• jæja þá er allt komið eins og það á að vera í nýja fataherberginu okkar. Lúngan úr helginni var verið að skrúfa saman kommóður og raða ofaní og á…

    image
    Ekki veitti af því að kaupa stóra  kommóðu undir þann fatnað sem ekki þykir nóg og merkilegur til að vera sýnilegur upp á slá…

    image
    Skór og skart eitthvað er nú til af svoleiðis í no.14….

     

    image
    Fataherbergisglugginn er að vísu enn svolítið óráðinn…

     

    image
    Úlala hér er kíkt inn í dýrðina… og ég er alveg að elska þetta herbergi!
    image
    „Litla“ kommóðan tekur sig líka mjög vel út hér inni en hún tekur sko drjúgt af fatnaði eins og stóra systir hennar gerir líka….

     

    image
    Hvíta mottan gerir herbergið  dulítið hlýlegra…

     

    image
    Samkvæmisveski og meira af skarti og skrauti…

     

    image
    Nýju æðislegu skórnir mínir fá að vera sem skraut til að byrja með. Þeir eru sko ekki bara bjútý heldur eru þeir einstaklega mjúkir og þæginlegir. þá fékk ég í Twinkledeals.com

     

    image
    Skartskál…

     

    image
    Heimagerðu skókassarnir mínir og skór tróna upp á hillunni…

     

    image.jpeg
    Til að toppa hilluna var skraut sett á hillulistann….

     

    …jæja þá getur maður lagst í næsta verkefni…

    …en endilega látið mig vita hvernig ykkur líst á þetta verkefni 🙂

    slide1

  • …mitt er orðið að veruleika. Aaaha já við erum að tala um FATAHERBERGIÐ. Sko í húsinu no.14 eru í reynd engir fataskápar, jú ok nokkrir gamlir og mishressir frá RL-design. Því var spurningin um að kaupa góða alvöru skápa eða spandera einu herbergi (af 7) í fataherbergi. Þar sem herbergið við hliðina á hjónaherberginu lá vel við höggi til að opna á milli -að mati frúarinnar, var farið í fyrsta stig verksins. Þ.e selja eiginmanninum hugmyndina. Ókey það tók dulítinn tíma, en með aðstoð dyggra vina keypti hann hana fyrir rest. Eeeen verkið yrði ekki unnið fyrr en í haust… nú svo Frúin er búin að bíða spennt og frekar óróleg eftir haustinu síðan snemma í sumar 🙂

    Loksins rann fallegur haustdagur upp og verkið fór á fullt og trúið mér svona okkar á milli þá er eiginmaðurinn ekki minna ánægður með´etta en ég -þó hann hafi ekki hátt um´ða. Skiljanlega hehehe :). En kíkjum saman á´etta…

    14331603_10210684541735441_2128554146_n

    img_0211 img_0223

    14315582_10210684533335231_1005448540_o

    img_0257

    img_0227 image

    img_0213 img_0225img_0260

    img_0217   img_0222  img_0226  14341663_10210695336965315_928393311_n

    img_0218  image.jpeg14331603_10210684541735441_2128554146_n

    14341797_10210695334365250_871333834_n

    14349115_10210684520654914_199956919_n14340092_10210684539335381_383255504_oimg_0267img_0258

    14274384_10210684535495285_1938226812_o14330953_10210684522054949_1101250224_n

    img_0265img_026614302830_10210684528495110_1490625200_n14341614_10210684529575137_396374453_n14348932_10210684524895020_958378672_n

    14365516_10210695331205171_304609288_n

    Verkið er ekki alveg búið, þar sem eftir eru að koma kommóður inn í herbergið. En Frúin í no. 14 er frekar óþolinmóður einstaklingur og gat ekki beðið með að deila dýrðinni með ykkur…  En þið fáið svo nyjar fréttir þegar allt er reddý 😉

    Slide1

     

     

     

  • Ég á svo svakalega fallega og stóra kertalugt. Mér fannst hún að vísu þurfa smá upplyftingu og ákvað að gera eitthvað með það….

    IMG_0246  IMG_0247

    ..og hvað haldið þið, nema hvað Frúin tók fram málningu….

    IMG_0248

    …HVÍTA nema hvað ❤️

    Hér er verkinu alveg að ljúka og búið að klæða skúffurnar með voða lekkert pappír -sést reyndar ekki mjög vel…

     

    IMG_0250
    Hér er hún tilbúin og búið að tendra á kertum, ég er svakalega ánægð með hana…
    IMG_0251
    …og svei mér þá ef Krúsidúlluskrautið nýtur sín ekki bara betur núna…
    IMG_0256
    Úlala… fullar skúffur af glingri!

    IMG_0255

    Slide1

     

  • Nú eru framkvæmdir hafnar á nýja fataherberginu hér í no.14. þá þarf að undirbúa eitt og annað sem þangað inn á að flytja.

    Til dæmis þessi pappaskja sem ásamt systrum hennar var keypt í ,,þeim góða“ hér um ári, hún þurfti að fá nýtt lúkk. Hún var bara ekki að standast þær innflutningskröfur sem Frúin er að gera í sambandi við ,,lúkkið“

    IMG_0232

    …nú þá er ekkert annað í boði en að ná í málningu og skella á öskjurnar.  Guðrún Margrét ömmustelpan mín kom í heimsókn, þegar ég var búin að klína hvítum lit á þær. Blessað barnið spurði mjög undrandi út í hvort ekki ættu að vera doppur á öskjunum. Já sumir þekkja ömmu sína… Að sjálfsögðu var málinu reddað hið snarasta og doppur settar á 🙂 Þetta var bara allt annað…

    IMG_0244

    jæja í næsta bloggi ætla ég svo að sýna ykkur hvað Frúin gerði við nokkra skókassa sem leyndust uppi á háalofti…

    Slide1

     

  • Frúin hefur mikið verið að nota dúka síðustu dagana og það nýjasta er að hekla gamlar litlar dúllur á járnhringi. Það merkilega við það, þegar maður vill gera eitthvað sem manni finnst mjög sniðugt og áhugavert þá finnur maður ekki efniviðinn! Þannig er það nú þessa dagana ég bara finn ekki fleiri litla dúkadúllur ég er búin að leita og leita en… jæja það hlítur að poppa upp einn daginn 😉

    en ég leyfi ykkur að sjá það sem er komið…

    Ég keypti tvær stærðir af hringjum, þetta eru minni hringirnir. Þessi dúkadúlla er gömul og farin að rakna smá upp.

    hekl

    Verkið gekk bara fljótt og vel… -það hentaði líka frúnni mjög vel 😉

    hekl2

    dinglandi dúlla…

    hekl3

    …frú bráðlát bara varð að taka mynd þó það væri ekki komin nema einn hringur og ekki búið að hengja hann upp…

    hekl4

    Njótum dagsins kveðja Gunna

  • Ég eignaðist um daginn þennan æðislega prinsessu-baststól og borð í stíl. Hugmyndin er að mála stólinn og borðið fljótlega…

    IMG_0154…hér er svo annar baststóll sem ég fékk gefins ásamt bróðir hans fyrr í sumar…

    IMG_0155uppáhalds blöðin mín Jeanne d´Arc Living..IMG_0156Sólstofa sem stendur undir nafni þessa dagana…IMG_0157Hann er flottur, en á eftir að verða flottari…

    IMG_0158

    Nú fer að skella á kerta og arentími…IMG_0159

    Kósýhornið mitt…IMG_0160Kvölda tekur, sól er sest…  Ég bara varð að skella inn nokkrum kvöldmyndum líka.IMG_0169Það er svo sannalega róandi að sitja í sólstofunni þegar búið er að kveikja á seríum og kertum…

    IMG_0170

    Kertatími…IMG_0171

    …sá nýji…IMG_0172

    blaðagrindin mín…IMG_0173

    og meira af uppáhalds…IMG_0174

    Ljósastaur og alles.,

    IMG_0175

    Ró…IMG_0177Blúnduljós…IMG_0178

    IMG_0176

    Slide1

  • …frá því ég var lítil stelpa hefur mig dreymt um að eiga herbergi undir súð. -og nú hefur sá draumur ræst og ég búin að pota mér þar niður með fullt af minningum og allt hitt „vesenið“ mitt.

    g1

    …ég er bara að elska þetta herbergi…

    g2 g3

    …kefli, borðar og bönd…

    g4

    …gömul leikföng…

    g5

    …gamla lampann fékk ég í jólagjöf frá eldri syni mínum og tengdadóttir, en ég átti einn alveg eins sem lítil stelpa…

    g6

    spegill-spegill…

    g7

    …lovit…

    g8

    …eigum við að ræða þessa eitthvað… -þeir eru sko uppáhalds ❤

    g9

    …bjútý púðinn minn með „fallega“ manninum….

    g10

    ..minningar….

    g11

    …gardínurnar gerði ég úr tveimur bróderuðum koddaverum, sem við fengum í jólagjöf frá góðum vinum, mér fannst þau svo falleg að ég tímdi ekki að „slefa“ í þau…

    g12 g13

    …á bak við leikföngin er djúpur skápur sem geymir ferðatöskur og annað sem þarf að „fela“…

    g14

    …ág nota tvíbreiðusængina sem „rúmteppi“…

    g15

    …horft til dyra…

    g16

    …diskarekkann okkar nota ég undir sérvaldar bækur og blöð…

    g17

    bakki með dúllerýi og hárburstanum hennar Gunnu ömmu, en hún fékk hann í fermingargjöf…

    g18

    … ❤ …

    g19

    …þessi sæti fylgdi eiginmanninum…

    g20

    …gömlu gólffjalirnar eru himneskar…

    g21

    …erum við ekki sammála um þetta er bara bjútý…

    g22

    …rökkrið er farið að færist yfir…

    g23

    góða helgi…

    Slide1

     

  • …er  á efri hæðinni og var upphaflega hugsað sem hjónaherbergi en þar sem það er útgengt út á svalir í þessu herbergi ákváðum við að hafa þetta sem sjónvarpsstofu, líka afþví að þetta er svo vel stórt rými.

    kíkjum inn…

    1

    …og sem fyrr finnst mér voða gaman að leika mér að fyrir og eftir myndum þ.e frá því daginn sem við tókum við húsinu og svo eftir okkar „meðhöndlun“…   Hvíti sófinn er voða þæginlegur kvöldkúrísófi, en hvíta Húsbóndastólinn í horninu fann ég í „þeim góða“ og þreif hann bara upp, en  hann er alheill og óslitinn. Svo kostaði hann bara litlar 2500 kr. ❤  Gardínurnar eru enn á hönnunarstigi en ég á eftir að sauma á þær upphengjur…

    2

    Við settum aðra glerhurðina sem var tókum niður niðri og settum hana hér, þetta gerir ganginn frammi bjartari og svo eru glerhurðir alltaf svo miklar „drottningar“ og gera því svæðið virðulegra.  Við ætlum svo að mála allar hurðirnar í húsinu hvítar í vetur…

    3

    …og hér eru fleiri fyrir og eftir…

    4

    …hurðin í horninu er svalahurðin, en þær eru sko tvær ein sem opnast inn og svo önnur sem opnast út…

    5

    Ég er voðalega glöð með þetta herbergi og það er bara notalegt að sitja þarna og góna á sjónvarpið og prjóna…

    6

    Hurðin góða…

    7

    …það er nú ekki komið mikið upp á veggina ennþá, því við viljum máta okkur og húsgögnin saman áður en maður fer að drita nöglum upp um alla veggi…

    8

    10

    Svalahurðin gamla og góða…

    9

    …og þetta er m.a sú sýn sem blasir við manni þegar setið er í makindum í sólstól úti á „forsetasvölunum“.  Himneskt!!!

    12

    Bara ein í viðbót úr kyrrðinni…

    11

    Sólarknús…

    Slide1

  • jæja þá er komið að því að kynna ykkur nýja eldhúsið.  Það er sá staður í húsinu sem er minn uppáhalds, að minnstakosti ennþá. Eldhúsið er alveg risastórt og er og verður sannkallað hjarta hússins.

    Eins og ég sagði ykkur frá þegar ég bloggaðið um baðherbergið hér þá voru skilin á húsinu frekar sjoppuleg og eldhúsið var engin undantekning á því. Ég var t.d. ekki nema 8 klst að þrífa eldavélina og bak við hana. Ég á myndir af því en ég ætla að hlífa ykkur við þeim… 😉

    Borðkrókurinn er æðislegur, rúmgóður og kósý

    eld1

    eldhúsið var hvítt og gult. Við ákváðum að hafa það grátt og aðeins grárra á milli innréttingarinnar,  við erum mjög ánægð með útkomuna…

    eld2

    …borðkrókurinn fyrir og eftir…

    eld3 eld4 eld5

    Við keyptum í vetur stórann Míruskáp sem eiginmaðurinn fékk að dudda sér við að mála hvítan í vetur. Útkoman er æðisleg…

    eld6 eld7

    …og þessi hornskápur fékk sömu meðhöndlun, hurðin á honum er í upphalningu hjá góðum manni hér í bæ…

    eld8 eld9

    svona virðuleg ljósakróna þarf nú að hafa fallega rósettu…

    eld10

    …útsýnið er yndislegt…  annar glugginn er lægri en borðið og  mér finnst ljótt að horfa  inn. Svo ég leysti það með því að setja „girðingu“ í gluggann og þá ber ekki eins á muninum.

    eld11

    Var ég nokkuð búin að minnast á þennan yndislega skáp…

    eld12

    Ömmur verða að eiga viðeigandi dót í eldhúsinu fyrir lítið fólk…

    eld13

    hmmmm… doppur er eitthvað sem er svo mikið uppáhalds…

    eld14 eld15

    Húsmæðradót… Emeleruðu skeiðarnar fékk ég í Brighton í yndislegri lítilli búð sem ég sagði frá hér

    eld16

    borðkrókurinn -hjarta hússins…

    eld17

    …þetta er snilld, útvarp innbyggt í innréttinguna…

    eld18

    Flottu krúsirnar sem ég keypti í yndislega kaffihúsinu Pallett í Hafnarfirði tróna á hornskápnum…

    eld19

    Doppuhornið góða…

    eld20

    Skápurinn fylltist fljótt af ýmsum gersemum…

    eld21 eld22 eld23

    eldhúskrókurinn…

    eld24

    borðkrókurinn…

    eld25

    Gaman væri nú að heyra frá sem flestum hvað þeim finnst um þessa breytingu.

    Njótum lífsins og sumarsins…

    Slide1

  • Jæja þá erum við búin að búa í eina viku í nýja húsinu okkar. Það er sko búið að vera mikið að gera, bæði að moka út, þrífa og mála. Við keyptum húsið með öllum húsgögnum, þar sem við  tókum við leigusamningum og leigðum áfram út herbergi til nema og því var húsið svona hálfgerð kommúna. Aðkoman að húsinu var nú eiginlega þannig að maður sá strax að „skítastuðulinn“ hjá leigjendunum hafði verið aðeins hærri en minn… 😉 Eeen það er búið að nota fullt af vatni og sápu og mála svo yfir síðustu dagana….

    Næstu vikurnar ætla ég svo að leyfa ykkur að fylgjast með breytingunum sem verða hér inni í þessu annars yndislega húsi.  Og í dag langar mig að sýna ykkur baðherbergið okkar og hér eru myndir fyrir og eftir sjæn… Við völdum okkur lit sem heitir Öldugrár og finnst mér hann algjört æði! Baðkerið er upprunalegt, gamalt, djúpt og notalegt. Okkur langar til að skipta út í „gamaldags“ krana bæði hjá baðkerinu og vaskinum svona uppá andann…

    Bað1

    bað2

     

     

     

     

     

     

     

     

    Bað5 Bað6

    það er dálítil breyting… og liturinn maður minn ælovit ❤

    Bað7

    við skiptum líka út höldum á skápshurðunum, en oft þarf nú ekki meira til að fríska uppá útlitið…

    Bað8

    Að sjálfsögðu er Frúin búin að prufukeyra „kósýstund“ í búbbúlbaði…

    Bað9

    Erum við ekki bara sammála um að baðherbergið hafi ákveðinn kósýsjarma…

    Bað11

    jæja manni er ekki til setunnar boðið, það þarf að skrúbba meira og mála. En þar til næst….

    Slide1