Ég tók smá rúnt um húsið svona í lok páskanna og tók nokkrar páskalegar myndir…















Ég tók smá rúnt um húsið svona í lok páskanna og tók nokkrar páskalegar myndir…















Sumir eru voða duglegir að nota bökunargræjur fyrir páskana og aðrir duglegir að skreyta. Ég sló sko bara tvær flugur i einu höggi… 😉

Það er nú ekki svo svakalega erfitt að lífga uppá „þreytt“ leirtau. Það eina sem þarf eru glerlitir eða pennar og svo er bara að skella sér i þetta. Smá stund í bakarofninn og þetta er skothelt i uppþvottavélina. Hér er smá sýnishorn…




Ég sagði ykkur frá þvi um daginn að ég hafi eignast svo fallega skó sem er jólatrésskraut. Í vikunni barst mèr viðbót…. það eru skór með Öskubusku og svo Mjallhvíti og dvergunum sjö. Mér finnst þeir æði!




…já öllum heimilum er það nauðsynlegt að eiga góðar græjur.
Frúin eignaðist eina svoleiðis á dögunum… já lítil og handhæg með allavegana skrúfbitum sem eiga svo sannalega eftir að nýtast konunni í framtíðinni

En bíðið við hvað er nú þetta?

Jabbb… það er rétt og þessi aukahlutur verður sko örugglega sá best nýtti…

Það er svo sannalega engin lýgi að sumar græjur eru sko svona fullorðins…

Ég hef nú lengi verið dulítið veik fyrir skóm. Ekki bara þessum sem maður setur á þessa tvo sem maður stendur á, ónei!

Mér finnst t.d litlir skrautskór sem maður hengir á greinarnar á jólatréð mjög flottir og á „nokkra“ sæta í þeim flokki….
Í morgun barst mér pakki þó ekki óvænt, frá honum Disney frænda í henni Ameríku. Pakkinn innihélt dásemdar öskubusku-glerskó



Um daginn fékk ég líka sendingu frá Disney gamla, en það voru Mary Poppins skór sem er áritaðir undir….


Svo á maður sér náttúrulega drauma um skó, sem væntanlega detta inn með póstinum í framtíðinni t.d þessir…

Hevenseven maður minn! Eru þeir ekki gordjöss?
….ég segi nú bara meiri skó, meiri skó, meiri skó….

Síðdegi í sólstofunni. Það hlýtur að fara að styttast í að geislar sólar fari að kíkja í heimsókn…




Við tókum okkur til um daginn og máluðum sjónvarpsstofuna. Veggirnir voru hvítir, húsgögnin hvít og allir listar í kringum glugga hvítir. Ekkert var að njóta sín…



















Saumahornið fékk nýtt lúkk i dag…
Svona var það áður…

Og núna er það svona, saumaborðið farið og komin góð og vegleg borðplata alveg yfir og gott vinnuplass…

