Skip to content

Hvítar rósir og rómantík…

    • Um mig

recent posts

  • Baðherbergið framh.
  • Baðherbergið málað…
  • Ágúst, ljós og rómantík…
  • Svefnloftið ný málaði…
  • Garðvinna, dittað að og málað

about

  • Twitter
  • Facebook
  • Instagram
  • Kjóll 35#

    mars 23, 2014

    Þá er komið að hinum vikulega lið bloggsins þ.e. kjóll vikunnar 😉 þessi er víst númer 35!  Kjóllinn er svartur, ítalskur design 🙂 ja alla vegana sagði konan í búðinni það! hann er með „loftgötum“ á ermunum sem er svakalega sniðugt því maður getur bæði látið sjást í hold úlala, nú eða verið í lituðum bol undir. Í þessarri myndatöku var rauður bolur -að sjálfsögðu, notaður! kíkjum á gripinn…

    IMG_0760

    1 2 3 4

    Hálsmenið er „home design“ og passar svona assssk… vel við kjólinn þegar ermarnar eru með rauðu… 😉

    5 6

    kjólakveðja úr Hafnarfirðinum…

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Brot af bloggi…

    mars 20, 2014

    Frúin er svo svakalega bissý þessa dagana en má til með að skella inn sýnishorni af því sem er verið að dúllast við og er svo væntanlegt inn á bloggið… 😉

    collage

    Sjáumst kveðja Gunna!

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Gullið úr „þeim góða“

    mars 19, 2014

    Ég kíkti í „þann góða“ um daginn og datt niður á ýmislegt mjög nytsamlegt 😉 Það yndislega við verslanir eins og „þann góða“ er að, það sem sumum finnst „drasl“ er“ gull“ fyrir öðrum… ælovit 🙂 en ok ég var þarna hálf inní hillunum nema hvað, ég alltaf svo heppin, sá þarna liggjandi tvö glerlok (eins og Dossa gerði um daginn sjá hér ) nú þau bara góndu á mig og vildu koma með mér heim! æi ég lét það eftir þeim og áfram lék lánið við mig… sjáið bara!

    …Jáhá því heima beið hann þessi ræfill loklaus og vesæll. Heppin? ha 🙂

    1

    nú ok og haldið ekki bara að minna lokið hafi smellpassaði svo á stórann glerdall sem gætir kertanna minna þessa dagana. Flottur? ha

    2

    Hérna er smá útsýnisflug yfir svæðið.  En hvítu vírkörfuna fékk ég í Blómaval um daginn, ég bara stóðst hana ekki…

    3

    …en svo ÞURFTI frúin að kíkja smá í Söstrene Grene og heppin ha? fann þessi líka krúttilegu „járn“spjöld! Einmitt eins og mig hefur sko ALLTAF vantað! jaá auðvitað var  strax byrjað að útdeila spjöldunum, og nammikrúsin fékk eitt (þarna vantaði enn merkingu á spjaldið, sumir eru ekki hvatvísir ha  😉 )

    4

    …og kertakrukkan mín fékk eitt, jiiii hvað ég er ánægð með kaupin! 🙂

    5

    kveðja Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Kúl gæjar og háhýsi

    mars 17, 2014

    Ég hef verið að dáðst undanfarið af svo flottri mynd, sem tekin er af byggingaverkamönnum að borða nestið sitt uppi á járnbita á háhýsi…   þessa mynd langar mig svakalega að fá á púða.  Ég prentaði út á pappír myndina og skellti henni á kerti, sem kom bara nokkuð vel út og nú er stefnan sett á að prenta út myndina af gæjunum að leggja sig  þarna uppi á járnbitanum 😉  svona til að milda biðina eftir púðanum mínum,  þá fékk  ég  flottan púða með mér heim frá RL-design 😉  kíkjum á málið…

    púðinn er með flottri mynd af háhýsum…

    1

    Kertið mitt með  cool gæjum á og smá yfirlit yfir svæðið…

    2

    Þessa „lituðu“ mynd langar mig að fá á púða og svo ætla ég að setja „hvíldarstundina“ á annað kerti…   En það hefur ekki verið í lagi hjá þessum gæjum að hanga nánast í lausu lofti eins og ekkert væri. Ég myndi allavegana ekkert vera mjög svöng í þessarri hæð… 😉

    6

     

    kveðja Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Kjóll 34#

    mars 16, 2014

    Kjóll vikunnar er „gamall“ eða þannig 😉 hann er uppáhalds eins og flestir af mínum kjólum eru reyndar… Þessi er svartur með hvítum doppum, ooohhh ég elska doppótt…

    Þessi flotti kjóll er með pífu neðan á pilsinu, í kringum hálsmálið og um handveginn… Ég bara varð að setja hvíta peysu með, það var eitthvað svo sumarlegt -því núúú  hlýtur vorið alveg að vera að koma 🙂

    1

    ég er kannski dálítil blúnda… Því ég fell auðveldlega fyrir pífum og púfferíi!

    2 3

    Það er ekkert skrýtið þó þessi sé uppáhalds, hann er bara dásemdin ein!

    4

    ok ég missti mig kannski aðeins í myndatökunni, en hann er svo flottur þessi kjóll!

    5

    og ein enn í lokin… njótið dagsins 🙂

    6

     

    Kveðja Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • það glyttir í gult…

    mars 15, 2014

    Ég fór í Pier um daginn og bókstaflega rakst á, svo fallegar gular sólblómaskálar. Þær voru líka á útsölu og það gerði okkur strax að vinkonum 😉 Ég verð nú samt að viðurkenna að það hljóp smá roði í vangana þegar ég borgaði heilar 200 kr fyrir þessar skálar… 🙂

    Þeim verður sko örugglega fundið gott hlutverk á páskunum þessum…

    IMG_0668 collage

    eru þær ekki voða sumarlegar og glaðar??

    IMG_0672

    kveðja Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • og helgi enn og aftur…

    mars 14, 2014

    …og ég set bara upp sparihattinn henni til heiðurs 🙂

    images

     

    Kveðja Gunna 😉

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Ég á loðkoll…

    mars 13, 2014

    Ég sá um daginn svo flott skinnefni á blogginu hjá henni Ragnhildardottir  þar sem hún setti „skinn“ (sem keypt var í Twill) á stól… Ég fór og keypti mér smá bút til að setja á gamlann koll sem ég á og búið er að stytta fæturnar á, þar sem einn brotnaði 😉 þannig að nú er hann skammel 🙂 kýkjum á gripinn…

    hérna er „skinnið“ ég keypt 50 cm. en það er ca 140 cm á breidd svo það varð afgangur sem nýttur var í annað… 😉

    IMG_0550

    Kollurinn er búinn að þjóna vel og er lúinn!

    IMG_0582

    einn fóturinn gaf sig um miðju svo við söguðum hina bara líka af…

    IMG_0583

    „skinnið“ klippt og tilbúið…

    IMG_0584

    það passar…

    IMG_0585

    búið að festa „skinnið“ á…

    IMG_0587

    sjáið bara hvað skammelið mitt er orðið flott!  Eeeen ég held að ég máli fæturnar, það toppar hann örugglega 🙂

    IMG_0588

    ooohhh ein svona auka og í nærmynd.

    IMG_0597

    kveðja Gunnan 🙂

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Heppna ég…

    mars 12, 2014

    Ég setti inn póst  fyrir  dálitlu síðan sjá hér:    https://gunnabirgis.wordpress.com/2013/06/22/margt-byr-i-skapunum-taka-1/  þar sagði ég m.a frá litlum lömpum sem  mamma átti og gaf mér. Á annan vantaði glerkúpul og skermir og ég er búin að  vera að leita að gleri á ´ann. En hvað haldið þið að gerst í dag 🙂 jú ég heimsótti „þann Góða“ og hver haldið þið að hafi bara staðið upp í hillu og horft yfir svæðið sultu slakur, jú einmitt þessi hérna…

    IMG_0654

    Úlalala heppna ég bókstaflega hrifsaði þennann flotta gaur úr hillunni og hann er með heilan glerkúpul 😉

    IMG_0655

    sjáið bara systkinin, þau eru sameinuð eftir áralangan aðskilnað!

    IMG_0650

    hér eru þessi „gömlu“

    IMG_0649

    þessir lampar eru bara yndislega fallegir ❤

    IMG_0646

    Nú verð ég bara að finna leið til að steypa skermir á lampana, ég var að vísu búin að fá nýjan glerkúpul en hann er aðeins of hár…

    collage

    finnst ykkur ég ekki heppin?

    kv. Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Kjóll 33#

    mars 9, 2014

    KJÓLAdagur runninn upp enn og aftur og enn er til kjóll til að sýna 😉 Í dag er það rauður kjóll, minn uppáhaldslitur… þessi er nýlegur og er æðislega flottur -að sjálfsögðu!  kíkjum á gripinn…

    Sjáið bara hvað hann er lekkert, hálsmálið er hátt, en gerir mjög mikið fyrir kjólinn…

    1

    rennilásinn er bara til skrauts, þetta er enginn vasi 😉

    collage collage2 collage3

    Ég er ógurlega hrifin af stúkum og nota þær mjög mikið sérstaklega yfir vetrartímann. Þær geta verið skemmtileg viðbót við flíkina 🙂

    collage4

    Þessi kjóll er nákvæmlega eins þæginlegur og hann lítur út fyrir að vera…

    2

    eigið góðan dag…

    Kveðja Gunna 🙂

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
Fyrri síða Næsta síða

Bloggaðu hjá WordPress.com.

Hleð athugasemdir...
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    Hvítar rósir og rómantík...

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • Hvítar rósir og rómantík...
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar
%d