Ég er svo heppin að hafa fengið úhlutað yndislegri móður, sem er alltaf að dúllast við að gera fallega hluti. Þessa fallegu hluti er´ún svo að gauka að manni. Eitt af mörgu sem hún er að gera er að sauma út í viskustykki og þar sem hún á sér nú draum um að húsmæðragenið frá henni vakni nú einhverntíman upp í mér, þá hefur hún verið dugleg að rétta að mér þessi fallegu viskustykki! Ég mátti til með að smella nokkrum myndum af nokkrum sem ég hafði nýlokið við að STRAUJA -ójá en það gerist nú bara fyrir myndatökur!!!! 😉
Það er nú ekki amalegt fyrir hann Dóra minn að þurrka upp með svona fallegum stykkjum, frá tengdó 😉
heimilið er nú óðum að taka á sig jólalegan svip, hóhóhó 🙂