• Í dag sunnudag, sendir sólin yndislega geisla sína inn um gluggana, það er því vel við hæfi að bjóða innlit í sólstofuna okkar…

     a1

    Ég fékk húsbóndann til að setja bita í loftið til að ég gæti hengt upp hengiróluna mína. Það er yndislegt að hanga þarna í rólunni, prjóna, eða bara hlusta á rigninguna og gera ekki neitt!!! Toppurinn er nú að kveikja upp í arninum og hafa það virkilega kósý…

    a2

    Stóru kertaluktina í horninu, fann ég í Blómaval í vor -í útsöluhorninu og ég bara gat ekki skilið hana eftir…

    a3

    …kósýskot fyrir tvo…

    a4

    …rólan mín góða er mjög vinsæl meðal yngstu kynslóðarinnar.  Hlerana á bak við róluna ætla ég að spreyja hvíta, mjög flótlega…

    a5

    …sá gamli bíður meðal rósa á bekknum…

    a6

    uppáhalds… ❤

    a7

    a8

    Flottur trédrumbur úr Hallormsstaðarskógi, búinn að fá hvítan gærukoll…

    a9

    Frúin er búin að puða dúkum upp í alla glugga, tvo fremri setti ég í gamla saumahringi sem ekkert voru notaðir…

    a10

    …dúkar, dúkar, dúkar…

    a11

    Þessir glerdropar voru keyptir í Blómaval, með það í huga að hella inn í þá hvítri málningu. Mér finnst þeir koma æðislega vel út -Frúnni langar reyndar í einn í viðbót til að hella inn í hann öðru lit…

    a12

    Hér sko notalegt að sitja…

    a13

    …og hér hangir Frúin í fríum…

    a14

    njótum nú dagsins í dag…

    Slide1

  • Frúin búin að vera dulítið bissý og lítið geta bloggað, en hún á smá tíma núna 😉
    Okkur áskotnaðist kertaaren um daginn sem þurfti smá að sjæna til…  Ég ákvað að mála hann og sverta hann inní, ég límdi líka á hann skrautlista frá A4
    a1 a2
    …ég byrjaði á því að setja í hann saltsteinaseríu og fannst eitthvað vanta… prófaði þá að setja fallega járnskrautið frá Litlu skreytum hús búðinni hennar Soffíu og það er bara fallegt hvar sem maður lætur það…
    a3
    A4 skrautið….
    a4
    …ég teipaði í botninn svo röndin yrði nú bein hjá Frúnni… 😉
    a5
    svarti liturinn kominn á….
    a6
    …og svo restin af dúlleríinu…
    a8
    Frúin mjög sátt með útkomuna, svarti liturinn gerir heilmikla dýpt í areninn og saltsteinaserían lýsir upp eins og glóð… dásamlegt!!
    a9
    Góða helgi…
    Slide1
  • … já ég held bara að seturnar á eldhússtólunum sem fylgdu með húsinu séu orðnar betri! Stólarnir sjálfir sem eru 8, fjórir hvítir og fjórir brúnir eru í sjálfu sér mjög flottir en efnið á setunni var orðin frekar lasið og sjoppulegt á þeim hvítu… -erhaggi?

    1st

    …hahaha það er alltaf spennandi að sjá hvað kemur undan áklæðinu þegar gamlir stólar eru gerðir upp…

    2st

    …svo var nýr svampur sniðinn eftir setunni…

    3st

    …og nýtt áklæði komið á, það er smá munur…  -Frúin er allavegana bara sátt. Það var á dagskránni að spreyja þessa stóla með hinum brúnu, en mér finnst þetta „sjabbýlúkk“ svo sjarmerandi…

    4st

    …og hér eru þeir þrír bræðurnir af fjórum, mættir og bjóða til sætis…

    6st

    …má bjóða þér 😉

    Slide1

  • Fyrir u.þ.b 17 árum síðan eignaðist ég dúkkuvagna sem átti að henda. Þessir vagnar ásamt fleira „gulli“ voru í gömlum leikskóla sem var verið að loka hér í bæ og flest orðið eitthvað lúið þar inni. En Frúin er nú bara þannig að hún sogast að gömlum hlutum og fékk því að taka með heim nokkra slíka…

    Annar vagninn var lakkaður blár og hinn er rauður. Ég málaði þann bláa, hvítan og fékk mætan mann til að renna ný dekk og nýtt handfang á hann…

    1v

    …ég tillti nú bara blúndunni á með nokkrum dropum af límbyssulími… -bara sko ef Frúin mun vilja skipta  um blúndu síðar, maður veit aldrei!

    2v

    Svo voru sniðin pappaspjöld og þau klædd með satínefni…

    3v

    …pappinn og efnið sett inn á hliðarnar…

    5v

    …gamaldags mynd skellt utaná, búið um vagninn með sæng og 70 ára gamall bangsi skipað í heiðursess ofaná…

    7v

    …það er ekki laust við að sá 50 ára gamli horfi afbrýðisaugum til þess gamla…

    8v

    …þau eru yndisleg þessi gömlu gull og þessi ásamt fleirum fá að vera í kósýheitunum uppi í rjáfri í Frúardyngjunni góðu… -meira um hana síðar 😉

    9v

    Hugsum áður en við hendum, það leynast sko gull víða… -því ekki er allt gull sem glóir!Slide1

     

     

  • Gluggar geta verið miskrefjandi og hjá okkur eru tveir á skalanum mjögsvomikiðkrefjandi… þetta eru gluggar sem eru í stigahúsinu á húsinu okkar. Ég er búin að spá og spékulera lengi hvernig maður getir gert þessa glugga meira „sjarmerandi“ og ég held að ég hafi dottið niður á nokkuð góða lausn… -í bili a.m.k. 😉 Gluggarnir tveir er um 3 metra háir og eru á móti hver öðrum sitthvoru megin við stigann og fyrir neðan þá eru dyr…

    1g

    Ég átti til „spagettígardínur“ sem ég skellti í gluggana og í annann setti ég þessa fallegu risablómaseríu sem hefur þvælst með okkur leeeengi…

    2g

    …mér finnst þetta gefa glugganum létt og bara fallegt lúkk og ljósið færir milda birtu í stigann…

    3v

    hérna sést annar glugginn betur -hinn er alveg eins…

    4hús

    Hvað finnst ykkur eru þið kannski með betri lausn þarna úti…

    Slide1

  • Forstofugangurinn er það fyrsta sem tekur á móti manni þegar útihurðin er opnuð og hann er laaangur… við enda hans er stigahúsið og það er draumurinn að mála stigann hvítann -einhvern tíman í framtíðinni.

    1g

    dagur – nótt…

    2g

    Hvíldarbekkur með nokkrum óuppsettum gömlum myndum sem ekki er búið að finna fullkominn stað…

    3g

    Glerhurðina tókum við úr stofuopinu og settum á mjög lítið gestasalerni… Eiginmaðurinn segir að ég sé svo forvitin að ég þurfi að fylgjast með öllu þó ég sé stödd á WC-inu…  ok það getur vel verið, en þetta litla rými léttist heilmikið við að hafa glerhurð og svo setti ég líka filmu á rúðurnar…

    4g

    …hér sést smá inn í stofuna og við eigum eftir að setja eitthvað yfir „sárið“ í dyraopinu…

    5g

    …og þessar eru ávallt viðbúnar og í öllum stærðum…

    6g

    Hurð úr IKEA með skógarmynd og ljósi á bakvið ásamt fleiru…

    7g

    Rökkrið er aðeins að byrja og þá fer yndislegur ljósa-kósýtími í hönd…

    8g

    …sólgleraugun í startstöðu hjá yndislegu blúndutöskunni frá SPENNANDI

    9

    …ljósin í bænum…

    10g

    …horft til dyra…

    11g

    njótum nú helgarinnar…

    Slide1

  • Sko þegar fólk flytur, þá getur það alltaf gerst að maður þurfi að færa til eða breyta fyrstu uppröðun… -og það gerðist einmitt hjá Frúnni í dag!

    Við ákváðum að setja þetta fallega ljós í eldhúsgluggann og ég skellti þessari hvítspreyjuðu gúmmímottu líka því til samlætis…

    1

    …ég er bara nokkuð sátt með útkomuna -nú er bara að bíða eftir rökkurinu!

    2

    „blóm“ eru farin að skjóta upp kollinum hér og þar…

    3

    …og baðherbergisglugginn þótti mér full strípaður svo ég setti tvo sæta löbera í´ann…

    4

    Og hann þessi er kominn á heiðurstall í stofunni… ælovit!

    5

    knús út í  yndislegt sumarkvöldið…

    Slide1

  • Jæja þá er það nýja stofan okkar. Það er kannski orðið nokkuð ljóst að GRÁTT er liturinn sem er inn á þessu heimili 😉 Litirnir  á baðherberginu – eldhúsinu og stofunni eru í grunninn allir sá sami þ.e Öldugrátt frá Slippfélaginu, en þeir eru blandaðir með1/1,  1/2 og 1/4 af litarefnunum þannig að þeir eru sami tónninn en mis dökkir. Stofan er semsé með milligráan tón.  Þetta er borðstofan okkar…

    stof1

    …og stássstofan er á móti…

    stof2

    Mér finnst þessi gráilitur æðislegur…

    stof3

    …fallega loftljósið sem smellpassar svona líka inn í húsið, fékk ég í afmælisgjöf frá krökkunum mínum, en það fæst í IKEA.

    stof4

    Það voru tvær dyr inn í stofuna, við tókum þær og færðum þær annað í húsið… 😉 Mér fannst þetta stækka stofuna um helling og birta ganginn!

    stof5

    Fram í sólstofuna opnuðum við alveg, en þar voru líka tvö dyraop, þetta léttir líka heilmikið á stofunni…

    stof6

    Hekluðu gardínuna keypti ég á flóamarkaði en saumaði silkikennt efni á kappann til að síkka hann aðeins. efnið er eins í lampanum í glugganum… Flotta löberinn í mið glugganum keypti mamma á Tenerife og færði mér svo ég gæti gert gerdínur úr honum, en ég tými ekki að klippa hann í sundur hann er svoooo fallegur!

    stof7

    bjútí…

    stof8

    Lampinn góði sem ég keypti í RL og steypti á lampafótinn rósettu sjá hér Skrautjárnið í gluggahorninu á að fara í dyragatið inn í sólstofu, en það tekur sig vel út í glugganum 😉

    stof9

    Gluggabjútí…

    stof10

    stof11

    Kíkt í sólstofuna… -en nánari kynni fara fram síðar 😉

    stof12

    lovit…

    stof13

     

    …og þetta líka

    stof14

    með knúsi úr húsi….

    Slide1

     

     

  • Mér áskotnaðist fyrir nokkru gamall kökudiskur sem er á snúningsfæti, en hann var á leiðinni í ruslið greyið. Glerið á honum var brotið og hann því orðinn frekar sjoppulegur.

    bakki1

    …ég fór bara til þeirra hjá Íspan í Kópavogi og fékk þá til að skera til fyrir mig nýtt gler…

    bakki2

    …pússaði svo burtu ryðið…

    bakki3

    …prentaði út flotta vetrarmynd af húsinu okkar -eftir Gústa, undir glerið og útkoman er þessi líka flotti kökudiskur sem býður nú bara eftir bakkelsi…

    bakki4

    …hér er svo samanburðarmynd…

    bakki5

    Slide1

  • Jæja síðusta dagana hefur Frúin verið ansi lúnkin við að finna mér einhver önnur verkefni en þau sem hún á í rauninni að vera að sinna… og þess vegna þar sem hún situr nú hér í hálfstrípaðri stofunni…

    1.kertastjaki

    … að þá bara verður hún að deila með ykkur smá verkefni sem hún var svo heppin að detta niður á og gera…

    þetta er kertatjaki sem er gerður úr afgöngum af „útiflísalími“ sem átti að henda… Ég bara setti límið í dollu og aðra dollu í miðjuna svo það myndi myndast hola og lét þetta harðna…

    kerti2

    …finnst ykkur hann ekki bara vera fallega grófur? ég á sko örugglega eftir að gera fleiri svona!

    kerti3

    jæja ég hugsa að hér verði nú ekkert sett inn fyrr en eftir flutninga… -en hver veit 😉 sjáumst

    Slide1