Eitt af því sem hefur átt tíma minn og huga síðustu vikur er nýja húsið okkar. Við festum kaup á ofsalega fallegu gömlu húsi um daginn ❤ Þetta hús er byggt á Ísafirði 1903 sem skólastjórahús. Við erum búin að fá húsið afhent, eeeeeen við flytjum ekki inn í það fyrr en í júlí 2015  eða eftir 9 mánuði!!!!! Frúin er því á fullu að plana og pæla og húsbóndinn gantast með það að konan verði nú búin að breyta nokkrum sinnum áður en kemur að flutningi… mér finnst hann sko ekkert fyndinn 😉 Ég má nú til með að leyfa ykkur að dáðst að nýja fallega húsinu okkar með mér…

Hér er gestahliðin á húsinu þ.e. framhliðin og svo glittir í sólskálann á hliðinni…

1hús

…og teikningin af sömu hlið… ❤

1

…og vangasvipurinn…

4hús

…og teikningin…

2

er það ekki bjútý?  Gluggarnir eru sko spennandi verkefni fyrir frúna…

3hús

Ég get samt lofað ykkur því, að ruslatunnurnar verða sko ekki staðsettar þarna…!!!

5hús

Þessa vetrarmynd varð ég að stelast til að hafa með, en ég fann hana á netinu 😉 jiiii hvað það verður notalegt að sitja í hengirólunni minni,  inni í sólskálanum með heitt kakó ❤

6hús

kveðja úr draumheimum…

Gunna 😉

 

Posted in

4 responses to “Draumahúsið”

  1. Hjōrdís Avatar
    Hjōrdís

    Til hamingju með fallega húsið hlakka til að fylgjast með þegar þú verður flutt.

    Líkar við

  2. Stina Sæm Avatar

    Vá þetta hús er bara gordjöss. Mikið hlakkar mig til að fylgjast með þér koma þér fyrir. Til lukku með husið
    Kv stina

    Líkar við

  3. Ása Avatar
    Ása

    Flott þetta hús. Spennandi að fylgjast með þér koma þér fyrir þar.
    Til hamingju.

    Líkar við

  4. Kolbrún Rósum og rjóma Avatar

    Til hamingju með þetta fallega og sjarmerandi hús….hlakka til að sjá myndir þegar þar að kemur! 🙂

    Líkar við

Skildu eftir svar við Stina Sæm Hætta við svar