Jæja þá erum við búin að búa í eina viku í nýja húsinu okkar. Það er sko búið að vera mikið að gera, bæði að moka út, þrífa og mála. Við keyptum húsið með öllum húsgögnum, þar sem við tókum við leigusamningum og leigðum áfram út herbergi til nema og því var húsið svona hálfgerð kommúna. Aðkoman að húsinu var nú eiginlega þannig að maður sá strax að „skítastuðulinn“ hjá leigjendunum hafði verið aðeins hærri en minn… 😉 Eeen það er búið að nota fullt af vatni og sápu og mála svo yfir síðustu dagana….
Næstu vikurnar ætla ég svo að leyfa ykkur að fylgjast með breytingunum sem verða hér inni í þessu annars yndislega húsi. Og í dag langar mig að sýna ykkur baðherbergið okkar og hér eru myndir fyrir og eftir sjæn… Við völdum okkur lit sem heitir Öldugrár og finnst mér hann algjört æði! Baðkerið er upprunalegt, gamalt, djúpt og notalegt. Okkur langar til að skipta út í „gamaldags“ krana bæði hjá baðkerinu og vaskinum svona uppá andann…
það er dálítil breyting… og liturinn maður minn ælovit ❤
við skiptum líka út höldum á skápshurðunum, en oft þarf nú ekki meira til að fríska uppá útlitið…
Að sjálfsögðu er Frúin búin að prufukeyra „kósýstund“ í búbbúlbaði…
Erum við ekki bara sammála um að baðherbergið hafi ákveðinn kósýsjarma…
jæja manni er ekki til setunnar boðið, það þarf að skrúbba meira og mála. En þar til næst….









Skildu eftir svar við Kolbrún Rósum og rjóma Hætta við svar