Flokkur: Eldhúsið mitt

  • Það er ljúft að sitja í rökkrinu með kveikt á kertum og seríum… Eldhúsið er notalegur staður á svona kvöldi, endilega njótið með mér… …góða nótt 🙂  

  • Þá er komið að því að sýna eldhúsgluggann minn, og nú eru blúndur mættar á staðinn.  Ég fékk blúndudúk í „þeim góða“ og ákvað þegar ég kom heim með hann, að klippa hann niður og nota í gluggahlerana mína 😉                                                                    Þó að hlerarnir mínir séu voða fínir þá fannst mér eitthvað vanta, þ.e gera…

  • Ég „lofaði“ um daginn í „diskarekkablogginu“ mínu Diskarekki fyrir-eftir, að breytinga væri að vænta úr eldhúshorninu mínu og hér afhjúpast hún… ég fékk nebblega nýtt fráleggsborð, líttu á…                                                                 Hvítt og fínt…                                    Vó hvað það var gaman að raða, breyta, raða aftur…                             Fallega hvíta kommóðudúkinn saumaði Steina frænka (langömmusystir mín) hún saumaði marga fallega…

  • Ég  á „gamlann“ diskarekka sem hefur í gegnum árin breytt um lit reglulega. 😉  Hann hefur verið furulitaður, blár, bleikur, hvítur og aftur furulitaður og nú er hann „kalkaður“ hvítur! Ég læt hér fljóta nokkrar glóðvolgar myndir af´onum…                                   Hér er´ann fyrir síðustu meðhöndlun… …og hér er búið að mála og pússa… …og sko bara…

  • Mér finnst bollarnir mínir vera svo mikið augnakonfekt að ég er sífellt að stilla þeim upp þar sem maður getur dáðst að þeim, ég vil alls ekki loka þá inn í skáp!  Nú eru þeir komnir á enn einn nýja staðinn og auðvitað var myndavélin sótt, ég verð nú eiginlega að taka mynd af þessari…