Ég „lofaði“ um daginn í „diskarekkablogginu“ mínu Diskarekki fyrir-eftir, að breytinga væri að vænta úr eldhúshorninu mínu og hér afhjúpast hún… ég fékk nebblega nýtt fráleggsborð, líttu á…
Vó hvað það var gaman að raða, breyta, raða aftur…
Fallega hvíta kommóðudúkinn saumaði Steina frænka (langömmusystir mín) hún saumaði marga fallega hluti, enda mikil handavinnukona!
Sjáið bara hvað dúkurinn er fallegur og vandaður, ég vildi óska að ég ætti fleiri stykki eftir hana frænku mína! En því miður, já ég segi því miður þá var handavinnan hennar gefin á byggðasafn og þar híma fallegu stykki hennar Steinu frænku, bara í kössum í geymslu og enginn fær að njóta…

næst er það svo eldhúsgluggahlerarnir sem fá smá andlitslyftingu… Sjáumst 🙂






Skildu eftir svar við gunnabirgis Hætta við svar