Jæja þá eru síðustu klukkutímar páskafríisins að tifa og ég má til með að skella inn síðustu páskamyndunum mínum þetta árið…
Frú páskakanína á vaktinni með gulræturnar sínar, kannski er þetta áminning um að súkkulaði-átið sé best sett á „hold“…
…hin virðulega Kata…
Páskafjör…
Ég tók fram „jólaskrautsstand“ sem ég keypti um síðustu jól í Ikea og skellti á hann páskaskrauti. Sniðugur standur fyrir öll tækifæri…
…
Þessir voru gerðir af litlum puttum fyrir nokkrum árum að mér minnst, en árin eru víst fleiri en nokkur…
Túlipanarnir eru sko ekki síðri svona á síðasta snúningi, blöðin verða svo fallega skorpin og krumpuð, eins og við verðum víst öll með aldrinum 😉
kveðja Gunna