Flokkur: Óflokkað

  • Það var bara þannig veður eitt kvöldið að ég varð að kveikja á nokkrum kertum og seríum…

  • Ég lét gamlan draum rætast um daginn og skellti mér til Parísar… þar átti ég stefnumót við Effelturninn sem mig hefur lengi langað til að sjá. Og vá sá stóð sko svo sannarlega undir væntingum mínum, ásamt borginni fögru ❤ Að sjálfsögðu fengu nokkrir minjagripir að koma heim með mér… Svo læt ég nokkrar fallegar…

  • Ég sat yfir „júróvísionstuðinu“ og fannst illa farið með tímann svo ég fann mér smá verkefni…  ég teiknaði og litaði á litla diska sem ég hef hugsað mér fyrir yngstu ömmukrílin þegar þau koma í mat til okkar. Æi mér finnst leiðinlegt að bjóða þeim uppá plastdiska á meðan fullorðna fólkið fær spariborðbúnað… það fær…

  • Upprunalega birt á Hvítar rósir og rómantík… : …ó já hvað er skemmtilegra en góð saga?   Ég er leikskólakennari og hef gaman af því að finna skemmtilegar sögur handa börnum. Öllum börnum finnst líka gaman að segja sögu 😉 og þá eru „sögusteinar“ skemmtileg tilbreytning!  Ennþá skemmtilegra er að leyfa börnunum að tína steinana sjálf…

  • Fyrir nokkrum árum gerði ég nokkur stykki af brúðum með „porstulínshöfði“ og seldi grimmt. Ég dró upp mótið og rifjaði upp taktana á dögunum…   Hvernig líst ykkur á þessar „gömlu“ sem gerðar voru fyrir ca. 25 árum… þá var sko allt home made! Ég saumaði sjálf fötin, skóna gerð ég er lika sjálf og hárið…

  • Ég bara varð að taka nokkrar blómamyndir af blómunum mínum. Það er að segja á meðan þau eru enn lifandi. Þvi ég er sko „ekkimeðgrænarfingurkona“  það er þó  ein mynd af gerfiblómi, en ég  hef alveg náð að „drepa“svoleiðis blóm sko….

  • Sumir eru voða duglegir að nota bökunargræjur fyrir páskana og aðrir duglegir að skreyta. Ég sló sko bara tvær flugur i einu höggi… 😉

  • Það er nú ekki svo svakalega erfitt að lífga uppá „þreytt“ leirtau. Það eina sem þarf eru glerlitir eða pennar og svo er bara að skella sér i þetta. Smá stund í bakarofninn og þetta er skothelt i uppþvottavélina. Hér er smá sýnishorn…

  • Ég hef nú lengi verið dulítið veik fyrir skóm. Ekki bara þessum sem maður setur á þessa tvo sem maður stendur á, ónei! Mér finnst t.d litlir skrautskór sem maður hengir á greinarnar á jólatréð mjög flottir og á „nokkra“ sæta í þeim flokki…. Í morgun barst mér pakki þó ekki óvænt, frá honum Disney…

  • Síðdegi í sólstofunni. Það hlýtur að fara að styttast í að geislar sólar fari að kíkja í heimsókn…