Ég á lampafót sem skermirinn brotnaði einhvern tíman af og ég á líka einmana skermir sem vantar félaga, svo ég ákvað að prófa að leiða þessa tvo saman og skoða svo árangurinn… -sem mér finnst bara nokkuð góður!





recent posts
about
-
-
Hver árstími á sinn sjarma. Vorið og haustið eru mínir uppáhalds… rökkrið gerir einhvernveginn allt svo sjarmerandi og róandi. Ég fór einn rökkurrúnt…
-
Hann er langur gangurinn sem tekur á móti gestum og gangandi á no.14. Útidyrahurðin er döööööökk brún og dreymir Frúnna um að hún verð máluð hvít, í nánustu framtíð. En það sem hefur kannski verið meira að ergja konuna er mottan sem er við útidyrnar. Hún er alltaf á ferinni… Við höfum verið að leita að mottu sem myndi henta og passa akkúrat inn á milli veggjanna….

Svona lúkkaði þetta út með „gömlu“ mottunni… 
….og hér er sú nýja. Við skárum hana til og ég límdi niður kantana svo þeir yrðu til friðs… 
Æi svo er ég lika dulítið veik fyrir fallegum regnhlífum, en hver er það ekki… 
Mikið rosalega held ég að gangurinn breyttist og birti yfir, við að fá hurðina hvíta… 
Ég er voðalega sátt við nýju mottuna og liturinn er góður… 
Ein svona kvöldmynd…. Hurðin er samt voðalega sjarmerandi, enda orðin hokin af reynslu…

…og hér sést þessi lika veglega hurð sem bíður bjartari lita… 
-
Ég tók upp nokkra stilki af Vínrabbabara úr garðinum mínum, en hann er rauðari sko rabbabarinn 😉 og gefur fallegri lit á hlaup og sýróp. Það er líka smart að blanda þessum „venjulega“ með svo maður fái aðeins meira af þessu góða hlaupi, því liturinn er það sterkur…

Rabbabarasýróp
½ kíló af vinrabbabara
2-3 dl vatn
1 vanillustöng, skorin eftir endilöngu1/2 kg. Sykur
Aðferð:
Allt sett í pott og soðið þar til skorinn rabarbarinn er orðinn vel mjúkur eiginlega bara grautur. Gumsið síað gegnum sigti eða klút, þá fást ca 3-5 dl af vökva.
½ kg af sykri soðið saman við vökvann í þar til það fer að þykkna og verða sýrópskennt, kælt og sett í krukkur eða sætar flöskur. Notað með ís og á pönnukökur eða bara í Mojito..
Ef maður er ekki með vínrabbabara þá myndi ég nota smá rauðan matarlit til að fá sýrópið fallega rautt… 
Rabbabara-og chillihlaup.
1 kg vínrabbabari
1 1/2 bolli vatn1 1/2 bolli eplaedik
750 gr sykur
3-5 rauð chilli stór
5-6 tsk Hleypir, ég nota þann rauða
Skera rabbabarann í bita, sjóðið í vatninu og edikinu í ca 20 mín eða þar til hann verður grautur. Gumsið er þá síað frá.
Úr þessu verður u.þ.b 0,8 líter af safti. Sett í pott ásamt smátt skornu og fræhreinsuðu Chilliinu, (ég set þó alltaf smá af fræjum með því þá verður þetta aðeins sterkara…) og sykrinum soðið í 10- 15 mín. Þá fer ég með töfrasprota og mauka vel chilliið. Sultuhleypirinn settur í og soðið upp á hlaupinu í ca 1 mín og hræra vel í á meðan. Sett í krukku og látið hlaupa áður en krukkunum er lokað…
Svo er bara að gæða sér á rabbabaramojito og osti með Rabbabara-chillihlaupi…. ummmm Njótið nú vel…

-
Þegar ömmur eins og ég bjóða börnunum sinum í mat þá er nú stundum dregið fram sparistell, sem stundum er komið með ættarsögu. Ég er samt ekki að segja að ég sé með lifið í lúkunum yfir þvi að eitthvað brotni, nei það er frekar að foreldrarnir svitni þegar diskar fara á flug. Allavegana finnst mér það skipta máli þegar manni er boðið í mat, hvernig borðbúnaðurinn lítur út. Þó að maður sé tveggja ára þá finnst amk ömmunni ekkert réttlæta það maður fái 2.flokks borðbúnað….

Amman fór til sænska frændans í Ikea og keypti nokkra fallega hvíta diska, í mátulegri stærð… 
…fyrst er að teikna líflega krakka á diskana, ég nota spritt til að hreinsa diskana áður en ég teikna með porstulínspennanum… 
…svo er að lita… 
….og lita meira… 
…þetta varð bara nokkuð líflegt hjá ömmunni…. 
…búin með fjóra…. 


Amman bara nokkuð sátt og heldur að yngstu matargestirnir verði það lika…. 
….en amman í no. 14 er svo mikil pera að hún er alltaf komin í næsta skref áður en því fyrra er lokið. Sumir kalla þetta hvatvísi…. en allavegana fannst mér vanta glös í stíl við nyju diskana. 
…svo var teiknað….. 
….og málað… 
…en til að halla ekki á kynin þá er stelpa öðru megin og strákur hinu megin á glösunum….. Hvernig líst ykkur nú á þetta?

-
Ég tók smá breytingaskeið í eldhúsinu í vikunni, setti m.a húsafilmu í einn gluggann. Sá gluggi er svona hálfgerður vandræðagemlingur þar sem hann er lægri en innréttinginn og lúkkar því ekki nóg og vel utan að séð… ég keypti mérkryddhillur í Ikea sem ég málaði hvítar nota sem skrauthillur…

Horft inn í borðkrókinn… 
Blómin mín sem eru svo heppin að vera nálægt vaskinum fá vatn reglulega, hin vilja gleymast… 
Þessa flottu húsafilmu fékk ég í Bauhaus… 

Kryddhillurnar úr Ikea eru notaðar undir Helgu Sigurðar. og Húsmæðrakverið góða…. 

Þessi húsafilma er góð lausn á að fela hæðamuninn á glugga og eldhúsinnréttingunni, utanað frá séð…. 


Platkerti sem gefur daufa og skemmtilega birtu á bakvið blómið… 




-
Mig hefur alltaf langað í „dömulegt“ hjól og þegar ég rakst á þessar flottu myndir af svo sannalega rómatísku og dömulegu hjóli þá varð ég bara að deila því með ykkur.
Hnakkurinn er yndislegur…
…og sjáið þið hekluð handföngin með dúllulegum blómum…
…og karfan svo fallega bólstruð og þar myndi nú rauðvínsflaskan nú eða „skíðafélagskakóið“ sóma sér vel ofan´í…
…bara dúllerí…
…meira segja brettin eru fagurlega skreytt…
…nú er bara að taka framm hekludótið og byrja 🙂
kveðja Gunnan
-
Jæja þá er komið að „föstum“ lið vikunnar þ.e kjólasýningin mín. Að þessu sinni er það hvítur sumarkjóll , en upprunalega var hann síður, en ég stytti hann… 😉 Hann er allur útsaumaður að framan og pallíettur saumaðar inní blómin -voða fallegur! kíktu nú á…
Pallíettur skreytt útsaumuð blóm...Hvítt sumarlegt veski er nauðsynlegt með svona flottum kjól…
…0g að sjálfsögðu eru hvít stígvél í stíl við veskið 😉
-
…vætir eða kætir, ég man aldrei hvort það er! En ég kætist amk yfir því þegar kvöldsólin sendir síðustu geisla dagsins inn um gluggana hjá mér…

Það er mjög vinsælt að setjast í hengiróluna sem inni í sólstofunni, enda er það mjög róandi… 
Sól úti, sól inni, sól bara sól… 
Það að fá sólardag vegur þungt… 
Sólhlíf sem bíður eftir vænum sólardegi… 
kertakróna og gluggi… 

Sólstofan… 









































