílikonmóti en fann ekki fyrr en eftir á að tilraunin hafði verið gerð, ég notaði því „krossfiska“lagað  úr Ikea í staðinn…

    1bomba

    …og útkoman var þessi, ægilega fín…

    2bomba

    Uppskriftina fann ég á netinu. en ég breytti henni smá, því að í staðin fyrir vatn setti ég kókosolíu. Þá verður maður svo gasalega mjúkur eftir baðferðina … Ég set hér til gamans uppskriftina

    1 bolli matarsóti, 1/2 bolli Cream of tartar, kókosolía eftir þörfum, ilmur og litur ekki þó of mikið….

    Sótanum, tartar, olíu, ilmi og lit blandað saman þar til þetta loðir mjög vel saman. sett í form og þjappað.  látið „þorna“ í 1-2 daga. Ef bomban brotnar þegar hún er tekin úr mótinu, þá er hægt að laga hana með því að spreyja örlitlu vatni á og laga þannig…

    njótum vel og lengi…

    Slide1

     

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Nauðsynleg græja…

    maí 14, 2015

    Þegar þeir dagar dúkka upp sem maður þarf að sýna afburða húsmæðratakta, nú þá er gott að vera vel græjaður til verka. 😉 Nú þessa dagana er verið að pakka niður búslóð og fylgihlutum og þá er nú betra að allt sé hreint og fínt sem pakkað er niður… Gardínur eru þvegnar og dúkar sömuleiðis. Við erum með hvítan sófa í sjónvarpsherberginu og eins og gefur að skilja mæðir dulítið á vininum. Þá er nú gott að geta tekið utan af´onum og skellt í þvottavélina. Eeeeeen efnið hnökrar svo óskaplega… -og þá komum við að græju sem aðstoðar húsmóðurina…

    …nebblega þessari hér! þessi sér um að „raka“ af hnökur af fötum og bara öllu sem hnökrar á þessu heimili. Svo að hjá Frúnni gengur allt „hnökralaust“ fyrir sig… -eða þannig 😉 Ég keypti þessa græju í ELKO fyrir möööööörgum árum síðan ég held barasta á síðustu öld…

    1a

    Hér sjáið þið áklæði af sófanum nýkomið úr þvotti og ef vel er skoðað sést hnökrið og þetta virkar sko ekki vera hreint…

    1b

    …sko bara…

    1c

    …hér er græjan mín farin að vinna, og það sést vel hvað hún á eftir að taka….

    1d

    …og sjáið bara orðið hreint og fínt, svo nú er Frúin nokkuð happý.

    1e

    ok og svo ein svona fyrir- og eftirmynd í lokin ❤

    1f

    Slide1

     

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • saga af dagdraumum, kössum og iðjuleysi…

    maí 1, 2015

    Eitthvað er nú lítið að gerast hér á þessari síðu. Það styttist óðfluga í flutninga Frúarinnar og litið er um framkvæmdir og dúllerý á heimilinu. Einhverrahluta vegna er framkvæmdaleysið algjört. Mikið er þó um dagdrauma og plön um hvernig hlutirnir eigi að vera á nýja heimilinu. Eiginmaðurinn segir að ég sé löngu búin að raða öllu inn í huganum og sé jafnvel farin að breyta uppröðuninni aftur 😉 ok kannski er það rétt, en ég verð að viðurkenna að þessir 7 mánuðir sem liðnir eru síðan við festum kaup á húsinu okkar hafa liðið ótrúlega hratt og nú er bara að skella á niðurpökkunartímabil. Það eru komnir tómir kassar hér og þar, sem brátt verða búsnir af ýmsu dóti…

    Ég má til með að setja inn með þessari litlu færslu, fallegar myndir af húsinu okkar…

    image

    image

    Veturkonungur hefur hér hrímað allt húsið og það verður bara notalegt að fá sér heitt skíðafélagskakó í sólskálanum á svona dögum…

    image

    þessa fallegu vetrarmynd tók Ágúst Atlason en hann er snillingur með myndavélina strákurinn. Mér finnst þessi mynd æðisleg…

    kannski maður fari að verða duglegri við að láta eitthvað hérna inn, við sjáum til…

    Slide1

     

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Eggjahljóð á heimilinu…

    mars 30, 2015

    Frúin eins og svo margir aðrir hefur verið bissý við að búa til skraut fyrir páskana.  byrjað var á því að kíkja í geymsluna og sjá hvað leyndist þar í kössum 😉

    1

    Gömul egg voru dregin upp úr kössum og áttu að fá nýtt lúkk, einnig voru nokkur ný sem bættust í hópinn…

    2

    …penslum var dýft í allavegana liti og engu þar við sparað…

    3

    …fallegar myndir voru „rifnar“ niður og límdar á …

    4

    …svo var allavegana eggjum var stillt upp…

    1a

    …lítil sem stór…

    5

     …og svo nokkur pinkulítil…

    2a 63a

    …og þetta egg, það var notað sem gjafaaskja undir smá pening, sem falleg fermingarstelpa fékk… ❤

    4a

    …en þetta bjútý uppáhaldsegg er ekki eftir mig, heldur hana mömmu mína, ég varð bara að hafa það með. það er einstakt eins og mamma ❤

    8

    Slide1

     

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Af gömlum blómum og nýjum…

    mars 22, 2015

    Á sælum sólríkum sunnudegi má ég til með að skella inn, nokkrum blómlegum myndum sem myndavélin fangaði á hringferð sinnu um heimilið…

    1

    …þessar rósir eru nú sko algjört bjútý, þó þær séu nú bara allt í plati…

    2

    …þær fékk ég um daginn hjá Pier sjálfum, en þá var hið skemmtilega 3 fyrir 2…

    3

    ❤ ❤

    4

    Þessi grein fékkst í Fjarðarkaupum, þar er sko mikið og flott úrval af „blómum“ og á tilboði sjáið til!

    5

    Þessar hvítu gömlu „rósir“ stand nú alltaf fyrir sínu og gleðja augað…

    6

    Liturinn á þessum rósum er algjört augnakonfekt, ælovit ❤

    7

    Þessar eru nú gamlar og hafa fylgt mér hringinn í kringum landið. Þær hafa alltaf staðið vaktina þegar mig hefur vantað eitthvað til að setja punktinn yfir I-ið með…

    8

    …þessi líka, hún lætur mann langa til að beygja sig niður að henni og anda að sér ilminn -sem er að sjálfsögðu enginn…

    En njótum nú öll komandi viku kæru vinir

    Slide1

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Kíkt í búðir…

    mars 17, 2015

    Já okey ég kíkti í Litlu Garðbúðina  og jiii minn hvað þar er margt mjööög fallegt og mörgu sem langaði að koma með mér heim… En Frúin getur verið skynsöm… -stundum sko. Svo það var bara lítill skammtur sem flutti heim til mín… -núna 😉

    T.d.þessi litli sæti diskur  sem er yndislegur, það er líka mjög smart er að setja nokkra konfektmola á´ann þegar maður fær sér tíu….

    1

    …sjáið, bara yndi…

    2

    …nú eða þegar maður skellir sér í ostagírinn þá passar diskurinn svona líka akkúrat. Litlu skálina fékk  ég líka og hún er svo mátuleg undir sultutauið sem þarf með ostinum…

    3

    Þessar fallegu glerkrukkur eru einmitt það sem okkur vantaði inn á baðherbergið, undir eyrnapinnana og tannþráðinn…

    4

    …það er voðalega fallegt og fínlegt mynstur á krukkunum, gasalega er ég líka glöð með þær!

    5

    Slide1

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
Fyrri síða Næsta síða

Bloggaðu hjá WordPress.com.

Hleð athugasemdir...
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    Hvítar rósir og rómantík...

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • Hvítar rósir og rómantík...
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar
%d