jæja þá er komið að því að kynna ykkur nýja eldhúsið. Það er sá staður í húsinu sem er minn uppáhalds, að minnstakosti ennþá. Eldhúsið er alveg risastórt og er og verður sannkallað hjarta hússins.
Eins og ég sagði ykkur frá þegar ég bloggaðið um baðherbergið hér þá voru skilin á húsinu frekar sjoppuleg og eldhúsið var engin undantekning á því. Ég var t.d. ekki nema 8 klst að þrífa eldavélina og bak við hana. Ég á myndir af því en ég ætla að hlífa ykkur við þeim… 😉
Borðkrókurinn er æðislegur, rúmgóður og kósý
eldhúsið var hvítt og gult. Við ákváðum að hafa það grátt og aðeins grárra á milli innréttingarinnar, við erum mjög ánægð með útkomuna…
…borðkrókurinn fyrir og eftir…
Við keyptum í vetur stórann Míruskáp sem eiginmaðurinn fékk að dudda sér við að mála hvítan í vetur. Útkoman er æðisleg…
…og þessi hornskápur fékk sömu meðhöndlun, hurðin á honum er í upphalningu hjá góðum manni hér í bæ…
svona virðuleg ljósakróna þarf nú að hafa fallega rósettu…
…útsýnið er yndislegt… annar glugginn er lægri en borðið og mér finnst ljótt að horfa inn. Svo ég leysti það með því að setja „girðingu“ í gluggann og þá ber ekki eins á muninum.
Var ég nokkuð búin að minnast á þennan yndislega skáp…
Ömmur verða að eiga viðeigandi dót í eldhúsinu fyrir lítið fólk…
hmmmm… doppur er eitthvað sem er svo mikið uppáhalds…
Húsmæðradót… Emeleruðu skeiðarnar fékk ég í Brighton í yndislegri lítilli búð sem ég sagði frá hér
borðkrókurinn -hjarta hússins…
…þetta er snilld, útvarp innbyggt í innréttinguna…
Flottu krúsirnar sem ég keypti í yndislega kaffihúsinu Pallett í Hafnarfirði tróna á hornskápnum…
Doppuhornið góða…
Skápurinn fylltist fljótt af ýmsum gersemum…
eldhúskrókurinn…
borðkrókurinn…
Gaman væri nú að heyra frá sem flestum hvað þeim finnst um þessa breytingu.
Njótum lífsins og sumarsins…


























Skildu eftir svar við Þuríður Hætta við svar