recent posts
about
Flokkur: Óflokkað
-
Sumir eru voða duglegir að nota bökunargræjur fyrir páskana og aðrir duglegir að skreyta. Ég sló sko bara tvær flugur i einu höggi… 😉
-
Það er nú ekki svo svakalega erfitt að lífga uppá „þreytt“ leirtau. Það eina sem þarf eru glerlitir eða pennar og svo er bara að skella sér i þetta. Smá stund í bakarofninn og þetta er skothelt i uppþvottavélina. Hér er smá sýnishorn…
-
Ég hef nú lengi verið dulítið veik fyrir skóm. Ekki bara þessum sem maður setur á þessa tvo sem maður stendur á, ónei! Mér finnst t.d litlir skrautskór sem maður hengir á greinarnar á jólatréð mjög flottir og á „nokkra“ sæta í þeim flokki…. Í morgun barst mér pakki þó ekki óvænt, frá honum Disney…
-
Síðdegi í sólstofunni. Það hlýtur að fara að styttast í að geislar sólar fari að kíkja í heimsókn…
-
Við tókum okkur til um daginn og máluðum sjónvarpsstofuna. Veggirnir voru hvítir, húsgögnin hvít og allir listar í kringum glugga hvítir. Ekkert var að njóta sín…
-
Saumahornið fékk nýtt lúkk i dag… Svona var það áður… Og núna er það svona, saumaborðið farið og komin góð og vegleg borðplata alveg yfir og gott vinnuplass…
-
Ein af föstu venjum hér á bæ fyrir jólin er að gera Daimísmarenstertu. Í ár prófaði ég lika að baka marens í muffinsformum og setti svo Daimís ofaná, það gæti orðið smartur eftirréttur…
-
Ég réðst í málningarvinnu nú á helginni. Fórnalambið að þessu sinni var baststólinn sem ég eignaðist í sumar. Baststóll sem þarf sjæningu… Ég ætla því að leyfa ykkur að skoða fyrir og eftir myndir. Eg er amk mjög sátt við breytinguna….
-
jæja þá er allt komið eins og það á að vera í nýja fataherberginu okkar. Lúngan úr helginni var verið að skrúfa saman kommóður og raða ofaní og á… Ekki veitti af því að kaupa stóra kommóðu undir þann fatnað sem ekki þykir nóg og merkilegur til að vera sýnilegur upp á slá… Skór og skart eitthvað er…
-
…mitt er orðið að veruleika. Aaaha já við erum að tala um FATAHERBERGIÐ. Sko í húsinu no.14 eru í reynd engir fataskápar, jú ok nokkrir gamlir og mishressir frá RL-design. Því var spurningin um að kaupa góða alvöru skápa eða spandera einu herbergi (af 7) í fataherbergi. Þar sem herbergið við hliðina á hjónaherberginu lá vel…