• Ein af uppáhalds bókunum mínum er „Blómin á þakinu“ og fjallar um hana Gunnjónu sem ræktar garðinn sinn á svölunum sínum… Ekki það að ég sé með mjög græna fingur, reyndar eru þeir svo föl grænir að ég jafnvel drep gerfiblóm 😦  En nú hef ég verið svo „heppin“ að það hefur ringt svo mikið í sumar að jarðaberjaplönturnar mínar lifa nokkuð góðu lífi á svölunum mínum.   Maður hefur reynt að taka þetta á Pollýönnu háttinn og troðið upp með sól í hjarta og söng á vörum ( þó ég sé nú kannski ekki besti söngvarinn í Hafnarfirði 😉 )  Ég skellti mér út í morgun og smellti nokkrum myndum af „ljúfum sumardegi“ eða þannig…

    IMG_0365                                 Sko það verður svoleiðis sultað og saftað af allri uppskerunni…

    IMG_0366                              Þetta er eiginlega spurning hvort maður eigi ekki að halda uppskeruhátíð í haust…

    IMG_0368                                …og þessi hangir bara í rigningunni dag eftir dag…

    IMG_0369                              Það er nú smá litur úti í gráleita sumardeginum ;)

    IMG_0370                                  …og hér eru blómin á þakinu.  Endilega njótið dagsins, það ætla ég að gera 🙂

    Kveðja Gunna

  • Ég rakst á falleg egg í Tiger um daginn og að sjálfsögðu komu þau heim með mér… 😉  ég bara verð að leyfa þér að sjá þau líka og hér koma nokkrar myndir…

    IMG_2158                                   Eru þau ekki doldið bjútý…

    IMG_2159                                     þau lúkka bara eins og alvöru postulín…

    IMG_2160                                 …og svo eina enn, því  þau eru algjört augnakonfekt, er það ekki?

  • Jæja í dag ætla ég að skella inn nokkrum myndum af gömlum leikföngum sem til eru á heimilinu…

    IMG_0001                                    Ofan á hillunni trónir gamli bangsinn hans Dóra og í efstu hillunni eru gamlar gersemar, bækur frá mömmu; „En hvað það var skrýtið“ og „Litla kvæðið um litlu hjónin“  svo er þarna gamli rauði Volkswagen hans Dóra, sem hann fékk í denn.

    IMG_0002 IMG_0003

    IMG_0004                               Gamli bangsinn hennar mömmu, klukkubók…   gamla matarstellið mitt og annar gamall bíll sem Dóri á… svo er þarna yndisleg falleg, gömul stafabók sem ég fékk þegar ég var „yngri“ 😉

    IMG_0005

    IMG_0007                             Bangsinn og dúkkulísur í ramma…  Litla bláa rúmið er frá mömmu og því fylgdi lítil dúkka og rauð sæng sem var úr plasti… 

    IMG_0008

    IMG_0011                              Hver man ekki eftir „Mínútunni“ frá því í lestrarkennslunni í denn… það leynast nú fleiri gömul leikföng hér og þar um íbúðina kannski fer ég hringferð fljótlega með myndavélina hver veit…

  • Ég elska rigningardaga, því þá er ekkert eins skemmtilegt og snuddast eitthvað inn við og t.d. sauma eða gera ýmsar breytingar 😉 Ég virðist ætla að verða svo heppin að þetta sumar ætlar að verða frekar blautt og þá er nú kátt í koti… í dag fékk ég þá flugu í hausinn að sniðugt væri að dubba dulítið uppá lampana í svefnherberginu, mér fannst þeir frekar strípaðir greyin. Ég fékk þessa flottu blúnduleggingu í versluninni Twill  www.facebook.com/pages/Twill-Vefnaðarvöruverslun/323593651018090?ref=ts    maður getur nú alveg misst sig þar inni! En ég stóðst freystingar að þessu sinni… Kíktu á myndirnar af framkvæmd dagsins 🙂

    IMG_0319                            Hérna er´ann áður en frúin skellti sér í verkið…

    IMG_0320                   …og eftir meðhöndlun!

    IMG_0321                                  Ég passaði mig nú samt á því að festa blúnduna ekki of kyrfilega, því maður veit aldrei…

    IMG_0326                  Falleg blúnda…

    IMG_0327                           Maður verður nú líka að prófa hvernig lúkkar þegar ljós er á græjunni…

    IMG_0329                    jú held þetta virki bara!

    Kveðja út í sumarið, Gunna

  • Nú í vikunni fór ég í heimsókn í „þann góða“ og hafði allann heimsins tíma til að skoða öll djásnin sem þar er að finna 😉  Ég fór nú upphaflega til að athuga hvort ég fyndi kaffipokahring í gamla kaffikönnu sem ég á og langaði til að sauma gamaldags uppáhellingarpoka í hana! En það var engan kaffipokahring að fá 😦 eeeeen ég fann annað!!!! Mér hefði aldrei dottið til hugar til hvers græjan væri notuð, ef ég hefði ekki verið búin að sjá svipaðann hlut í flotta blogginu sem Dossa heldur úti, sjá nánar hér; http://www.skreytumhus.is/?p=14249  ójá ég er að tala um jólasokkahaldara. Jedúdda mía hvað ég var kát og ég bara VARÐ að prófa þennan nýja fallega hlut þegar ég kom heim!!!! ok ég veit að  það eru ca. 165 dagar til jóla, en maður má nú prófa smá! Hér eru nokkrar myndir svo þú getir líka dáðst að  fallega jólasokkahaldaranum mínum… og kíktu bara á!

    IMG_0311                                Hann er flottur…

    IMG_0312

    IMG_0313

    IMG_0314                                  Maður verður nú að prófa þetta alla leið með sokk og alles…

    IMG_0315

    IMG_0316

    IMG_0317

    IMG_0318

                        …það væri nú ekki slæmt að finna fleiri svona… 😉

  • Við skelltum okkur í Borgarnes s.l. laugardag á Brákarhátíðina. Eftir góðan bæjarrúnt að skoða skreytingarnar í hverfunum þá ákváðum við að kíkja við í Blómasetrinu https://www.facebook.com/pages/Bl%C3%B3masetri%C3%B0/177092862372383?ref=ts&fref=ts   En það er yndisleg blómabúð og kaffihús. Ég hvet bara alla sem leið eiga um Borgarnes að kíkja þar við…   en vitið hvað, ég sá svo fallegan bókastand sem langaði svo svakalega með mér heim, að ég gat ekki neitað hvorki honum né mér um´ða… 🙂 Hér eru nokkrar myndir af´onum… kíktu á!

    IMG_0244                                  Hér er búið að stylla upp vininum og hann heldur uppi fallegri bók sem ég fékk í afmælisgjöf…

    IMG_0245                          …er´ann ekki fallegur??

    IMG_0246             …aaaaaahhhh…

    IMG_0247                                  Svo skiptir maður bara út og skellir uppáhaldsbókunum sínum upp til skrauts, nú og svo er maður miklu viljugri að flétta bókum sem eru aðgengilegar…

    IMG_0250                                 Ein svona yfir svæðið…

    IMG_0255                                 …og önnur…

    IMG_0257                              kveðja út í sumarið… Gunna 😉

  • Á yndislegum sólardegi dregur maður upp sumarlega bolla og drekkur morgun kaffið sitt úti í sólinni…

    IMG_0219                  Húsbóndinn fékk að sjálfsögðu bakkelsi með rjóma flóuðu kaffinu… 

    IMG_0223                                 …og bleiki fiðrildabollinn var minn þennan sólarmorgun…

    IMG_0224                     …ummmm sjáið bara flóaða rjómann…

    IMG_0226Jarðaberjaplönturnar á svölunum dafna vel og nú eru komnir knúmpar svo það fer að styttast í jarðaberin mín… 😉

    IMG_0238það er dásamlegt að skella tánum upp í loft á svona sólarsunnudegi…

     

     

  • hér kemur framhald frá því í gær…

    IMG_0141                   Muffinsform í öllum stærðum og litum sem standa öllu jöfnu ónotuð… það er þetta með gölluðu húsmæðragenin 😉

    IMG_0142                            Gréta…

    IMG_0145                                 Litli skápurinn minn…

    IMG_0148                             Gamlir dýrgripir sem ég kríaði út úr mömmu og pabba…

    IMG_0149                    Uppáhalds…

    IMG_0150

    IMG_0155                                 gott að hafa smá yfirsýn…

    IMG_0156                                Stóri skápurinn með fullt af fallegum munum og minningum…

    IMG_0159Kristall… klinggg

    IMG_0162                         Kexkrús frá Gunnu ömmu, ég var ekki gömul þegar ég fór að gefa henni þessarri auga 😉

    IMG_0164                   Glasabakkar a la Gunna amma. þeir eru svoooo mikið uppáhalds þessir…

    IMG_0166                      Meðdiskur og undirskál úr Gullfossarstelli sem Gunna amma og Gústi afi fengu í brúðkaupsgjöf 1939.  Himneskt og mikið uppáhalds…

    IMG_0167                                   litirnir í þessu stelli eru yndislegir, bara bjútí…

    IMG_0174                        Dásemdir á öllum hæðum…

    IMG_0176                                   við gefum honum smá „hornauga“svona  í lokin…

    Sunnukveðja Gunna

  • Stofuskáparnir mínir geyma ýmislegt fallegt, en ég þarf að flytja hluti til þar eins og annars staðar. kíkjum á…

    IMG_00                        Skáparnir mínir sem hafa haft nokkur litatilbrigði  í gegnum tíðina 😉

    IMG_01

    IMG_0027Gömul Helga Sigurðar matreiðslubók og bollar frá Gunnu ömmu ofan á hnífaparakassanum góða…

    IMG_0028

    IMG_0033djús, djús, djús, djús í glas…

    IMG_0034

    IMG_0036                        Bollarnir mínir…

    IMG_0039

    IMG_0040

    IMG_0041                                Gler af ýmsum toga og Hans og Gréta…

    IMG_0043

    IMG_0047                               Þessa lampa átti mamma en ég geng með þann draum að fá nýtt gler á hjá stráknum. Veit einhver hvar helst er að leita að svoleiðis?

    IMG_0055                        upplýstir munir…

    IMG_0056

    IMG_0057

    IMG_0059Hans og Gréta vakta svæðið…

    IMG_0061                               fleiri skápamyndir á morgun…

  • jæja í dag kom yfir frúna einhver löngun til að betrumbæta „gamla“skál, sem yrði svo flott undir eitthvað góðgæti í sólinni þ.e þegar hún fer að skína… ég á nokkra porstulín-liti frá A4 sem hægt er að brenna í bakarofni. þannig að það var ruðst í verkið…

    hvít skál sem keypt var í söstrene grene www.facebook.com/sostrenegreneisland

    IMG_0196

    ég teiknaði myndir af hænum á blað og yfirfærði  síðan á skálina með kalkipappír…

    IMG_0197

    Ég teiknaði síðan á skálina með svörtum porstulínslit, ég notaði gamlan plekpenna til að gera útlínurnar.  Það var ekki alveg nóg og flott, en ég lét það duga 🙂

    IMG_0200

    smá lit bætt á og svo inn í ofn í nokkrar mínútur…

    IMG_0201

    …það er sniðugt að skreyta gamlar skálar og krúsir til að fríska upp á útlitið . Eða hvað finnst þér? 😉

    IMG_0203