Ég fann voðalega sætan lampa í RL á helginni og það besta er að hann kostaði ekki hvítuna úr augunum, eða „bara“ 4990 kr með skermi. Hann er frekar hár og með flottum tréfæti…
okey ég veit að ég fór hamförum með myndavélina… en lampinn er svoooo mikið uppáhalds
…og úlalala sjáið fallega púðann minn frá Lin Desing þeir eru líka til með ýmsum flottum áletrunum, mig langar sko í fleiri…
Maður verður líka að mynda svona flottan lampa í björtu… og púðann maður minn ❤
og lampafóturinn er gerður smá sjabbý með pússiríi á réttu stöðum…
bara dásemdin ein…
Þessi þarf nú eiginlega engin orð… -bara kyrrð ❤
Rómókveðja úr Hafnarfirðnum