Skip to content

Hvítar rósir og rómantík…

    • Um mig

recent posts

  • Baðherbergið framh.
  • Baðherbergið málað…
  • Ágúst, ljós og rómantík…
  • Svefnloftið ný málaði…
  • Garðvinna, dittað að og málað

about

  • Twitter
  • Facebook
  • Instagram
  • Hlaupabóla??

    febrúar 11, 2014

    hehe… nei það er ekki skollin á hlaupabóla á heimilinu 😉 Þetta er sýnishorn eða brot af verkefni sem frúin er að vinna að þessa dagana og ætlar að sýna ykkur á allra næstu dögum!  eigum við að hafa getraun hvað þetta er? gettu, gettu…

    collage

    sjáumst fljótlega… kveðja Gunna 😉

     

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Kjóll 28#

    febrúar 10, 2014

    jæja sunnudagurinn leið og enginn kjóll var kynntur til sögunnar hér á bæ  😉 en nú ætlar frúin að bæta fyrir brot sitt og þar sem veðrið í gær var svo mikið „vor“ nú þá er kjóllinn í þeim dúr 🙂

    Kjóllinn er hvítur og er borinn fram með bleikum fylgihlutum…

    IMG_1145

    IMG_1146 bleik hliðartaska…

    IMG_1147 bleikt blómahálsmen…

    IMG_1148

    IMG_1150

    IMG_1152

    …og að sjálfsögðu bleikir skór. Hvað annað 😉

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • kjóll 27#

    febrúar 2, 2014

    27. kjóllinn minn er svartur með „blöðrupilsi“ hann er voða „praktískur“ og passar eiginlega við allt…

    IMG_1200 IMG_1202

    Kjóllinn er flottir með rauða loðkraganum mínum, gallajakka eða svörtum jakka 😉

    IMG_1203

    lekkert…

    IMG_1205

    …og ótrúlega þæginlegur…

    IMG_1207

    Flotta veskið mitt (eitt af mörgum, enda fylgihlutir nauðsynlegir hverri konu 😉 )

    IMG_1208

    IMG_1210

    rautt og svart…

    IMG_1211 IMG_1213+

    Kjóllinn er ekta sparikjóll, sem nýta má þó við öll tækifæri  😉

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Meira af Marilyn vinkonu minni

    janúar 31, 2014

    Eldri sonur minn og tengdadóttir voru að fá sér fallegan kertaaren um daginn. Ég þurfti að sjálfsögðu að skipta mér af málinu og vildi vita hvað þau ætluðu að hafa fyrir ofan hann.  Þau voru nú ekkert farin að spá í það þessar elskur, nú svo ég  tróð mér framm og spurðu hvort ég mætti ekki mála mynd þar sem ég ætti til ómálaðann striga  😉 Þau greyin þorðu náttúrulega ekkert að mótmæla, enda ég ábyggileg frekar ýtin…   Það endaði semsagt þannig  að ég var svo heppin að fá að mála mynd af mínu uppáhalds, Marilyn Monroe fyrir þau 🙂

    MM1

    Búin að rissa upp dömuna og það með röngum blýanti þ.e. hann var of mjúkur og kámaðist auðveldlega út á strigann…

    MM2…ég tússaði því ofaní með svörtum teiknipenna…

    MM3

    Nú og svo var bara að mála…

    MM5

    …og smá rautt á varirnar 😉

    1620734_10202362161268551_1048722717_n

    Hér er Vinkonan komin  fullkláruð fyrir ofan Kósý areninn…

    Góða helgi Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Rêver de Paris

    janúar 27, 2014

    Ein af mínum draumaborgum er París 😉 þar sem ég sé ekki drauminn alveg vera að rætast á næstu dögum eða svo, nú þá  færir maður drauminn nær sér!

    Í dag er því Parísardraumaþemað myndað hátt og lágt…

    IMG_02708

    2 7 6 5 4 3

    collage IMG_0245

    au revoir Gunna 🙂

     

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • kjóll 26#

    janúar 26, 2014

    jæja hér er kjóll númer 26 hjá frúnni.  já sumir eiga þá fleiri en aðrir, en kannski eru það áhrif úr barnæsku? Ég hélt og held reyndar mikið upp á söguna „prinsessan sem átti 365 kjóla“ 😉  En ég held að ég fari samt ekkert að keppa við hana…

    Kjóllinn í dag er hvítur með fallegri svartri blúndu.

    IMG_0197

    IMG_0199

    IMG_0200

    IMG_0201

    IMG_0202

    IMG_0204  Voða sparilegur…

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • rautt og röndótt…

    janúar 22, 2014

    Ég var að flandrast í Þýskalandi s.l. haust og sá þar svo flotta skerma, sem ég get ekki gleymt! 😉 þeir eru hvítir og rauðir röndóttir og mig langaði svooooo í eins og eitt stykki, en ótrúlegt en satt ég fékk mér ekki einn… ég fékk mér ekki neinn… og mig langar og langar í! Ég sá að vísu lampa í Líf og List sem er með svipuðum skermi, bara ekki eins rauðum. En „peran“ ég hætti nú sjaldan fyrr en ég hef reddað mér 😉 skoðaðu hvað ég gerði til að nálgast drauma skermirinn…

    IMG_0228

    Það rifjaðist upp að ég ætti gamlann lampa  sem væri með lasinn skermi á, úti í kassa í bílskúrnunum

    IMG_0229

    hann var sóttur og ég setti á skerminn límband…

    IMG_0231

    …málningu var skellt á, fagurrauð…

    IMG_0233

    beðið eftir þurrki, hér reyndi sko á þolinmæði frúarinnar…

    IMG_0234

    límbandið tekið af og…

    IMG_0235

    …vóóó þetta leit ekki ílla út ha…

    IMG_0237

    skerminum skellt á lampafótinn og…

    IMG_0240

    frúin bara nokk sátt…

    IMG_0241

    …finnst ykkur þetta ekki bara koma vel út?

    IMG_0243

    Smá yfirlitsmynd í lokin, svona til að sjá lúkkið betur 😉

    kveðja Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Kjóll 25#

    janúar 12, 2014

    jæja nokkrir hafa spurt mig hvort ég hafi saumað alla þessa kjóla. En nei ég hef sko ekki gert það, takk samt fyrir að hafa þessa trú á mér 😉  Þóóóó er undantekning á þessu. því í dag ætla ég að sýna ykkur síðkjól sem ég saumaði mér fyrir Sunnukórsball fyrir nokkrum árum.  Þessi kjóll er saumaður úr flöskugrænu flaueli og er liturinn mjög fallegur! kíktu á…

    IMG_0952

    IMG_0953

    IMG_0954

    IMG_0956

    IMG_0957

    IMG_0959

    Semalíusteina saumaði ég í klaufina aftan´á kjólnum, það gerir hann meira svona „elegant“

    IMG_0963

    IMG_0967

    IMG_0969

    flottur ha? 😉

     

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • kjóll 23#

    janúar 5, 2014

    Gleðilegt ár! nú er fyrsti sunnudagur  þessa árs runninn upp og næsti kjóll tilbúinn að koma í loftið… þessi er spari, svartur með blúndublómum á pilsinu. skoðum hann… 😉

    IMG_0937

    IMG_0938

    Kraginn er laus á svo það er því val hvor maður vill…

    IMG_0939

    …fullt af blómum hangandi á pilsinu…

    IMG_0940

    IMG_0942

    IMG_0944                        …kraginn er flottur…

    IMG_0945

    IMG_0947

    það eru saumaðar perlur á blómin á kraganum…

    IMG_0949

    IMG_0951

    hann er „elegant“ þessi og mér finnst ég voðalega flott þegar ég er  komin í´ann… 😉

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
  • Gamlársdagur…

    desember 31, 2013

    þá er enn og aftur komið að því að kveðja ár og taka á móti nýju. Hér í jólalandi eru bara rólegheit og við njótum jólaljósanna 🙂

    IMG_0073hér skellti ég saman gullkúluseríu og þæfðri blúnduseríu. Það kemur bara skemmtilega flott út!

    IMG_0076Þennan „sleða“ sagaði ég út og smíðaði fyrir nokkrum árum og málaði svo á´ann

    IMG_0078aðventuljósin og rugguhestastóð…

    IMG_0079hátíð í bæ…

    IMG_0080Hún mamma gaf mér þessa flottu skreytingu á aðventuljósin, fyrir möööööörgum árum og þau gera svakalega mikið fyrir heildar lúkkið 😉

    IMG_0081meira af seríum…

    IMG_0084 …

    IMG_0087…flögrandi engill…

    IMG_0089 að sjálfsögðu fékk „fatatréð“ smá upphalningu…

    IMG_0092 þessi kramarhús gerði frúin fyrir nokkrum árum…

    IMG_0095 jólin í hjónaherberginu… 😉 hóhóhó…

    IMG_0097 Jiii sjáið hve svefnherbergis-jólasveinarnir eru hissa… 😉

    Farið nú varlega á gamlárskvöld og nýjársnótt. Takk fyrir innlit á árinu sem er að líða og „hittumst“ hress á því nýja! kveðja Gunna

    • Deila á Facebook(Opnast í nýjum glugga) Facebook
    • Share on https://www.instagram.com(Opnast í nýjum glugga) https://www.instagram.com
    • Share on Pinterest(Opnast í nýjum glugga) Pinterest
    Líka við Hleð…
Fyrri síða Næsta síða

Bloggaðu hjá WordPress.com.

Hleð athugasemdir...
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    Hvítar rósir og rómantík...

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • Hvítar rósir og rómantík...
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar
%d