Jæja þá er það nýja stofan okkar. Það er kannski orðið nokkuð ljóst að GRÁTT er liturinn sem er inn á þessu heimili 😉 Litirnir  á baðherberginu – eldhúsinu og stofunni eru í grunninn allir sá sami þ.e Öldugrátt frá Slippfélaginu, en þeir eru blandaðir með1/1,  1/2 og 1/4 af litarefnunum þannig að þeir eru sami tónninn en mis dökkir. Stofan er semsé með milligráan tón.  Þetta er borðstofan okkar…

stof1

…og stássstofan er á móti…

stof2

Mér finnst þessi gráilitur æðislegur…

stof3

…fallega loftljósið sem smellpassar svona líka inn í húsið, fékk ég í afmælisgjöf frá krökkunum mínum, en það fæst í IKEA.

stof4

Það voru tvær dyr inn í stofuna, við tókum þær og færðum þær annað í húsið… 😉 Mér fannst þetta stækka stofuna um helling og birta ganginn!

stof5

Fram í sólstofuna opnuðum við alveg, en þar voru líka tvö dyraop, þetta léttir líka heilmikið á stofunni…

stof6

Hekluðu gardínuna keypti ég á flóamarkaði en saumaði silkikennt efni á kappann til að síkka hann aðeins. efnið er eins í lampanum í glugganum… Flotta löberinn í mið glugganum keypti mamma á Tenerife og færði mér svo ég gæti gert gerdínur úr honum, en ég tými ekki að klippa hann í sundur hann er svoooo fallegur!

stof7

bjútí…

stof8

Lampinn góði sem ég keypti í RL og steypti á lampafótinn rósettu sjá hér Skrautjárnið í gluggahorninu á að fara í dyragatið inn í sólstofu, en það tekur sig vel út í glugganum 😉

stof9

Gluggabjútí…

stof10

stof11

Kíkt í sólstofuna… -en nánari kynni fara fram síðar 😉

stof12

lovit…

stof13

 

…og þetta líka

stof14

með knúsi úr húsi….

Slide1

 

 

Posted in , , ,

7 svör við “Nýja stofan…”

  1. Halla halldórsdóttir Avatar
    Halla halldórsdóttir

    Æðislegt!!!

    Líkar við

    1. gunnabirgis Avatar

      Takk fyrir það Halla
      k. Gunna

      Líkar við

  2. Kolbrún Avatar
    Kolbrún

    Æðislegt hús hjá þér

    Líkar við

    1. gunnabirgis Avatar

      Takk fyrir það Kolbrún, ég er allavegana í skýjunum 😉
      kv. Gunna

      Líkar við

  3. Gabríela Avatar
    Gabríela

    Sæl, skemmtileg síða, ég kíki oft hingað inn. Þú er mjög smekkleg 🙂
    Mætti ég forvitnast hvaða litatónn af gráum er á borðstofunni hjá þér?

    Líkar við

    1. gunnabirgis Avatar

      Sæl Gabríela
      Takk fyrir það það er alltaf gaman að fá innlit og komment með 🙂
      Það er alveg sjálfsagt mál með málninguna þetta er Öldugrátt frá Slippfélaginu, en hann eru bara blandaðir með 1/2 af litarefnunum sem eiga að vera…
      kv. Gunna

      Líkar við

      1. Gabríela Avatar
        Gabríela

        Kærar þakkir 🙂

        Líkar við

Skildu eftir svar við Halla halldórsdóttir Hætta við svar