Ég tók smá rúnt um húsið svona í lok páskanna og tók nokkrar páskalegar myndir…
Súkkulaðiskórnir bíða þess að á þeim verði smakkað…Fallegu páskagardínurnar mínar sem ég keypti í vefnaðarvörudeildinni í Kaupfélagi Borgfirðinga Borgarnesi, þegar ég vann þar í denn…Þessa hænsnafjölskyldu prjónaði frúin eitthvert árið…Páskagluggi með heimagerðum páskaliljum…páskar allstaðar í nr.14þetta páskakerti var kúla, en það bráðnaði í sólinni eitt árið og klesstist. Það sómar sér þó vel á fiskispaða heimilisins…Ég er svolítið skotin í þessu blómi…Tvær krútthænur…Páskar í sólstofunni…
egg af öllum stærðum…Jólakúlustandurinn nýttur fyrir páskaeggjaskraut…Þessi yndislega fallegu páskakerti keypti ég fyrir austan, í blómabúð á Eskifirði.Nú fer kertatíminn að líða hjá þar sem dagurinn lengist og lengist…