Flokkur: Fyrir og eftir

  • Jæja verkefni helgarinnar er veggmálun, þ.e. ég málaði „límmiðamynd“ í holið hjá mér. æi mér fannst veggurinn frekar nakinn eins og hann var.  Að sjálfsögðu fékk frúin frábæra hugmynd, nú en að mála bara mynd á´ann 🙂 svona leit skotið út áður og… …svona á eftir Hér er verkið nýhafið… …og hér langt komið… …úlala…

  • Ísskápurinn á heimilinu er komin af sínu léttasta skeiði og er orðinn dulítið sjoppulegur, þ.e hurðin á honum.  Nú og svo safnast „óvart“ á hann ýmislegt sem maður ætlar að muna eftir…  Einn daginn þegar ég var að vafra um Pinterest sá ég lausnina, það var að líma „töflu“ límmiða á hann. mér finnst nú…

  •  Ég sá um daginn svo svakalega sniðuga hugmynd um hvernig hægt væri að fegra glugga með límmyndum http://dossag.blogspot.com/2012/07/innblastur-og-utkoman-part-i.html  Klósettglugginn hjá mér er með filmu og því smellpassaði þessi frábæra hugmynd fyrir mig.  Ég skellti mér í Söstrene Grene og keypti fallega fuglalímmynd og svo var bara að puða´essu upp… …og hvað finnst ykkur er þetta ekki…

  • ég á svo svakalega mikið að allskyns glerkrukkum að é ákvað að gera smá prufu sem ég sá einhvern tíman einhver staðar á netinu 🙂 fann ekki linkinn þegar ég ætlaði að setja hann með! en þetta er ekkert mál bara að gera svona:                                                                      blanda matarlit í smá vatn, og hrærði það síðan út í…

  • Ég rakst á svo sniðugt á einni heimasíðunni þar sem egg voru soðin í silkibindum og mynstrið bókstaflega soðnaði við skurnina. Ég bara varð að prófa þetta NÚNA STRAX 😉 Að sjálfsögðu var myndað fyrir og eftir… fyrir þá  sem hafa áhuga þá er slóðin á síðuna:     http://www.ourbestbites.com   Kveðja Gunna

  • Ég er afskaplega hrifin af öllu sem tilheyrir Búdda og á nokkra fallega t.d. þennan krúttlega, eeeen mér hefur alltaf leiðst liturinn á honum!!! og nú er tími spreybrúsans og því engu hlíft… svona leit ´ann út fyrir… …og bara sætur á eftir. kveðja Gunnan  

  • Hér koma nokkrar myndir af litlu borði sem ég keypti í R.L design 🙂 En ég bara hreinlega gleymdi að taka mynd af því áður en það var meðhöndlað með Kalkmálningunni góðu… Fallega styttan sem hún Gunna amma mín gerði, sómar sér mjög vel á svona stalli!!   Auðvitað fékk skúffan nýja höldu.   Kveðja…

  • Örlítið innlit með myndir frá deginum í dag. R.L. bakkinn er bara flottur og tekur sig vel út með líflega græna litinn og smá blómum! Fyrir og eftir myndir af gömlum kistli sem hefur lengi legið í geymslunni minni  og geymir gamlar einkunnir fjölskyldunnar og fleira skólatengt 🙂 Kveðja Gunna 🙂

  • Helgin mín fór í ferðalag og því gafst lítill tími til dundurs, en þó var hægt að skella sér í smávæginlegar breytingar 🙂 gamlir blómapottar fengu smá andlitslyftingu og oft þarf ekki annað en… …smá blúndudúllerý. Flottur bakki frá R.L design á 300 kr, en þó dulítið litlaus með „drullulituðum“ dúk 😦 … … og…

  • þegar frúin á einhvað sem ekki er í réttum lit, þá einfaldlega hættir hún ekki fyrr en hún hefur fengið „nýjan“ lit á hlutinn 🙂 t.d þá á ég slatta af hvítu frekar litlausu basti, nú og mig langaði að lífga dulítið uppá´ann. þá kom hinn góði litur þ.e. matarliturinn upp í hugan og grunaði…