Forstofugangurinn er það fyrsta sem tekur á móti manni þegar útihurðin er opnuð og hann er laaangur… við enda hans er stigahúsið og það er draumurinn að mála stigann hvítann -einhvern tíman í framtíðinni.
dagur – nótt…
Hvíldarbekkur með nokkrum óuppsettum gömlum myndum sem ekki er búið að finna fullkominn stað…
Glerhurðina tókum við úr stofuopinu og settum á mjög lítið gestasalerni… Eiginmaðurinn segir að ég sé svo forvitin að ég þurfi að fylgjast með öllu þó ég sé stödd á WC-inu… ok það getur vel verið, en þetta litla rými léttist heilmikið við að hafa glerhurð og svo setti ég líka filmu á rúðurnar…
…hér sést smá inn í stofuna og við eigum eftir að setja eitthvað yfir „sárið“ í dyraopinu…
…og þessar eru ávallt viðbúnar og í öllum stærðum…
Hurð úr IKEA með skógarmynd og ljósi á bakvið ásamt fleiru…
Rökkrið er aðeins að byrja og þá fer yndislegur ljósa-kósýtími í hönd…
…sólgleraugun í startstöðu hjá yndislegu blúndutöskunni frá SPENNANDI
…ljósin í bænum…
…horft til dyra…
njótum nú helgarinnar…