Nýja stofan…

Jæja þá er það nýja stofan okkar. Það er kannski orðið nokkuð ljóst að GRÁTT er liturinn sem er inn á þessu heimili 😉 Litirnir  á baðherberginu – eldhúsinu og stofunni eru í grunninn allir sá sami þ.e Öldugrátt frá Slippfélaginu, en þeir eru blandaðir með1/1,  1/2 og 1/4 af litarefnunum þannig að þeir eru sami tónninn en mis dökkir. Stofan er semsé með milligráan tón.  Þetta er borðstofan okkar…

stof1

…og stássstofan er á móti…

stof2

Mér finnst þessi gráilitur æðislegur…

stof3

…fallega loftljósið sem smellpassar svona líka inn í húsið, fékk ég í afmælisgjöf frá krökkunum mínum, en það fæst í IKEA.

stof4

Það voru tvær dyr inn í stofuna, við tókum þær og færðum þær annað í húsið… 😉 Mér fannst þetta stækka stofuna um helling og birta ganginn!

stof5

Fram í sólstofuna opnuðum við alveg, en þar voru líka tvö dyraop, þetta léttir líka heilmikið á stofunni…

stof6

Hekluðu gardínuna keypti ég á flóamarkaði en saumaði silkikennt efni á kappann til að síkka hann aðeins. efnið er eins í lampanum í glugganum… Flotta löberinn í mið glugganum keypti mamma á Tenerife og færði mér svo ég gæti gert gerdínur úr honum, en ég tými ekki að klippa hann í sundur hann er svoooo fallegur!

stof7

bjútí…

stof8

Lampinn góði sem ég keypti í RL og steypti á lampafótinn rósettu sjá hér Skrautjárnið í gluggahorninu á að fara í dyragatið inn í sólstofu, en það tekur sig vel út í glugganum 😉

stof9

Gluggabjútí…

stof10

stof11

Kíkt í sólstofuna… -en nánari kynni fara fram síðar 😉

stof12

lovit…

stof13

 

…og þetta líka

stof14

með knúsi úr húsi….

Slide1

 

 

7 athugasemdir við “Nýja stofan…

  1. Sæl, skemmtileg síða, ég kíki oft hingað inn. Þú er mjög smekkleg 🙂
    Mætti ég forvitnast hvaða litatónn af gráum er á borðstofunni hjá þér?

    Líkar við

    1. Sæl Gabríela
      Takk fyrir það það er alltaf gaman að fá innlit og komment með 🙂
      Það er alveg sjálfsagt mál með málninguna þetta er Öldugrátt frá Slippfélaginu, en hann eru bara blandaðir með 1/2 af litarefnunum sem eiga að vera…
      kv. Gunna

      Líkar við

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s