recent posts
about
Flokkur: Sumar
-
…á fallegum degi eins og var í dag getur maður ekki staðist freistinguna og duddað smá á pallinum. Maður verðu jú að vera viðbúin þegar sumarið mætir af fullum krafti. En við vitum samt að vorhretið getur gerst boðflenna nú sem fyrr… 😉
-
Mig langaði í steyptar kúlur i garðinn og gerði því smá tilraun. Ég notaði gömul jólakökuform og járnskálar til að steypa í, svo skeitti ég skálarhelmingunum saman til að fá „kúlu“….
-
Nú er pallasmíðin og sjænið í kringum það allt, á loka metrunum. Við vitum þó að síðustu metrarnir geta verið drjúgir… 😉 Mig langaði i stiga utaná skúrinn og smá bekk, ég fékk því húsbóndann með mér í lið og við klömbruðum þetta saman.
-
Sumir dagar eru bara letidagar og á svoleiðis dögum á maður bara að njóta. Ég hitti á einn svoleiðis á sunnudaginn. Ég henti mér út í sólina í hengirúm sem er yndislegt að liggja í og bara slaka á…
-
Ég tók smá breytingaskeið í eldhúsinu í vikunni, setti m.a húsafilmu í einn gluggann. Sá gluggi er svona hálfgerður vandræðagemlingur þar sem hann er lægri en innréttinginn og lúkkar því ekki nóg og vel utan að séð… ég keypti mérkryddhillur í Ikea sem ég málaði hvítar nota sem skrauthillur…
-
…vætir eða kætir, ég man aldrei hvort það er! En ég kætist amk yfir því þegar kvöldsólin sendir síðustu geisla dagsins inn um gluggana hjá mér…
-
Hver getur sofið af sér fallega sumarnótt? Að minnsta kosti átti ég erfitt með að slíta mig lausa frá fegurðinni sem geislar sólarinnar tendruðu á jónsmessunni… Ég tók smá gluggarúnt með myndavélina og endaði utandyra…
-
…já það er gott að eiga sér griðarstað, þar sem maður getur skriðið út úr kassahrúgunni. Ég bjó mér til einn slíkan úti á svölum í blíðunni í dag ❤ Hengiróla, sól, kirsuber og rósir gerist vart betra… …nú er sumarið komið… …ég hvet svo alla endilega til að kíkja á eða taka þátt í…
-
æi þar sem sólin skín svo skært á þessum laugardegi þá getur maður ekki annað en dregið allt fram sem tilheyrir sól á svalirnar… Maður kann nú að láta fara vel um sig í hengirólunni og með réttu tímaritin sko… ❤ Ég keypti þessa hengirólu í fyrra og þá var litaþemað svolítið líflegra en í…
-
Þar sem veðrið er ekki mikið svona sumarlegt þá er ekkert annað í boði en að láta sig dreyma um framandi lönd með sumri og sól 😉 nú ég ákvað að skella gínunni minni í sætt sumardress og gerði hana ferðbúna fyrir Parísarferð. Að sjálfsögðu er regnhlif hluti af ferðafötunum hennar… yrði maður ekki flottur…